Heilbrigður lífsstíll lykillinn að góðri húð

Róbert Freyr Samaniego er viðskiptafræðingur að mennt.
Róbert Freyr Samaniego er viðskiptafræðingur að mennt. mbl.is/Hákon Pálsson

Ró­bert Freyr Saman­iego hef­ur vakið mikla at­hygli á und­an­förn­um mánuðum. Hann er stofn­andi og eig­andi vörumerk­is­ins Done og setti á markað nýj­an ís­lensk­an mysu­próteindrykk í októ­ber síðastliðnum. Síðan þá hef­ur hann einnig farið á kost­um á sam­fé­lags­miðlin­um TikT­ok þar sem hann leyf­ir fólki að smakka drykk­inn.

Ró­bert hef­ur alla tíð verið áhuga­sam­ur um allt sem viðkem­ur heilsu og heil­brigðu líferni, en að hans sögn er mjög mik­il­vægt að hugsa vel um húðina, bæði með góðum vör­um og heil­brigðum lífs­stíl. Hann seg­ir reglu­lega hreyf­ingu, sánu, næg­an svefn og vatns­drykkju vera lyk­il­inn að góðri húð.

Hvernig hugs­ar þú um húðina?

„Ég held að ég hugsi bara nokkuð vel um húðina mína.“

Ertu með húðrútínu á morgn­ana?

„Já, ég er með mjög góða morg­un­rútínu. Ég fer í kalda sturtu og nota svo Moist­ure Sur­ge 100H Auto-Rep­len­is­hing Hydrator-kremið frá Cl­in­ique.“

Róbert notar olíulaust rakakrem frá Clinique bæði kvölds og morgna, …
Ró­bert not­ar olíu­laust rakakrem frá Cl­in­ique bæði kvölds og morgna, en kremið er með gelá­ferð og gef­ur húðinni góðan raka.

Ertu með húðrútínu á kvöld­in?

„Á kvöld­in skola ég alltaf húðina og set svo sama rakakremið frá Cl­in­ique á mig.“

Hversu mik­il­vægt er að hugsa vel um húðina að þínu mati?

„Mjög mik­il­vægt. Það er mjög mik­il­vægt að hafa heil­brigða húð og maður ger­ir það ekki bara með húðvör­um held­ur líka með heil­brigðum lífs­stíl eins og með því að drekka mikið vatn, borða heilsu­sam­leg­an mat og drekka próteindrykk­inn Done.“

Hef­ur þú þurft að stríða við ein­hver vanda­mál tengd húðinni?

„Já, ég er mjög viðkvæm­ur fyr­ir vör­um sem inni­halda ol­í­ur.“

Er eitt­hvað annað sem þú ger­ir fyr­ir húðina?

„Já, ég æfi reglu­lega, fer í sánu og svitna mikið. Það er mjög gott til þess að hreinsa húðina. Ég reyni að sofa í að minnsta kosti átta klukku­stund­ir á nóttu. Svo drekk ég að minnsta kosti tvo lítra af vatni á dag. Þetta er lyk­ill­inn að góðri húð.“

Hvernig er morg­un­rútín­an þín?

„Ég er yf­ir­leitt vaknaður klukk­an 8 á morgn­ana. Ég byrja dag­inn alltaf á kaldri sturtu og græja mig svo. Einnig er ég ný­bú­inn að fjár­festa í kaffi­vél og fæ mér alltaf góðan kaffi­bolla á morgn­ana.“

Hvað er fram und­an hjá þér?

„Að stækka og byggja upp vörumerkið Done.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda