Bresk stjarna varar við fitusogi

Malin Andersson breytti um lífsstíl og lagði allt sitt í …
Malin Andersson breytti um lífsstíl og lagði allt sitt í heilsuna. Skjáskot/Instagram

Breska Love Is­land-stjarn­an Mal­in And­ers­son var­ar fólk við lýtaaðgerðum. Í ný­legri færslu sinni á In­sta­gram sýn­ir hún mag­ann sinn sem henni finnst kekkj­ótt­ur og skrít­inn eft­ir fitu­sog og tvær meðgöng­ur.

„Þegar maður fór í fitu­sog fyr­ir sjö árum, eign­ast tvö börn en maður er samt með mjög skrítna húð á mag­an­um eft­ir fitu­sogið. Ég vil bara vara fólk við sem er að hugsa um að fara í fitu­sog, sér­stak­lega í Tyrklandi. Þetta er afrakst­ur­inn eft­ir sjö ár. Maður lif­ir og lær­ir. Skrítið hvernig ég hef lært að elska hvern krók og kima þrátt fyr­ir all­an sárs­auk­ann. Ég vil bara ekki að aðrir geri sömu mis­tök og ég,“ seg­ir And­ers­son í færslu sinni á In­sta­gram.



Malin Andersson hefur lært að elska líkamann sinn þrátt fyrir …
Mal­in And­ers­son hef­ur lært að elska lík­amann sinn þrátt fyr­ir mis­heppnað fitu­sog. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda