Húðin varð betri við áfengisleysið

Susanna Reid stýrir Good Morning Britain á ITV.
Susanna Reid stýrir Good Morning Britain á ITV. Skjáskot/Instagram

Breska frétta­kon­an Sus­anna Reid seg­ir að lífið hafi umbreyst til hins betra eft­ir að hún hætti að drekka áfengi.

Reid sem er 53 ára hætti að drekka fyr­ir nokkr­um árum og ræddi upp­lif­un­ina í morg­unþætti Lorraine Kelly.

„Marg­ir eru að hætta að drekka í janú­ar og maður þarf ein­hverja ástæðu og hvatn­ingu,“ seg­ir Reid.

Stöðugt að fá ból­ur og út­brot

„Mín ástæða var sú að ég var stögugt að fá ból­ur og lækn­ir­inn minn sagði að það væri vegna þess að áfengi víkk­ar háræðarn­ar í húðinni. Ég var því gjörn að fá ból­ur, út­brot og rós­roða. Ég vildi ein­fald­lega sleppa við allt slíkt.“

Reid er þátta­stjórn­andi morg­un­sjón­varps­ins Good Morn­ing Britain og þarf því alltaf að vakna mjög snemma á morgn­ana.

„Maður þarf að hafa skýr­an haus til þess að geta mætt svona snemma til vinnu. Ég komst að því að bara einn drykk­ur um helg­ar gat verið lengi að fara úr kerf­inu mínu. Mér líkaði ekki sú til­finn­ing að vera alltaf pínu á taug­inni.“

Létt­ist öll við áfeng­is­leysið

„Þá hafði áfeng­is­leysið tölu­verð áhrif á þyngd­ina mína en ég missti nokk­ur kíló. En maður auðvitað bæt­ir áfeng­is­leysið upp með öðrum hlut­um. En al­mennt er áfengi ekk­ert nema hita­ein­ing­ar í fljót­andi formi. Ég mæli því með að fólk prófi þetta í mánuð og veiti því eft­ir­tekt hvaða áhrif það hef­ur á húð og heilsu.“

„Ég skála enn fyr­ir fólki við sér­stök tæki­færi en al­mennt er ég 99,9% áfeng­is­laus.“

Einn sem lét sig hverfa

Reid er ein­hleyp þriggja barna móðir og seg­ir að áfeng­is­leysið hafi haft áhrif á ástar­lífið.

„Ég og einn ná­ungi ætluðum sam­an á stefnu­mót og mér fannst það vera góð hug­mynd að minn­ast á það að ég drykki ekki enda flest­ir sem vilja drekka á stefnu­mót­um. Og eins og hendi væri veifað hvarf hann. Marg­ir halda að maður verði leiðin­leg­ur úti á líf­inu edrú. Mér er al­veg sama ég er bara þakk­lát að þurfa ekki að vakna þunn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda