Emmsjé Gauti edrú í fimm ár

Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti hefur verið án áfengis í fimm ár.
Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti hefur verið án áfengis í fimm ár. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Tón­list­armaður­inn Gauti Þeyr Más­son, bet­ur þekkt­ur und­ir sviðsnafn­inu Emm­sjé Gauti, hef­ur verið án áfeng­is í ár.

Í til­efni þess birti hann færslu á In­sta­gram-reikn­ingi sín­um þar sem hann sendi ást og hlýju til fylgj­enda sinna. 

„Í dag eru fimm ár síðan ég hætti að drekka. Fyr­ir mér snýst þetta um að láta sér líða vel, vinna í hlut­un­um og reyna að vera besta út­gáf­an af sjálf­um sér. Ást til ykk­ar allra,“ skrifaði hann í færsl­unni og birti mynd af sér á Ing­ólf­s­torgi í miðbæ Reykja­vík­ur.

Tón­list­armaður­inn opnaði sig í ein­lægu viðtali við blaðamann Morg­un­blaðsins í des­em­ber 2023 þar sem hann ræddi meðal ann­ars um ákvörðun­ina að hætta að drekka. 

„Mér hef­ur liðið alls kon­ar, en lífið breytt­ist mjög mikið. Ég sit miklu ör­ugg­ari í sjálf­um mér. Lík­am­leg­ir kvill­ar, eins og kvef og maga­verk­ir, hurfu. And­lega hliðin fór blúss­andi hátt upp, en það tók líka við sjálf­skoðun og það er ekk­ert auðvelt. Þannig að þetta hef­ur verið alls kon­ar en ég sé ekki eft­ir þeirri ákvörðun að hætta að drekka og mig lang­ar ekki í áfengi,“ sagði hann í viðtal­inu.

Smart­land ósk­ar hon­um til ham­ingju með áfang­ann!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda