„Ræktarrassar eru oft með ástarvængi og appelsínuhúð“

Katrín Edda Þorsteinsdóttir deildi mikilvægri áminningu til fylgjenda sinna á …
Katrín Edda Þorsteinsdóttir deildi mikilvægri áminningu til fylgjenda sinna á Instagram. Samsett mynd

Verk­fræðing­ur­inn og áhrifa­vald­ur­inn Katrín Edda Þor­steins­dótt­ir birti á dög­un­um færslu með mik­il­vægri áminn­ingu sem vakti mikla lukku á In­sta­gram. 

„Rem­ind­er að sixpackmag­ar og ræktarrass­ar eru oft með ástar­vængi og app­el­sínu­húð. Ps: get­um við öll verið sam­mála um að low rise rækt­ar­bux­ur þurfa aldrei að koma aft­ur í tísku? (bless 2012),“ skrifaði hún í færsl­unni og birti röð af sam­sett­um mynd­um sem sýna ólíkt sjón­ar­horn af sama lík­am­an­um.

Af viðbrögðunum að dæma virt­ust marg­ir þurfa á þess­ari áminn­ingu að halda og vakti færsla Katrín­ar Eddu því mikla lukku meðal fylgj­enda henn­ar. Einn fylgj­and­inn skrifaði: „Ætla að vista þetta og sýna 14 ára dótt­ur minni þetta. Takk!“ á meðan ann­ar skrifaði: „Þetta er svo geggjaður póst­ur! Og ég vona að hann nái til ALLRA ungra stúlkna um land allt (og þeirra eldri líka)“

View this post on In­sta­gram

A post shared by Katr­in Edda (@katr­in­edda)

Vilja sjá raun­veru­leik­ann

Á und­an­förn­um árum hef­ur færst í auk­ana að áhrifa­vald­ar um all­an heim birti færsl­ur eins og Katrín Edda birti. Slík­ar færsl­ur vekja oft­ar en ekki mikla lukku, en not­end­ur sam­fé­lags­miðla virðast marg­ir hverj­ir vera orðnir þreytt­ir á að sjá ein­ung­is glans­mynd áhrifa­valda á miðlin­um og kunna því að meta not­end­ur sem sýna hrá­an raun­veru­leik­ann. 

Fleiri áhrifa­vald­ar hafa birt mynd­ir eins og Katrín Edda þar sem þeir sýna raun­veru­leik­ann og hvernig lík­am­inn lít­ur út þegar hann er ekki upp­stillt­ur og ekki und­ir réttri lýs­ingu. 

Breski áhrifa­vald­ur­inn Haylay Madig­an hef­ur verið dug­leg að deila mynd­um af lík­ama sín­um frá mis­mun­andi sjón­ar­horn­um. Þá hafa áhrifa­vald­ur­inn Bree Leneh­an og Big­gest Looser-þjálf­ar­inn Jen Wi­der­strom einnig birt slík­ar mynd­ir 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda