Nú er eitt vínglas á dag of mikið

Þarf alltaf að vera vín?
Þarf alltaf að vera vín? Ljósmynd/Colourbox

Í gegn­um tíðina hafa rann­sókn­ir gefið til kynna að eitt glas af rauðvíni á dag gæti haft já­kvæð áhrif á heils­una. Nú segja vís­ind­in annað.

Nýj­asta rann­sókn­in bend­ir á tölu­verða galla sem leynd­ust í fyrri rann­sókn­um.

Í fyrri rann­sókn­um var verið að bera sam­an fólk sem drakk í hófi við það fólk sem þurfti að hætta að drekka af heilsu­fars­leg­um ástæðum eða vegna áfeng­is­fíkn­ar. Sá hóp­ur var því í tölu­vert lak­ara ásig­komu­lagi.

„Með slík­um sam­an­b­urði lít­ur fólk sem drekk­ur í hófi mun bet­ur út heilsu­fars­lega séð en viðmiðun­ar­hóp­ur­inn,“ seg­ir Tim Stockwell doktor hjá kanadíska há­skól­an­um Victoria í viðtali við The Times en hann greindi um 107 rann­sókn­ir um áhrif áfeng­is á heilsu.

„Um leið og fyrr­um neyt­end­ur áfeng­is voru tekn­ir úr meng­inu þá komu eng­in já­kvæð tengsl á milli áfeng­isneyslu og heilsu. Það er í raun ekk­ert magn áfeng­is sem get­ur tal­ist hollt fyr­ir mann.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda