Ágóðinn af stöðugleikanum

Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar.
Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar. mbl.is/Ásta Kristjánsdóttir

Ágústa John­son fram­kvæmda­stjóri Hreyf­ing­ar skrif­ar um gildi þess að hugsa vel um lík­ama og sál. Hún tók sam­an lista með 12 atriðum sem skipta máli ef fólk vill auka lífs­gæði sín. 

Á hverj­um degi, sum­ar, vet­ur, vor og haust nær­um við musterið okk­ar, eina skrokk­inn sem þarf að duga okk­ur út lífið.  Við vænt­an­lega þríf­um hann líka og burst­um tenn­urn­ar. Við vit­um og finn­um að það er nauðsyn­legt fyr­ir heilsu okk­ar og líðan. Hann er vart til sá sem læt­ur sér detta í hug að taka sum­ar­hlé frá þess­um lífs­bæt­andi, nauðsyn­legu dag­legu at­höfn­um.

Af því þú get­ur!

Í því sam­hengi er vert að benda á ann­an afar mik­il­væg­an þátt sem all­ir ættu einnig að sinna dag­lega alla ævi. Það er nefni­lega rækt­in!

Þú hef­ur lyft lóðum í vet­ur, byggt upp styrk og þrek. Þú ert stælt­ari, sterk­ari og hef­ur orku og krafta fyr­ir lífs­ins leik og at­hafn­ir. Hví ætt­ir þú að leggja lóðin niður í nokkra mánuði ef heils­an er fín og þú nýt­ur þeirr­ar gæfu að GETA tekið í járn­in og haldið áfram að efla þig og styrkja?  Lík­ami okk­ar þarfn­ast „viðhalds, rækt­un­ar og um­hyggju“ af ýmsu tagi all­an árs­ins hring ef vel á að vera. Þjálf­un er sann­ar­lega þar á meðal.

Stöðug­leiki skipt­ir sköp­um

Óum­deilt er að mik­il­væg­ur og sjálf­sagður hluti af dag­legu lífi manna er að hugsa vel um heils­una.  Styrkt­arþjálf­un ætti að vera hluti af lífi okk­ar allt árið um kring, alla ævi.   Að byggja upp og viðhalda góðum al­hliða vöðva­styrk breyt­ir ein­fald­lega líf­inu og get­ur haft gríðarlega já­kvæð áhrif á  lífs­gæði okk­ar.

Þjálf­un er ekki skamm­tíma­lausn eða skyndi­hjálp. Það vit­um við.

Lík­ams­rækt er í eðli sínu ekk­ert öðru­vísi en tann­hirða, hana þarf að stunda allt árið og um leið og þú hætt­ir miss­ir þú fljótt niður það sem þú hafðir fyr­ir að byggja upp. Rann­sókn­ir sýna að eft­ir 14 daga hlé frá æf­ing­um tap­ast styrk­ur hratt niður eft­ir það.  Rann­sókn­ir hafa sýnt  að byrj­end­ur sem höfðu lyft lóðum af krafti í  2 mánuði höfðu tapað niður að mestu styrk og þoli sem þau höfðu byggt upp, eft­ir 2ja mánaða hlé frá æf­ing­un­um.

Orka, kraft­ur, styrk­ur og gleði - þitt er valið

Góðu frétt­irn­ar eru að þú get­ur viðhaldið styrk, þreki og út­haldi með ástund­un í aðeins 20-30 mín 1-2x í viku. Ávinn­ing­arn­ir eru svo stór­kost­leg­ir og all­ir þínir!

Hér má benda á 12 atriði sem bæta líf þitt og heilsu. Ágóðinn af stöðug­leik­an­um er meiri en þú held­ur. 

  •   Auk­inn vöðvamassi
  •   Betri efna­skipta heilsa
  •   Auk­in grunn­brennsla
  •   Auk­in orka
  •   Betri líðan
  •   Meiri styrk­ur fyr­ir leik og störf
  •   Minni verk­ir
  •   Bætt beinþéttni
  •   Minni lík­ur á lífs­stíls­sjúk­dóm­um
  •   Bætt and­leg heilsa
  •   Aukið jafn­vægi og sam­hæf­ing
  •   Aukið sjálfs­traust

Fyr­ir utan allt hitt, bætt golfsveifla, auðveld­ari fjall­göng­ur, skapið létt­ara og svo fram­veg­is. 

Sí­fellt fleiri eru að bæt­ast í hóp þeirra sem lyfta lóðum allt árið um kring og halda sínu striki þrátt fyr­ir jól, páska og sum­ar­frí. Ekki þú vera þessi sem tek­ur risp­ur í rækt­inni og hætt­ir inn á milli.  Þessi sem dreg­ur það fram eft­ir haust­inu að byrja í rækt­inni eft­ir sum­ar­hlé og upp­lif­ir a.m.k ár­lega ergi­leg­heit­in við að þurfa enn á ný að byggja sig aft­ur upp með til­heyr­andi harðsperr­um og strengj­um.

Það hljóta all­ir að sjá hve af­skap­lega óskyn­sam­legt það er að sleppa tann­burst­un og lík­ams­um­hirðu í nokkra mánuði á ári.  Það er al­veg jafn óráðlegt að hætta í lík­ams­rækt­inni yfir sum­ar­mánuðina.

Sum­arið er tím­inn

Snúðu dæm­inu við í ár. Settu þér ný heilsu­rækt­ar mark­mið með hækk­andi sól. T.d. að geta bætt við þyngd­um í lyft­ing­ar­saln­um, geta tekið á sprett á bratt­ann.  Meiri orka, kraft­ur, út­hald og styrk­ur ger­ir lífið skemmti­legra, betra og lík­lega lengra. Þú hef­ur það í hendi þér!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda