Húðrútína sem inniheldur góðar vörur og jákvætt hugarfar

Aron Kristinn Jóhannsson segir rétt hugarfar hafa gert ótrúlega hluti …
Aron Kristinn Jóhannsson segir rétt hugarfar hafa gert ótrúlega hluti fyrir húðina á sér.

Listamaður­inn og viðskipta­fræðing­ur­inn Aron Krist­inn Jónas­son þurfti á sín­um yngri árum að díla við vanda­mál tengd húðinni og var sett­ur á sterkt bólu­lyf þegar hann var á síðasta ári í mennta­skóla. Í dag hef­ur hann fundið rútínu sem ger­ir húðina ljóm­andi og heil­brigða, en húðrútína hans inni­held­ur ekki ein­ung­is góðar vör­ur held­ur einnig rétt hug­ar­far.

Aron Krist­inn er meðlim­ur hljóm­sveit­ar­inn­ar Clu­bDub ásamt Brynj­ari Bark­ar­syni, en þeir hafa gefið út smelli á borð við Eina sem ég vil ásamt Aroni Can, Aquam­an og Clubbed Up. Þar að auki hef­ur hann vakið lukku á sam­fé­lags­miðlin­um TikT­ok að und­an­förnu þar sem hann birt­ir skemmti­leg mynd­skeið með já­kvæðum skila­boðum.

Hvernig hugs­ar þú um húðina?

„Það mik­il­væg­asta er að ég hugsa á hverj­um degi: „Ég er með full­komna húð, ég er með full­komna húð,“ og hún hlýðir. Ann­ars, í hvert skipti sem ég fer í sturtu nota ég Hydrat­ing Cle­anser frá Cera­Ve á and­litið. Eft­ir sturtu nota ég fyrst Hydro Boost-serumið frá Neutrogena, svo ber ég Daily Moist­uriz­ing Loti­on frá Cera­Ve á mig og loks set ég Total Re­vitalizer Eye Cream for Men frá Shiseido í kring­um aug­um. Ef svo ótrú­lega vill til að ég sé með bólu, sem ég fíla ekki, þá nota ég CC Col­or Cor­rect­ing Cream frá Lumene.“

Hér má sjá vörurnar sem Aron Kristinn notar.
Hér má sjá vör­urn­ar sem Aron Krist­inn not­ar. Sam­sett mynd

Ertu með húðrútínu á morgn­ana?

„Ég er ekki með neina morg­un­rútínu á vet­urna en á sumr­in nota ég dag­krem frá Cera­Ve sem er með sól­ar­vörn.“

En á kvöld­in?

„Á kvöld­in þríf ég hend­urn­ar, þurrka þær aðeins og nota svo rest­ina af vatn­inu til að skola and­litið smá. Ég nota eng­ar vör­ur á kvöld­in.“

Hversu mik­il­vægt er að hugsa vel um húðina að þínu mati?

„Það mik­il­væg­asta að mínu mati er að panikka ekki ef þú finn­ur að það sé að koma til dæm­is bóla held­ur hugsa: „Ég er með „juicy“ full­komna húð.“ Þá eru meiri lík­ur á að húðin hlýði en ef þú hugs­ar að hún verði „lé­leg“. Það er ótrú­legt hvað þetta hug­ar­far hef­ur gert fyr­ir húðina mína.“

Hef­ur þú þurft að stríða við ein­hver vanda­mál tengd húðinni?

„Já, ég var á einu sterk­asta bólu­lyfi sem er hægt að fara á, Decut­an, síðasta árið í mennta­skóla og hef glímt við að vera með „lé­lega“ húð.“

Er eitt­hvað annað sem þú ger­ir fyr­ir húðina?

„Ég borða ekki viðbætt­an syk­ur, sef í sjö til átta tíma hverja nótt, drekk nóg af vatni, tek fullt af víta­mín­um og bæti­efn­um og fer í sund og kalda pott­inn reglu­lega.“

Hvernig er morg­un­rútín­an þín?

„Ég vakna yf­ir­leitt um klukk­an 7.30 og hlusta á hljóðbók fyrsta hálf­tím­ann. Ég þakka guði fyr­ir dag­inn, fæ mér kaffi og les einn kafla í bók. Ég fer ekk­ert í sím­ann fyrr en ég hef skrifað mark­mið dags­ins og „affir­mati­ons“ í dag­bók.“

Hvað er fram und­an hjá þér?

„Meiri tónlist, fleiri TikT­ok, nýtt lífs­stíls­merki og margt, margt fleira.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda