Sefur í gistiskýlinu og langar helst að deyja

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Gunn­ar Ingi Val­geirs­son held­ur úti viðtalsþátt­un­um Lífið á biðlista. Nýj­asti viðmæl­andi hans er ennþá í neyslu, er heim­il­is­laus og get­ur hallað sér í gisti­skýl­inu. Hann tók með sér rauðvíns­belju í viðtalið og seg­ir að hann drekki nokkra lítra af víni á dag.

    „Ég drekk svo mikið magn að það er ógeðslegt. Ég veit ekki í hvers vegna í and­skot­un­um ég er á lífi. Ég drekk marga lítra á dag.“

    Aðspurður að því hvað þetta ástand er búið að vara lengi seg­ist hann vera bú­inn að vera svona í meira og minna í 20 ár. 

    „Ég byrjaði mjög ung­ur að fikta. Ég man eig­in­lega aldrei eft­ir mér öðru­vísi en með kvíða. Ég er mjög lík­lega með und­ir­liggj­andi geðsjúk­dóma. Ég veit að þetta er skrýtið að segja þetta,“ seg­ir hann. 

    Þegar hann var yngri leitaði hann sér hjálp­ar hjá geðlækn­um en seg­ir að eina sem þeir gerðu hafi verið að setja hann á lyf sem létu hon­um líða öm­ur­lega. Hann seg­ir að lyf­in hafi haldið hon­um sof­andi. 

    „Þeir voru bara að deyfa mig,“ seg­ir hann. 

    Hann seg­ist hafa fundið fyr­ir vellíðan í fyrsta skipti sem hann drakk því þá hvarf kvíðinn. Ástandið er ekki þannig í dag og þegar hann fer að sofa á kvöld­in í gisti­skýl­inu ósk­ar hann þess að hann vakni ekki aft­ur. Hann seg­ir að ástandið í gisti­skýl­inu sé ekki gott. Þar sé fólk í geðrofi og það séu spaut­ur og blóð út um allt. Þar séu all­ir á biðlista. 

    Lífið á biðlista

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert

    Spurt og svarað

    húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

    sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

    einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

    endurskoðandi svarar spurningum lesenda

    Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

    hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

    svarar spurningum um lögfræðileg mál

    lýtalæknir svarar spurningum lesenda