Svona fyrirgefur þú sjálfum/sjálfri þér

Unsplash/Imani Bahati

Að fyr­ir­gefa öðrum get­ur verið mjög erfitt. En hvað ger­ist ef mann­eskj­an sem þú þarft að fyr­ir­gefa ert þú sjálf? Mörg okk­ar eru of sjálfs­gagn­rýn­in og það get­ur verið mjög erfitt að fyr­ir­gefa sjálf­um sér fyr­ir að hafa gert mis­tök eða sært ein­hvern.

Hvort sem þú komst með nokkr­ar kæru­laus­ar at­huga­semd­ir á manna­móti, berð ábyrgð á hugs­an­leg­um vinslit­um eða þér finnst þreyt­andi að geta aldrei staðið með sjálfri/​sjálf­um þér, þá get­ur það verið hreint út sagt ómögu­legt að binda enda á sjálfs­for­dæm­ing­una. Þú skil­ur kannski ekki einu sinni hvers vegna það er svo erfitt að fyr­ir­gefa sjálf­um/​sjálfri þér, jafn­vel þótt þú hald­ir að þú sért til­bú­in(n) til þess.

Hér eru nokk­ur ráð til þess að ná að fyr­ir­gefa sjálf­um sér.

Staðfestu getu þína til að fyr­ir­gefa sjálfri/​sjálf­um þér

Það er full­kom­lega eðli­legt ef þú get­ur varla hugsað um það sem þú hef­ur gert án þess að þurfa fljót­lega að ein­beita þér að ein­hverju öðru. Einnig er það eðli­legt ef þú upp­lif­ir end­ur­tekn­ar hugs­an­ir um ástandið. Þess vegna get­ur fólk sem á erfitt með sjálfs­fyr­ir­gefn­ingu fundið fyr­ir þung­lyndi, kvíða og svefn­leysi. Sum leita jafn­vel í sjálfsskaða og eit­ur­lyf til að deyfa til­finn­ing­arn­ar.

Þér get­ur þótt það ófram­kvæm­an­legt að fyr­ir­gefa sjálf­um/​sjálfri þér ef allt sem þú gerðir, eða gerðir ekki, ligg­ur þungt á þér.
Þess vegna er mik­il­vægt að geta sagt sjálf­um/​sjálfri sér að þú kom­ist yfir þetta.

Byrjaðu á því að spyrja sjálfa(n) þig hvort þú trú­ir á getu þína til að verða betri en á sama tíma viður­kenna að þú sért ekki full­kom­in(n), rétt eins og all­ir aðrir. Jafn­vel þótt hug­ur­inn segi nei, get­ur þú ögrað nei­kvæðum hugs­un­um þínum með því að sjá mögu­leik­ann á því að fyr­ir­gefa sjálf­um/​sjálfri þér.

Komdu fram við þig eins og besta vin þinn

Þegar við ger­um eitt­hvað sem er fyr­ir utan þæg­ind­aramm­ann okk­ar byrj­um við oft að refsa okk­ur fyr­ir það. Það ger­ir ekk­ert gagn og því er mik­il­vægt að sýna sjálf­um/​sjálfri sér sam­kennd.

En hvernig ger­ir þú það eig­in­lega? Þú þekk­ir til­finn­ing­una þegar besti vin­ur þinn hring­ir eft­ir sam­bands­slit og byrj­ar að segja hræðilega hluti um sjálf­an sig. Jafn­vel þótt það sé tæki­færi fyr­ir vin þinn til að læra af sárs­auka sín­um þá byrj­ar þú ef­laust á því að segja að hann sé nú bara mann­leg­ur og að hann eigi að sleppa tök­un­um af refsi­vend­in­um.

Oft lít­um við ekki á sama hátt á okk­ar eig­in veik­leika eða mis­tök. Þess vegna get­ur þér liðið bet­ur ef þú reyn­ir að tala við sjálfa(n) þig eins og þú mynd­ir tala við besta vin þinn. Get­ur það hjálpað til við að milda þær nei­kvæðu til­finn­ing­ar sem við ber­um oft í brjósti til okk­ar sjálfra.
Reyndu að muna að það er mann­legt að gera mis­tök og við ger­um öll mis­tök af og til. Kannski varð þér á en það ger­ir þig ekki að slæmri mann­eskju. Það er stór mun­ur á því að segja að það sem þú gerðir hafi verið hræðilegt og að segja að þú sért hræðileg mann­eskja.

Skrifaðu niður staðreynd­ir

Oft þegar fólki verður á finn­ur það fyr­ir yfirþyrm­andi sekt­ar­kennd. Það get­ur verið freist­andi að horfa á sam­skipt­in með aug­um sjálfs­fyr­ir­litn­ing­ar eða jafn­vel reyna að af­neita af­leiðing­um gjörða þinna. Ef það er til­fellið gæti verið hjálp í því að skrifa niður hvað gerðist, eða segja það upp­hátt við sjálfa(n) þig. Þetta get­ur hjálpað þér að hætta að hugsa of mikið um þetta og líta á ástandið sem reynslu sem þú get­ur dregið mik­il­væg­an lær­dóm af.

Ef þú get­ur ekki verið heiðarleg(ur) við sjálfa(n) þig um hvaðan sekt­ar­kennd­in kem­ur, verður erfiðara að halda áfram og breyta hegðun­inni í framtíðinni.

Spyrðu þig hverj­ar vænt­ing­ar þínar voru

Önnur leið til að breyta sjón­ar­horni þínu er að bera kennsl á þann sjálf­skipaða staðal sem þú held­ur að þér hafi ekki tek­ist að upp­fylla þegar gerðir eitt­hvað sem þú sérð eft­ir. Spyrðu þig hverj­ar vænt­ing­ar þínar voru. Voru þær byggðar á raun­veru­leik­an­um eða voru þetta ef til vill óraun­hæf­ar hug­mynd­ir sem gerðu ekki ráð fyr­ir því í hvaða stöðu þú varst?

Til­gang­ur­inn með þess­ari æf­ingu er ekki að frýja sig ábyrgð eða saka aðra um eitt­hvað. Ekki held­ur að koma í veg fyr­ir þörf­ina til að grípa til aðgerða til að ráða bót á ástand­inu. Það sem þess­ar spurn­ing­ar geta hins veg­ar gert er að skýra hvort þú sért of hörð/​harður við sjálfa(n) þig.

Reyndu að bæta fyr­ir mis­tök þín

Þegar þú hef­ur skoðað aðstæður með aðeins samúðarfyllri aug­um og velt því fyr­ir þér hvað raun­veru­lega átti sér stað, get­ur þú spurt sjálfa(n) þig hvernig þú vilt bæta fyr­ir það sem þú gerðir. Hug­mynd­in er ekki að refsa sjálf­um þér, held­ur nota eft­ir­sjá þína sem tæki­færi til að þrosk­ast. Með því að biðjast af­sök­un­ar tek­ur þú ábyrgð á því sem þú gerðir og skuld­bind­ur þig til þess að bregðast öðru­vísi við í framtíðinni.

Prófaðu möntru og end­ur­taktu hana

Þú get­ur þjálfað heil­ann í að sleppa tak­inu á mis­tök­um þínum með því að segja við sjálfa(n) þig að þú haf­ir gert það besta sem þú gast með þá vitn­eskju sem þú bjóst yfir á þeim tíma og að núna ætl­ir þú að gera bet­ur. Þessi áminn­ing get­ur ögrað þínum innri gagn­rýn­anda og minnt þig á að þú ert verðug(ur) fyr­ir­gefn­ing­ar.

Með þessu sýn­ir þú ákveðna iðrun og er þetta ákveðin leið til að viður­kenna mis­tök­in. Þú get­ur sagt þetta við ein­hvern ann­an, skrifað þetta niður eða sagt þetta upp­hátt við sjálfa(n) þig.

Ekki gleyma að fyr­ir­gefn­ing er ferli

Hluti af því að sjálfs­fyr­ir­gefn­ing get­ur virst svo óljós er að hún mynd­ast ekki sjálf­krafa við það eitt að segja orðið fyr­ir­gefðu. Fyr­ir­gefn­ing er virkt ferli og get­ur kraf­ist end­ur­tekn­ing­ar.

Það gæti þurft meira til en ein­falda möntru eða stutt sjálfstal til að losa um gremj­una gagn­vart sjálf­um þér. Kannski þarftu að vinna með sál­fræðingi eða öðrum meðferðaraðila til að leiðbeina þér í ferl­inu.

Að und­an­skildu því þá þarftu á end­an­um að sýna þol­in­mæði. Fyr­ir­gefn­ing er ferðalag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda