Þegar fólk leitar frekar til miðla en sálfræðinga

Það færist í vöxt í Bretlandi að fólk leiti frekar …
Það færist í vöxt í Bretlandi að fólk leiti frekar til miðla en til sálfræðings. Vinicius Amnx/Unsplash

„Já, ég leitaði til miðils og ekki í fyrsta sinn. Þrátt fyr­ir að hafa efa­semd­ir um ágæti þeirr­ar starfs­grein­ar þá leita ég reglu­lega í slíka fundi,“ seg­ir Kay­leigh Dray pistla­höf­und­ur á vef­rit­inu The Styl­ist. Þar fjall­ar hún um hvernig kon­ur eru í aukn­um mæli að leita til miðla til þess að setja hlut­ina í sam­hengi, sam­hliða hefðbundn­um sam­talsmeðferðum.

„Eitt sinn taldi miðill upp furðuná­kvæm­ar lýs­ing­ar á lífi mínu og gaf mér svo stein­hörð sam­bands­ráð í kjöl­farið. Líf mitt lend­ir stund­um á hindr­un og skila­boð að hand­an veita mér staðfest­ingu á hvert skal haldið í fram­hald­inu,“ seg­ir Dray.

Tarot-spil njóta vinsælda.
Tarot-spil njóta vin­sælda. Tengy­art Voe/​Unsplash

Fjórðung­ur Breta leit­ar til miðla

„Ég er ekki sú eina. Sam­kvæmt könn­un­um hef­ur fjórðung­ur Breta leitað til miðla. Árið 2023 var New York Post með um­fjöll­un þar sem kom í ljós að sí­fellt fleiri kjósa frek­ar að fara til miðils en sál­fræðings. Þá hef­ur Guar­di­an einnig veitt þess­ari þróun eft­ir­tekt og fjallað um þá til­hneig­ingu fólks að sam­eina miðlaheim­sókn­ir við hefðbundna sál­fræðimeðferð.“

„Oft taka miðlar það fram að þeir spá ekki fyr­ir framtíðina held­ur segja manni aðeins það sem maður þarf að vita akkúrat núna. Stund­um tek­ur það tíma fyr­ir mann að meðtaka skila­boðin en ég hef alltaf fundið eitt­hvað gagn­legt í því sem þeir segja. Hug­ur­inn verður skýr­ari og ég sé að ég er að stefna rétt. Þá verð ég einnig minna kvíðin. Maður fær yf­ir­sýn yfir lífið og skil­ur heim­inn bet­ur. Maður fær þarna tæki­færi til þess að end­ur­spegla sig í hlut­un­um og hvernig gjörðir manns hafa áhrif á leiðirn­ar sem farn­ar eru.“

Na­talia Blauth/​Unsplash

Hvers vegna leit­ar fólk til miðla? 

Sagt er að marg­ar ástæður séu fyr­ir því að fólk leiti frek­ar til miðla.

„Biðlist­ar eft­ir sál­fræðimeðferð eða aðrar meðferðir geta verið lang­ir. Þá eru hefðbundn­ar meðferðir einnig mjög dýr­ar og því er skilj­an­legt að fólk leiti annarra leiða til þess að fá skarp­ari skiln­ing á aðstæðum sín­um.“

Lækn­ar taka samt fram mik­il­vægi þess að sé ein­stak­ling­ur að glíma við áföll og rask­an­ir þá sé nauðsyn­legt að taka á þeim und­ir hand­leiðslu fagaðila. 

„Stund­um get­ur þetta virkað vel sam­an. Miðlar og spá­dóm­ar geta virkað hvetj­andi á fólk til þess að setja heil­brigði sitt í for­gang. Það að það sé til ein­hver æðri mátt­ur get­ur hug­hreyst fólk og veitt þeim frið. Hefðbundn­ar meðferðir geta gefið fólki tól til þess að skilja og sætt­ast við at­b­urði fortíðar­inn­ar. Miðils­fund­ir og spá­dóm­ar geta hjálpað til þess að byggja ákveðinn ramma fyr­ir framtíðina og ýta und­ir per­sónu­leg­an þroska.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda