Ertu aðeins fimm mínútum frá vellíðan?

Dr. Alphonsus Obayuwana kynnir nýja leið til að finna innri …
Dr. Alphonsus Obayuwana kynnir nýja leið til að finna innri hamingju. Federico Signorini/ Unsplash

Lækn­ir­inn, vís­indamaður­inn og ham­ingjuþjálf­ar­inn Dr. Alp­hons­us Obayuw­ana hef­ur upp­götvað ein­falda jöfnu sem get­ur borið kennsl á ham­ingju­semi ein­stak­linga, hverj­ir eru óham­ingju­sam­ir eða þjást og hverj­ir blómstra, hvers vegna og hvernig bregðast eigi við.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Ascot Media Group.

Á þessu ári náðu Banda­rík­in sögu­legu lág­marki í mældri ham­ingju á heimsvísu (World Happ­iness Report). Meg­in niðurstaðan skýrsl­unn­ar er að fleiri Banda­ríkja­menn eru óánægðari með líf sitt.

Fimm mín­útna þjálf­un

Upp­götv­un Dr. Obayuw­ana snýst um fimm mín­útna leið til að hjálpa ein­stak­ling­um að blómstra á hvaða stað sem þeir eru á í líf­inu. Mæliein­ing lækn­is­ins, hin svo­kallaða per­sónu­lega ham­ingju­vísittala (PHI), er sögð bylt­ing­ar­kennd og bygg­ist á 30 ára rann­sókn­um.

Mæliein­ing­in er kynnt í nýrri bók Dr. Obayuw­ana The Happ­iness Formula, þar sem dreg­in er fram sjálfs­hjálp­ar­rútína fyr­ir fólk til að ná og viðhalda ham­ingju.

Það sem er ólíkt með bók Dr. Oayuw­ana og öðrum bók­um um ham­ingju er að í stað þess að hamra á því hvað megi og hvað megi ekki gera, snýr frá­sögn­in að líf­inu sjálfu, sam­bönd­um fólks, von­um þess og ham­ingju. Þá eru til­finn­ing­ar fólks, ánægja og and­leg vellíðan í brenni­depli.

Hug­mynd Dr. Obayuw­ana um ham­ingj­ustuðul­inn nær aft­ur til árs­ins 1982 þegar hann þróaði aðra mæliein­ingu fyr­ir von og leiðir til að koma í veg fyr­ir sjálfs­víg.

Bók­in hef­ur hlotið gríðargóðar viðtök­ur og frá­bæra dóma gagn­rýn­enda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda