Komst í sitt besta form um sextugt

Fionu Lambert hefur aldrei liðið betur í eigin skinni.
Fionu Lambert hefur aldrei liðið betur í eigin skinni. Skjáskot/Instagram

Fiona Lambert ein­setti sér að kom­ast í sitt besta form rétt fyr­ir sex­tugt. Hún seg­ir aldrei of seint að snúa við blaðinu. Hún seg­ir sögu sína í The Times.

„Ég vildi fagna stóraf­mæl­inu með því að líða stór­kost­lega. Ég vildi grenn­ast og bókaði því mynda­töku á af­mæl­is­deg­in­um til þess að hafa gul­rót fyr­ir aug­un­um,“ seg­ir Lambert.

„Með því að huga að mat­ar­ræðinu náði ég að grenn­ast en það sem meira var þá fann ég að svefn­inn var orðinn mun betri, ég var full af orku og sjálfs­ör­yggi. Þvert á það sem maður held­ur um efri árin. Ég komst að því að ald­ur er eng­in af­sök­un. Ef ég kemst í gott form á þess­um aldri þá geta það all­ir.“

„Ég vildi fyrst og fremst eld­ast með reisn. Ég var aldrei góð í íþrótt­um þegar ég var yngri og ég er rétt far­in að átta mig á því hversu mik­il­vægt það er að vera í góðu formi og hversu góð áhrif það hef­ur á and­lega heilsu.“

Mik­il­vægt að hafa til­gang

„Það skipti sköp­um hjá mér að hafa ein­hvern til­gang þegar ég hóf þessa veg­ferð. Ég á aldraða for­eldra og hef séð með eig­in aug­um hvað það er mik­il­vægt að búa við góða heilsu og gott lík­am­legt at­gervi. Móðir mín er 81 árs og synd­ir tvisvar í viku og tek­ur 10 þúsund skref á dag.“

Þú get­ur alltaf fundið tíma

„Nú eru börn­in mín flutt að heim­an þannig að ég hef næg­an tíma. Það þýðir ekki að ég sé alltaf að. En ég get ekki notað þá af­sök­un leng­ur að ég sé of önn­um kaf­in. Ég fer í rækt­ina fjór­um sinn­um í viku og geng mjög mikið þess á milli. Þá tek ég stund­um tíu mín­útna skorp­ur í stof­unni heima. All­ir geta fundið tíu mín­út­ur af­lögu. Bara hætta að skrolla á sam­fé­lags­miðlum.“

Hafðu mark­miðin viðráðan­leg

„Það er til dæm­is gott að búa til ein­hvern tím­aramma með áþreif­an­leg­um mark­miðum. Það held­ur manni á tán­um. Passa bara að mark­miðin séu viðráðan­leg.“

Mataræðið verður að fylgja

„Það skipt­ir engu máli hversu dug­leg­ur maður er í rækt­inni ef maður tek­ur ekki mataræðið í gegn líka. Ég sleppti öll­um sykri í öllu formi, bæði ávöxt­um og mjólk­ur­vör­um. Til þess að viðhalda vöðvasassa borðaði ég prótein í hlut­falli við lík­amsþyngd. Þá drakk ég tvo lítra af vatni á dag og drakk aldrei áfengi. Ég skrifaði niður allt sem ég borðaði og sá fljótt að ég hafði alltaf legið á snakki all­an dag­inn og þar komu inn óþarfa hita­ein­ing­ar. Ég eldaði all­ar máltíðir frá grunni með fersk­um hrá­efn­um. Svo borðaði ég ekk­ert eft­ir klukk­an sjö á kvöld­in. Ég lagði líka áherslu á að borða hæg­ar og vera meðvitaðri um mat­inn sem ég var að inn­byrða.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda