Svona kemur Sunneva sér í rútínu eftir sumarið

Sunneva Einarsdóttir hugsar vel um heilsuna og þykir fátt betra …
Sunneva Einarsdóttir hugsar vel um heilsuna og þykir fátt betra en að vera í góðri rútínu. Samsett mynd

Áhrifa­vald­ur­inn og einkaþjálf­ar­inn, Sunn­eva Ein­ars­dótt­ir, legg­ur mikið upp úr því að huga vel að heils­unni. Hún fylg­ir alltaf sömu morg­un­rútín­unni og byrj­ar alla daga á hreyf­ingu, en þar að auki þykir henni mik­il­vægt að huga vel að mataræðinu, svefn­in­um og and­legu heils­unni.

Sunn­eva lum­ar á nokkr­um skot­held­um ráðum sem hafa auðveldað henni að koma sér aft­ur í rútínu eft­ir sum­arið, en þar að auki er hún með áskor­un í gangi á In­sta­gram-reikn­ingi sín­um þar sem hún hvet­ur fylgj­end­ur sína til að hreyfa sig og stunda úti­vist.

Hvernig er morg­un­rútín­an þín?

„Ég byrja alla daga á því að klæða mig strax í æf­ing­ar­föt þar sem það hvet­ur mig til að hreyfa mig. Svo geri ég húðrútín­una mína, fylli á vatns­brús­ann, set hljóðbók eða hlaðvarp í eyr­un og fer út með hund­inn minn, Bruce. Mér finnst lang­best að byrja dag­inn minn á göngu­túr til þess að vakna al­menni­lega, byrja skref­in og fá smá „who­lesome“ morg­un úti í fersku lofti. Þegar ég er búin að ganga með Bruce fer ég beint á æf­ingu.“

Sunneva byrjar alla daga á hreyfingu, en eftir að hafa …
Sunn­eva byrj­ar alla daga á hreyf­ingu, en eft­ir að hafa farið í göngu­túr með Bruce fer hún beint á æf­ingu.

Hvernig er kvöldrútín­an þín?

„Ómiss­andi part­ur af kvöldrútín­unni minni er að elda góðan mat og fara í göngu­túr með Bruce, en mér finnst alltaf best að fara út að ganga eft­ir kvöld­mat. Það hjálp­ar bæði melt­ing­unni og blóðsykr­in­um sem eru tveir hlut­ir sem hafa áhrif á góðan svefn. 

Sunneva er mikill matgæðingur og þykir gaman að töfra fram …
Sunn­eva er mik­ill mat­gæðing­ur og þykir gam­an að töfra fram ljúf­fenga og holla rétti í eld­hús­inu.

Ég er með mark­mið að ná 10 þúsund skref­um alla daga þannig ég geng yf­ir­leitt þar til ég hef náð því. Mér finnst smá van­metið hér á Íslandi að fara í göngu­túr, það er ekk­ert meira nota­legt en að vera með góða bók í eyr­un­um, ganga um og vera með sjálf­um sér.“

Hundurinn Bruce nýtur góðs af markmiði Sunnevu.
Hund­ur­inn Bruce nýt­ur góðs af mark­miði Sunn­evu.

Ert þú með æf­ing­ar­rútínu sem þú reyn­ir að fylgja?

„Ég æfi yf­ir­leitt alltaf á morgn­anna og veit ekk­ert betra en að byrja dag­inn minn á hreyf­ingu. Hefðbund­in rækt­ar­rútína hjá mér er að byrja á stiga­vél­inni í 15 til 20 mín­út­ur, taka svo 3 til 4 HIIT (e. high in­tensity in­terval train­ing) hringi með góðum þyngd­um og lóðum blandað við smá „car­dio“, taka smá skokk í sirka 10 mín­út­ur og enda alltaf á góðum kviðæf­ing­um og teygj­um.

Sunneva leggur áherslu á að stunda fjölbreytta hreyfingu.
Sunn­eva legg­ur áherslu á að stunda fjöl­breytta hreyf­ingu.

Ég reyni að æfa 4 til 7 sinn­um í viku, en ég tek 3 til 5 æf­ing­ar þar sem ákefðin er mik­il og svo 2 til 4 ró­legri æf­ing­ar sem „acti­ve reco­very“. Ég er ekki bara að mæta í rækt­ina held­ur er ég að hreyfa mig mjög fjöl­breytt. Einn dag­inn get­ur það verið hlaup, ann­an Boxfit-tími, hinn World­fit-tími, hinn „legday“, hinn píla­tes, hinn tabata og svo einn sem ég fer bara að ganga eða geri „car­dio“. Það eina sem skipt­ir máli er að hreyfa sig, hlusta á lík­amann og velja hreyf­ingu sem þú hef­ur gam­an að. 

Á dög­um þegar mér líður mjög „un­moti­vated“ þá finnst mér lang­best að skrá mig í opna tíma í World Class þar sem maður bara mæt­ir og þarf ekki að hugsa held­ur bara fylgja þjálf­ar­an­um.“

Að sögn Sunnevu er mikil hvatning í því að skrá …
Að sögn Sunn­evu er mik­il hvatn­ing í því að skrá sig í hóp­tíma.

Ertu með svefn­rútínu sem þú reyn­ir að fylgja?

„Á full­komn­um degi reyni ég að vera kom­in upp í rúm milli klukk­an 21:30 og 22:00 og vera búin að slökkva á öllu í sein­asta lagi klukk­an 23:30. Mark­miðið er alltaf að reyna að ná 7 til 8 tíma svefni. 

Mér finnst yf­ir­leitt auðvelt að vakna á morgn­anna þar sem það er besti tím­inn fyr­ir mig til þess að æfa og dag­ur­inn minn er frek­ar ómögu­leg­ur ef ég næ ekki æf­ingu. Þannig mitt „pepp“ er að hreyfa mig og ég á auðvelt með að vakna vegna þess. Ég reyni yf­ir­leitt að „snooze-a“ ekki meira en tvisvar sinn­um en þá er ég búin að stilla vekj­ara­klukk­una 20 mín­út­um áður en ég þarf að vakna. 

Mesta hvatn­ing­in til þess að fara á morgu­næf­ing­ar að mínu mati er að vera með æf­ing­ar­fé­laga. Þú kannski „beil­ar“ á þína æf­ingu, en ekki á fé­lag­ann sem er vaknaður, mætt­ur og á von á þér. Finndu ein­hvern með þér í rútín­una, það ger­ir allt skemmti­legra og auðveld­ara!

Mér finnst líka mik­il hvatn­ing að skrá mig í tíma í World Class þar sem maður verður að mæta, ann­ars fer maður í skammakrók­inn. Þú get­ur ekki vaknað og „beilað“, mættu!“

Hvernig gekk þér að halda þér í rútínu í sum­ar?

„Það geng­ur mjög vel á sumr­in hjá mér þegar ég er á Íslandi en aðeins meira krefj­andi þegar maður er er­lend­is. 

Það er líka mik­il­vægt að muna að maður er í fríi og ekki pressa enda­laust á sig að taka svaka æf­ingu. Ég reyni yf­ir­leitt bara að finna hreyf­ingu sem pass­ar í um­hverfið, t.d. ganga, skokka eða synda í ein­hvern ákveðinn tíma. Svo lengi sem ég hreyfi mig eitt­hvað aðeins þá er ég bara góð, maður þarf líka að njóta frís­ins.

Ég tek alltaf með mér prótein er­lend­is þannig ég hef mögu­leik­ann á því að gera prótein­boost þegar mér líður eins og mig langi í það.“

Sunneva var dugleg að ferðast erlendis í sumar, en hún …
Sunn­eva var dug­leg að ferðast er­lend­is í sum­ar, en hún seg­ir mik­il­vægt að njóta þess líka að vera í fríi.

Ertu með ein­hver ráð fyr­ir þá sem vilja koma sér í rútínu eft­ir sum­arið?

„Mitt ráð er að finna hreyf­ingu sem þú hef­ur gam­an að. Finna skemmti­lega tíma, skrá þig á nám­skeið, fara reglu­lega í göngu­túra og svo fram­veg­is. Búðu til hóp með þeim sem lang­ar líka að koma sér af stað og hvetjið hvort annað áfram. 

Ekki hafa alla daga eins, hreyf­ing er hreyf­ing. Það þarf ekki að mæta í rækt­ar­sal­inn alla daga, þú get­ur tekið rækt­ina einn dag­inn, sund hinn dag­inn og skemmti­legt nám­skeið hinn.“

Sunneva mælir með því að fólk finni þá hreyfingu sem …
Sunn­eva mæl­ir með því að fólk finni þá hreyf­ingu sem þeim þykir skemmti­leg.

Þegar kem­ur að heilsu, hvað legg­ur þú mesta áherslu á?

„Mér finnst all­ir þess­ir hlut­ir hald­ast í hend­ur. Ef ég huga að hreyf­ingu, svefni og mataræði, þá skil­ar það mér góðri and­legri heilsu. Það fyrsta sem ég geri þegar mér líður illa með sjálfa mig er að skoða hvað af þess­um þrem­ur hlut­um ég er að vannæra. Til þess að líða vel lík­am­lega þarf að huga að þessu and­lega og öf­ugt. Mun­um að hugsa vel um okk­ur sjálf!

Ég drekk mikið vatn og miða við að drekka 2 til 3 lítra á dag. Ég tek líka inn víta­mín og prótein alla daga og er með nokk­urra skrefa húðrútínu.“

Til þess að fá öll vítamín og næringarefni sem hún …
Til þess að fá öll víta­mín og nær­ing­ar­efni sem hún þarf tek­ur Sunn­eva víta­mín og prótein­duft.

Hvað get þú sagt mér um 10 þúsund skrefa áskor­un­ina sem þú ert með?

„Að ganga 10 þúsund skref er meira and­legt held­ur en lík­am­legt að mínu mati. Maður verður stolt­ur að sjálf­um sér og líður bet­ur lík­am­lega að vera dug­leg­ur að standa upp í staðinn fyr­ir að hanga við skrif­borðið all­an dag­inn. Þetta snýst ekki um að grenn­ast held­ur líka um blóðsyk­ur­inn og and­lega heilsu fyr­ir mig.

Ég tók fyrst þátt í þess­ari áskor­un í heims­far­aldr­in­um og sá þá að ég var að ganga svo lítið dag­lega. Þarna var ekk­ert opið og maður gat lítið hreyft sig. Ég byrjaði að taka þessa áskor­un á In­sta­gram inn á milli og það voru marg­ir sem tóku þátt og voru með! Síðan ég byrjaði á þess­ari áskor­un hef­ur dag­leg­ur skrefa­fjöldi hækkað tölu­vert hjá mér og þrátt fyr­ir að vera ekki að skora á sjálfa mig þá er þetta komið inn í rútínu og ég næ yf­ir­leitt 10 þúsund skref­um án þess að reyna það.

Ég byrjaði svo aft­ur í apríl að deila þessu og hvetja fólk til þess að gera áskor­un­ina með mér. Mér finnst gam­an að hvetja fólk áfram að hreyfa sig og huga að heils­unni.“

Sunneva notar heilsuúr sitt til þess að mæla skrefin.
Sunn­eva not­ar heilsu­úr sitt til þess að mæla skref­in.

Ertu með ein­hver ráð fyr­ir þá sem vilja taka þátt í þess­ari áskor­un?

„Það er alls ekki fyr­ir alla að ganga 10 þúsund skref á dag en mitt ráð er að sjá hvað þú ert að taka mörg skref dag­lega og byrja á því að bæta 2 þúsund til 3 þúsund skref­um í viðbót á dag ef þú ert að ganga langt und­ir 10 þúsund skref.“

10 ráð Sunn­evu til þess að ná 10 þúsund skref­um á dag

  1. Vakna fyrr og byrja dag­inn á smá göngu­túr eða skokki
  2. Standa upp að minnsta kosti einu sinni á klukku­tíma og ganga aðeins um
  3. Þegar það er smá pása í skól­an­um eða vinn­unni – í staðinn fyr­ir að sitja og skoða sím­ann stattu þá upp og labbaðu um á meðan þú skoðar sím­ann, þó það sé bað labba í hringi.
  4. Gerðu það að vana að ganga í 10 mín­út­ur eft­ir máltíð. Þú nærð hell­ing af skref­um og það er frá­bært fyr­ir blóðsyk­ur­inn!
  5. Leggðu bíln­um aðeins lengra frá en vana­lega, ekki stytta þér skref­in! Horfðu á björtu hliðina þegar það er ekk­ert stæði ná­lægt – at le­ast you're gett­ing your steps in!
  6. Hús­verk­in eru ekki eins leiðin­leg þegar maður er með skrefa­mark­mið! Út með ruslið? Skref. Ganga frá? Fara með eitt­hvað í geymsl­una? Skref! Ryk­suga? Skúra? Bingó!
  7. Farðu í kvöld­göngu. Hvað er meira „who­lesome“ en góð hljóðbók eða ganga með maka, vini eða fjöl­skyldu, eða jafn­vel skrolla TikT­ok.
  8. Núna ert þú já mann­eskj­an þegar ein­hver biður þig um eitt­hvað sem krefst þess að labba, t.d. labba að sækja eitt­hvað, bera eitt­hvað eða gera eitt­hvað sem læt­ur þig standa upp!
  9. Taktu stig­ann en ekki lyft­una þegar það er hægt! Að minnsta kosti hluta af stig­an­um.
  10. Æfing! Að æfa bæt­ir alltaf inn skref­um í dag­inn. Auka „car­dio“ er alltaf plús!
Sunneva hvetur alla til að hreyfa sig og huga að …
Sunn­eva hvet­ur alla til að hreyfa sig og huga að heils­unni. Ljós­mynd/​Hlyn­ur Hólm
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda