Adam Ægir afhjúpar leyndarmálið að góðum árangri

Adam Ægir Pálsson byrjaði að æfa fótbolta aðeins þriggja ára …
Adam Ægir Pálsson byrjaði að æfa fótbolta aðeins þriggja ára gamall. Samsett mynd

Knatt­spyrnumaður­inn Adam Ægir Páls­son var byrjaður að sparka í fót­bolta um leið og hann lærði að ganga, en hann fór á fyrstu fót­boltaæf­ing­una þriggja ára gam­all og varð strax heillaður af íþrótt­inni. 

Núna spil­ar Adam með knatt­spyrnu­fé­lag­inu Val sem hafnaði í öðru sæti í Bestu deild karla á síðasta ári. Hann ætl­ar sér stóra hluti í ár og er með skýra stefnu, en árið 2021 varð hann bæði Íslands- og bikar­meist­ari með Vík­ingi og vill ólm­ur upp­lifa það aft­ur með Val.  

Adam Ægir er með stór markmið fyrir árið 2024!
Adam Ægir er með stór mark­mið fyr­ir árið 2024!

Hvað æfir þú marg­ar klukku­stund­ir á viku?

„Það er mis­jafnt eft­ir vik­um en ég myndi skjóta á að ég sé að æfa svona um 15 klukku­tíma á viku, en fót­bolt­inn er samt sem áður 24/​7 vinna.“

Æfingarvikurnar geta verið mismunandi, en Adam Ægir æfir í kringum …
Æfing­ar­vik­urn­ar geta verið mis­mun­andi, en Adam Ægir æfir í kring­um 15 klukku­stund­ir á viku. Ljós­mynd/​Krist­ín Hall­gríms­dótt­ir

Hvernig er morg­un­rútín­an þín?

„Ég vakna klukk­an sirka átta og fæ mér morg­un­mat – ég fæ mér alltaf hafra­graut með bön­un­um og kíví og þrjú egg. Það lang­mik­il­væg­asta í þessu er svo Collabinn minn sem ég byrja alla morgna á.“

Adam Ægir byrjar alla daga á góðum morgunmat.
Adam Ægir byrj­ar alla daga á góðum morg­un­mat.

Hvernig er hefðbund­inn dag­ur í þínu lífi?

„Hann er frek­ar ein­fald­ur. Ég vakna og fæ mér morg­un­mat um átta leytið og er svo á æf­ingu frá klukk­an 9.00 til sirka 13.00. Svo er mis­jafnt hvert ég fer að borða með strák­un­um í liðinu, en það má al­veg ein­hver fara að „sponsa“ þenn­an lunch!

Svo fer ég oft­ast í kaffi eða Collab með vin­um mín­um og fer svo heim í lögn. Seinni part­inn fer ég oft­ast í rækt­ar­sal­inn eða á ein­hvers kon­ar aukaæf­ingu, það fer eft­ir því hvaða dag­ur vik­unn­ar það er. Svo fer ég heim í kvöld­mat og enda dag­inn í sundi með Patta vini mín­um. Mér finnst gott að enda dag­inn í pott­in­um og taka saunu og kalda pott­inn, en það róar haus­inn eft­ir dag­inn og það verður auðveld­ara að sofna.“

Adam þykir gott að enda daginn á því að fara …
Adam þykir gott að enda dag­inn á því að fara í sund með vini sín­um Pat­rik Atla­syni, bet­ur þekkt­ur sem Pretty­boitjok­ko.

En keppn­is­dag­ur?

„Keppn­is­dag­ar eru aðeins öðru­vísi. Þeir byrja á morg­un­mat og svo er farið í rækt­ina uppi í Val í kring­um 11-leytið. Svo tek ég há­deg­is­mat og hvíli mig vel fyr­ir leik­inn. Þetta er frek­ar ein­fald­ur dag­ur – áhersl­an er á það að hvíla, borða og reyna að hugsa um eitt­hvað annað en leik­inn.“

Á keppnisdegi er áhersla lögð á hvíld, góða næringu og …
Á keppn­is­degi er áhersla lögð á hvíld, góða nær­ingu og að reyna að dreifa hug­an­um fyr­ir leik­inn.

Áttu þér upp­á­haldsminn­ingu úr fót­bolt­an­um?

„Já, ég held að það standi upp úr þegar ég varð bæði Íslands- og bikar­meist­ari árið 2021 með Vík­ingi. Það var mjög gam­an!“

Hver held­ur þú að sé lyk­ill­inn að því að þú haf­ir kom­ist á þann stað sem þú ert á núna?

„Ég æfði og lagði meira á mig en aðrir, 100%!“

Hve miklu máli skipt­ir hug­ar­far að þínu mati?

„Hug­ar­far skipt­ir mjög miklu máli. Það mik­il­væg­asta fyr­ir mig hef­ur verið að læra að stjórna of­hugs­un­um og að fara ekki of mikið upp og held­ur ekki of mikið niður.“

Adam Ægir segir rétt hugarfar vera gríðarlega mikilvægt fyrir íþróttafólk.
Adam Ægir seg­ir rétt hug­ar­far vera gríðarlega mik­il­vægt fyr­ir íþrótta­fólk.

Hvernig tekst þú á við stress og mót­læti tengt æf­ing­um og keppn­um?

„Ef ég er al­veg hrein­skil­inn þá finnst mér það vera veik­leiki hjá mér. En ég hef nýtt mér sál­fræðing, íþrótta­sál­fræðing og fleira en mætti klár­lega gera enn meira af því.“

Hvað finnst þér mest krefj­andi við að vera af­reksmaður í þinni íþrótt? En mest gef­andi?

„Það sem mér finnst vera mest krefj­andi er hvað þetta reyn­ir mikið á and­legu hliðina. Á hinn bóg­inn er mest gef­andi hvað þetta er gam­an og hvað maður hef­ur mikla ástríðu fyr­ir þessu.“

Fótboltinn getur verið krefjandi líkamlega en ekki síður andlega að …
Fót­bolt­inn get­ur verið krefj­andi lík­am­lega en ekki síður and­lega að sögn Adams.

Hvaða venj­ur legg­ur þú áherslu á og hvað finnst þér vera ómiss­andi?

„Maður er alltaf að reyna að læra meira og meira á hverj­um degi af þess­um eldri og reynd­ari leik­mönn­um, en það sem ég hef lært hingað til er að það er ekki bara nóg að æfa auka­lega held­ur þarf maður líka að fara snemma að sofa og mataræðið þarf að vera í lagi til að ná ár­angri.“

Patrik og Adam Ægir í góðum gír.
Pat­rik og Adam Ægir í góðum gír.

Ertu með ein­hver góð ráð fyr­ir ungt íþrótta­fólk sem vill ná langt?

„Ef þú legg­ur þig fram og æfir meira en all­ir aðrir þá mun þinni tími koma, þú þarft bara að vera þol­in­móð/​ur og bíða.“ 

Hvað er fram und­an hjá þér?

„Að verða Íslands- og bikar­meist­ari með Val!“

Það er spennandi tímabil fram undan hjá Adam Ægi!
Það er spenn­andi tíma­bil fram und­an hjá Adam Ægi!

Hvernig mynd­ir þú lýsa fata­stíln­um þínum?

„Ég myndi segja að fata­stíll­inn minn sé þæg­indi núm­er eitt, tvö og þrjú. Svo reyn­ir maður að vera smá ýkt­ur inn á milli.“

Fatastíll Adams Ægis snýst fyrst og fremst um þægindi.
Fata­stíll Adams Ægis snýst fyrst og fremst um þæg­indi.

Áttu þér upp­á­halds­merki? En upp­á­halds­búðir til að versla í?

„Ranra er klár­lega upp­á­halds­merkið mitt. Ég fer í Week­day og Nebraska, þær eru góðar á Íslandi alla­veg­ana.“

Ertu með ein­hverja húðrútínu?

„Já, ég nota Hydrat­ing Cle­an­se­ar frá Cera­ve til að þrífa húðina og set svo bara klass­íska rakakremið frá Cera­ve eft­ir það.“

Adam Ægir passar upp á að hugsa vel um húðina, …
Adam Ægir pass­ar upp á að hugsa vel um húðina, en hann not­ar bæði hreinsi og gott rakakrem.

Áttu þér upp­á­halds rak­spíra?

„Ég byrjaði að koma með Erba Pura frá Xerjoff til Íslands, en nú er ann­ar hver maður mætt­ur með hana – en góð er hún!“

Erba Pura frá Xerjoff er í miklu uppáhaldi.
Erba Pura frá Xerjoff er í miklu upp­á­haldi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda