„Ég elska að byrja daginn á próteinríkum morgunmat“

Katrín Björk Gunnarsdóttir hefur mikinn áhuga á heilsu og leggur …
Katrín Björk Gunnarsdóttir hefur mikinn áhuga á heilsu og leggur mikið upp úr því að lifa heilbrigðum lífsstíl. Samsett mynd

Katrín Björk Gunn­ars­dótt­ir er bú­sett í Kaup­manna­höfn ásamt kær­asta sín­um Malachi Mor­se og starfar þar sem sér­fræðing­ur í markaðsmá­l­um. Hún hef­ur alla tíð haft mik­inn áhuga á heilsu og lagt sig fram við að lifa heil­brigðum lífs­stíl.

Katrín hef­ur mikla ástríðu fyr­ir hreyf­ingu og er dug­leg að stunda fjöl­breytta lík­ams­rækt, allt frá cross­fit og lyft­ing­um yfir í píla­tes og göng­ur. Áhugi henn­ar á nær­ingu kviknaði hins veg­ar út frá maga­vanda­mál­um sem hún hef­ur verið að glíma við frá barns­aldri, en hún hef­ur bæði verið greind með iðra­bólgu (IBS) og vélinda­bak­flæði (GERD). 

„Ein­kenn­in eru misslæm, en þegar ég er sem verst hef­ur það mik­il áhrif á and­legu hliðina líka þar sem þetta hef­ur mjög mik­il áhrif á dag­legt líf,“ seg­ir Katrín. 

Katrín hefur verið búsett í Kaupmannahöfn í fjögur ár og …
Katrín hef­ur verið bú­sett í Kaup­manna­höfn í fjög­ur ár og kann afar vel við sig í borg­inni.

Þarf að hugsa mikið um mataræðið

Aðspurð seg­ist Katrín al­mennt hugsa mikið um mataræðið sitt, enda sé það nauðsyn­legt til þess að hún geti haldið melt­ing­unni í góðu standi. „Ég passa mig að borða mikið af hreinu próteini eins og fiski, kjúk­lingi, rækj­um og tófú ásamt græn­meti, fitu og trefj­um. Einnig skipt­ir hreyf­ing miklu máli og mér finnst mjög mik­il­vægt að stunda hreyf­ingu af ein­hverju tagi þris­var til fjór­um sinn­um í viku. Ég elska píla­tes, cross­fit, lyft­ing­ar og göngu­túra,“ seg­ir hún.

„Það helsta sem ég geri fyr­ir and­legu heils­una er að hug­leiða, en ég nota ýmis for­rit í sím­an­um til þess, t.d. Calm og In­sig­ht Timer. Þar er hægt að finna leidd­ar hug­leiðslur sem mér finnst virka best fyr­ir mig. Ég finn mik­inn mun þegar ég gef mér tíma til þess að hug­leiða þótt ég mætti vera enn dug­legri við það, en mér finnst það hafa svo góð áhrif á kvíða og stress,“ bæt­ir hún við.

Katrín leggur mikla áherslu á að borða hreint prótein ásamt …
Katrín legg­ur mikla áherslu á að borða hreint prótein ásamt græn­meti, fitu og trefj­um.

„Ég hef fengið grein­ing­ar en eng­ar al­menni­leg­ar lausn­ir“

Þrátt fyr­ir að hafa fengið grein­ing­ar á maga­vanda­mál­um sín­um seg­ist Katrín í raun ekki hafa fengið nein­ar al­menni­leg­ar lausn­ir sem hafa virkað fyr­ir hana frá lækn­um og sér­fræðing­um. „Ég hef prófað allskon­ar vör­ur og lyf til þess að kom­ast yfir vanda­mál­in en það virðist aldrei neitt virka,“ seg­ir hún.

„Ný­verið rakst ég hins veg­ar á nýj­ar vör­ur frá merk­inu Nor­d­bo fyr­ir til­vilj­un í apó­teki í Kaup­manna­höfn sem ég ákvað að prófa, enda er ég alltaf í leit að nýj­um lausn­um í von um að finna eitt­hvað sem virk­ar. Ég fann mun á melt­ing­unni minni, en ógleðin fór minnk­andi og uppþemb­an hvarf á inn­an við tveim­ur vik­um. Það var ótrú­legt fyr­ir ein­hvern sem hef­ur glímt við maga­vanda­mál í mörg ár og reynt allt,“ seg­ir hún.

„Það var þess vegna sem ég fékk áhuga á því að kynna þess­ar vör­ur fyr­ir sem flest­um og ákvað að byrja að selja vör­urn­ar á Íslandi. Eins og er þá erum við með vef­versl­un og erum að fara að selja vör­urn­ar í apó­tek­um og völd­um versl­un­um,“ seg­ir hún.

„Ég prófaði fyrst Mage-vítamínið fyrir magavandamál og þá byrjaði loksins …
„Ég prófaði fyrst Mage-víta­mínið fyr­ir maga­vanda­mál og þá byrjaði loks­ins eitt­hvað að breyt­ast. Í kjöl­farið fór ég að prófa fleiri vör­ur frá þeim.“

Fær sér alltaf sama morg­un­mat­inn

Aðspurð seg­ist Katrín hafa fundið hina full­komnu morg­un­rútínu, en hún fær sér alltaf sama morg­un­mat­inn. „Ég vakna, fer í sturtu og geri mig til fyr­ir vinn­una. Síðan bý ég til ban­anapönnu­kök­ur sem ég fæ bara ekki leið á. Ég nota einn ban­ana, tvö til þrjú egg, hafra, kanil og salt – set það allt í bland­ara og svo beint á pönn­una. Síðan toppa ég þær yf­ir­leitt með hnetu­smjöri og berj­um. Ein­falt, gott og sjúk­lega hollt!

Ég elska að byrja dag­inn á prótein­rík­um morg­un­mat, en það ger­ir gæfumun­inn fyr­ir mig inn í dag­inn. Svo tek ég alltaf „probiotics“ maga­gerla á morgn­anna og er þessa stund­ina að taka gerla frá Nor­d­bo, en maga­gerl­ar eru nauðsyn­leg­ir fyr­ir melt­ing­una mína en hafa einnig góð áhrif á and­legu heils­una, þ.e. stress og kvíða.“

Eftir að hafa fengið sér próteinríkan morgunmat tekur Katrín inn …
Eft­ir að hafa fengið sér prótein­rík­an morg­un­mat tek­ur Katrín inn Lacti Mood „probiotics“ maga­gerla.

Kvöldrútína Katrín­ar byrj­ar síðan alltaf á elda­mennsku, en hún veit fátt betra en að elda holl­an og góðan mat með kær­ast­an­um sín­um. „Rækju-taco eru í miklu upp­á­haldi þessa dag­ana, og svo slaka ég á yfir þætti eða bók og finnst líka gott að hug­leiða fyr­ir svefn­inn. Svo tek ég alltaf Magnesi­um frá Nor­d­bo sem hef­ur hjálpað mér mikið fyr­ir svefn ásamt víta­mín­um sem styrka heil­brigða þarma- og ristil­virkni,“ seg­ir hún.

Katrín veit fátt betra en að elda góðan og næringarríkan …
Katrín veit fátt betra en að elda góðan og nær­ing­ar­rík­an kvöld­mat með kær­asta sín­um.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda