„Við finnum mikinn áhuga á íslenskum hráefnum“

Katrín Amni Friðriksdóttir framkvæmdastjóri og eigandi Iceherbs og Protis.
Katrín Amni Friðriksdóttir framkvæmdastjóri og eigandi Iceherbs og Protis.

Katrín Amni Friðriks­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri og eig­andi Iceher­bs og Prot­is, er stödd í Barcelona þar sem hún kynn­ir ís­lensk víta­mín á Vita­foods Europe sem er ein stærsta fæðubóta-og nátt­úru­vöru­sýn­ing heims í dag. Í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu kem­ur fram að þetta sé stórt skref fyr­ir fyr­ir­tækið. 

Iceher­bs bygg­ir á ís­lensk­um jurt­um og nátt­úru­leg­um inni­halds­efn­um, en Prot­is er ný, hrein víta­mín- og kolla­genlína sem legg­ur áherslu á gæði og virkni.

Allt kolla­genið í Prot­is-vör­un­um kem­ur frá Nordwell, ís­lensk­um fram­leiðanda sem einnig er á sýn­ing­unni að kynna hágæða kolla­gen unnið í há­tækni­verk­smiðju á Íslandi.

„Það er virki­lega já­kvætt að fleiri ís­lensk fyr­ir­tæki séu far­in að vinna sam­an á er­lend­um vett­vangi,“ seg­ir Katrín Amni og bæt­ir við:

„Við finn­um mik­inn áhuga á ís­lensk­um hrá­efn­um og vörumerkj­um sem leggja áherslu á gæði, gagn­sæi og upp­runa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda