Skilja símana eftir heima þegar farið er í frí

Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir og Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son prýða forsíðu Heilsublaðs …
Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir og Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son prýða forsíðu Heilsublaðs Morgunblaðsins. mbl.is/Arnþór Birkisson

Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir einkaþjálf­ari og Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son áhrifa­vald­ur kynnt­ust fyrst í World Class fyr­ir nokkr­um árum. Ástin bankaði upp á fyr­ir al­vöru fyr­ir ný­lega en henni fylgdi sömu­leiðis óum­beðin at­hygli sem þau tak­ast á við sam­an. Þau prýða forsíðu Heilsu­blaðs Morg­un­blaðsins sem kom út í dag. 

Í viðtal­inu tala Haf­dís og Kristján um heils­una, ást­ina og hvernig þau kynnt­ust. En hvað skyldu þau gera til þess að hlaða batte­rí­in?

„Við fór­um mikið á hús­bíl bara við tvö þó það er ekki nema klukku­tíma út úr bæn­um. Við för­um til að kúpla okk­ur aðeins út og tök­um ekki sím­ana með. Við erum með leynisíma sem strák­arn­ir eru bara með núm­erið í ef eitt­hvað er, fjöl­skyld­an get­ur alltaf náð í okk­ur,“ seg­ir Haf­dís.

Er það ekki erfitt?

„Því fylg­ir smá rass­sviti til að byrja með en venst hægt og ró­lega. Við erum líka kom­in með þá reglu að ef við för­um til út­landa eða í frí þá skilj­um við sím­ann eft­ir heima. Þeir eru al­veg tak­markaðir fyr­ir utan kannski mynda­vél­ina. Við vilj­um vera sam­an þegar við erum sam­an,“ seg­ir Kristján

Stefna út

„Við erum að stefna á að flytja út. Á næsta ári þá er mark­miðið okk­ar að vera kom­in út,“ seg­ir Haf­dís þegar þau eru spurð hvernig framtíðin lít­ur út. Þau horfa annað hvort til Dan­merk­ur eða Ítal­íu.

Af hverju?

„Það eru miklu fleiri tæki­færi af því sem við vilj­um gera,“ seg­ir Kristján. 

Hug­mynd­in um að kom­ast í burtu frá áreit­inu á Íslandi finnst þeim ekki slæmt held­ur.

„Það leiðin­leg­asta sem ég geri er að fara í búðina. Áður en ég kynnt­ist hon­um fór ég ekki í búðina fyrr en kort­er í lok­un en eft­ir að ég byrjaði með hon­um snar­versnaði það,“ seg­ir Haf­dís sem hélt að hún væri kom­in með fé­lags­fælni en sál­fræðing­ur tók fyr­ir það. Það er hins veg­ar auðvelt að skríða inn í skel­ina þegar áreitið er mikið. 

Nán­ar er fjallað um málið í Heilsu­blaði Morg­un­blaðsins í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda