Í daglegri meðferð vegna Lyme-sjúkdómsins

Bella Hadid tekur sér frí frá sviðsljósinu til að sinna …
Bella Hadid tekur sér frí frá sviðsljósinu til að sinna heilsunni. AFP/Dimitrios Kambouris

Fyr­ir­sæt­an Bella Hadid fer dag­lega í meðferð vegna Lyme-sjúk­dóms­ins. Hef­ur hún í kjöl­farið tekið sér frí frá sviðsljós­inu.

Heim­ild­armaður Entertain­ment Tonig­ht staðfest­ir þetta, en orðróm­ur var um að hún væri í áfeng­is­meðferð. Sam­kvæmt heim­ild­ar­mann­in­um er það af og frá. Hadid hætti hins veg­ar að drekka af sjálfs­dáðum fyr­ir níu mánuðum síðan.

Ann­ar heim­ild­armaður banda­ríska vef­miðils­ins seg­ir að hún hafi ákveðið að taka sér verðskuldað frí til að meðhöndla sjúk­dóm­inn og að hún hafi aldrei átt við áfeng­is- eða fíkni­efna­vanda­mál að stríða.

Bella Hadid er ein af þekktustu fyrirsætum heims.
Bella Hadid er ein af þekkt­ustu fyr­ir­sæt­um heims. AFP/​Ju­lien de Rosa

Hadid greind­ist með Lyme-sjúk­dóm­inn árið 2012 og hef­ur síðan þá talað op­in­skátt um veik­indi sín. Sam­kvæmt Heilsu­veru er Lyme-sjúk­dóm­ur­inn smit­sjúk­dóm­ur sem berst í menn eft­ir bit sýkts skóg­armít­ils, en hann er ekki land­læg­ur á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda