„Ég var með ógeðslegasta fjárhagskvíða“

Eva Mattadóttir er hér fyrir miðri mynd. Hún er gestur …
Eva Mattadóttir er hér fyrir miðri mynd. Hún er gestur hlaðvarpsins Í alvöru talað. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eva Matta­dótt­ir er gest­ur hlaðvarps­ins Í al­vöru talað sem er í um­sjón Lydíu Óskar Ómars­dótt­ur og Gullu Bjarna­dótt­ur. Eva er landsþekkt á Íslandi en hún held­ur úti hlaðvarpsþætt­in­um Normið ásamt Sylvíu Briem. Svo er hún markþjálfi og rit­höf­und­ur en hún gaf út barna­bók­ina Ég get þetta ásamt dótt­ur sinni. Þessa dag­ana er hún í end­ur­hæf­ingu hjá Virk eft­ir áfall sem hún varð fyr­ir þegar hún lenti í bíl­slysi. 

„Við höf­um aldrei verið eins tengd og við erum í dag í gegn­um sím­ana okk­ar en samt höf­um við aldrei verið jafnaftengd hvoru öðru. Mig lang­ar hjálpa for­eldr­um og börn­um þeirra að fær­ast nær. Sam­fé­lagið má al­gjör­lega taka eitt­hvað grett­i­stak núna í þess­um mál­um. And­leg vel­ferð for­eldra og hjálp og fræðsla til þeirra hef­ur mik­il áhrif á vel­ferð barna. Við þurf­um því að huga að for­eldr­un­um líka,“ seg­ir Eva sem lenti í bíl­slysi í lok árs 2022. Síðan þá hef­ur hún upp­lifað verki í lík­am­an­um og liðið illa. 

„Ég var svo hepp­in að vera með hlaðvarpið Normið þá þannig að ég var það mik­ill for­rétt­indapési að geta mætt í stúd­íó nokkr­um sinn­um í mánuði en fengið samt laun. Þannig að ég náði að lifa með verkj­un­um í sold­inn tíma og tekið því ró­lega. Ég kunni samt alls ekki að hvíla mig og gefa mér rými til þess að jafna mig,“ seg­ir hún.

Sylvía Briem og Eva Mattadóttir voru með hlaðvarpið Normið.
Sylvía Briem og Eva Matta­dótt­ir voru með hlaðvarpið Normið.

Var kort­er í kuln­un

Eva hef­ur ekki upp­lifað skömm yfir því að þurfa að vera í end­ur­hæf­ingu en seg­ir að það sé mögu­lega vegna þess að það hafi verið bíl­slys sem olli þessu en ekki streita.

„Ég ætla samt að segja það upp­hátt hér að ég var líka kort­er í að kulna. Ég áttaði mig samt alls ekki á því fyrr en eft­ir eitt ár að ég þyrfti virki­lega að taka á þessu verk­efni.“

Eva og Sylvía hættu með hlaðvarpið Normið og ætlaði sú fyrr­nefnda bara að halda áfram með lífið eins og áður. En það gekk ekki al­veg upp. 

„Það var ekki í boði að hætta. Ég ætlaði líka að gera þetta allt sam­an sjálf eins og svo marg­ar kon­ur. Ég fattaði líka alls ekki að ég mætti sækja um hjá Virk og gæti fengið end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri. Ég var með ógeðsleg­asta fjár­hagskvíða sem ég hef fundið á æv­inni og að reyna að synda í gegn­um lífið,“ seg­ir Eva.

Lydía Ósk Ómarsdóttir og Gulla Bjarnadóttir halda úti hlaðvarpinu Í …
Lydía Ósk Ómars­dótt­ir og Gulla Bjarna­dótt­ir halda úti hlaðvarp­inu Í al­vöru talað.

Fékk loks­ins hjálp

Eva upp­lifði mjög mikla verki frá hnakka og niður í neðra bak og leið hrika­lega illa.

„Ég sá samt ekki að ég gæti lagt verk­efn­in frá mér og beðið um hjálp. Oj, hvað mér leið illa. Ég sat við eld­hús­borðið, með kökk­inn í háls­in­um, kvíðann í bring­unni, eirðal­eysi í lík­am­an­um og í and­legri van­líðan. Al­gjör kvíðaklepri og full af hræðslu.“

Á þess­um tíma hafði Eva verið að leita leiða til þess að líða bet­ur á sama tíma og hún reyndi að halda áfram með líf sitt eins og ekk­ert hefði gerst. Hún hafði verið hjá lækn­um og sjúkraþjálf­ur­um en eng­in hafði tekið al­menni­lega utan um hana og fundið lausn­ir. Einu lausn­irn­ar sem henni hafði verið rétt voru verkjalyf. Svo loks­ins var hún svo hepp­in að lenda á nýj­um lækni á heilsu­gæsl­unni sem hún lýs­ir sem engli lífs síns.

„Hún er best og set­ur allt í gang. Sæk­ir um hjá Virk og kem­ur mér að hjá sál­fræðingi, osteopata og sjúkraþjálf­ara sem vinna sam­an sem teymi. Svo sæk­ir hún um end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri. Eft­ir þenn­an fyrsta tíma hjá henni fór ég út í bíl og ösk­ur­gráta,“ seg­ir Eva.

Þarna fékk Eva loks­ins hjálp og lausn­ir. Hún komst þannig hægt og ró­lega upp úr kvíðanum og hjálp­ar­leys­inu og fór að taka heils­una bet­ur í sín­ar hend­ur.

„Ég var bara búin að vera ofan í þess­ari holu, en þarna fékk ég aðstoð við að kom­ast upp úr henni loks­ins.“

Ásamt því að setja hend­ur upp í loft og biðja um hjálp þá nýtti Eva bæn og hug­leiðslu til þess að kom­ast út úr þessu ástandi.

„Ég veit að þetta svar er öm­ur­lega leiðin­legt að heyra fyr­ir suma. En það sem ég þurfti að gera var að stunda bæn og hug­leiðslu róa tauga­kerfið með önd­un. Það er galið hvað ger­ist í lík­am­an­um mín­um þegar ég hægi á önd­un, bið al­mættið um hjálp og hug­leiði.“

Tauga­kerfið fór í vit­leysu

Það kom Evu á óvart hversu mik­il áhersla er lögð á að róa tauga­kerfið í end­ur­hæf­ing­unni.

„Tauga­kerfið fór í fokk í bíl­slys­inu. Öll varn­ar­viðbrögð í hálsi og lík­am­an­um fóru af stað, lík­am­inn læsti sér. Þess vegna er mik­il áhersla lögð á það við mig að anda og róa tauga­kerfið. Ég lærði til dæm­is að nota önd­un sem verkj­astill­ingu.“

Eva er mjög ánægð með þá þjón­ustu sem hún hef­ur fengið hjá Virk þar sem hún fær hjálp frá margs kon­ar fagaðilum sér að kostnaðarlausu.

„Virk er geggjaðasta batte­rí sem ég hef kynnst á Íslandi. Þarna fær maður tæki­færi og rými til þess að byggja sig upp.”

Hægt er að hlusta á þátt­inn hér fyr­ir neðan:

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda