Hver er ástæðan fyrir ofsakvíða?

Tinna Rut Torfadóttir sálfræðingur á sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda …
Tinna Rut Torfadóttir sálfræðingur á sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá manni sem veltir fyrir sér ástæðunni fyrir ofsakvíða. Samsett mynd

Tinna Rut Torfa­dótt­ir sál­fræðing­ur á sál­fræðistof­unni Sál­ar­líf svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hún spurn­ingu frá manni sem velt­ir fyr­ir sér ástæðunni fyr­ir ofsa­kvíða.

Sæl Tinna.

Hver er ástæðan fyr­ir ofsa­kvíða og er til lækn­ing við hon­um?

Kveðja,

E

Sæll 

Ofsa­kvíði (e. panic disor­der) er geðrösk­un sem ein­kenn­ist af end­ur­tekn­um, skyndi­leg­um kvíðaköst­um sem oft eru mjög yfirþyrm­andi. Þess­um kvíðaköst­um fylgja oft lík­am­leg ein­kenni eins og:

- Ör hjart­slátt­ur

- Svimi eða yf­irliðstil­finn­ing

- Sviti

- Andnauð

- Brjóst­verk­ur

- Til­finn­ing um að vera að missa stjórn eða jafn­vel deyja.

Or­sök ofsa­kvíða verður ekki út­skýrð með ein­um hætti, en margt get­ur or­sakað ofsa­kvíða, eins og:

- Erfðir - Kvíði get­ur legið í fjöl­skyld­um (gena­tengt).

- Lífeðlis­fræðileg atriði - T.d. breyt­ing­ar í boðefn­um heil­ans.

- Sál­fé­lags­leg­ir þætt­ir- Streita, áföll eða erfið æska geta ýtt und­ir ofsa­kvíða.

- Lík­am­leg veik­indi af ýms­um toga.

- Hug­ræn­ar skýr­ing­ar - Of­mat á hættu eða lík­am­leg­um ein­kenn­um get­ur ýtt und­ir ofsa­kvíða.

Hvað varðar lækn­ingu þá er ofsa­kvíði vel meðhöndlan­leg­ur og marg­ir ná full­um bata. En meðferð við ofsa­kvíða get­ur falið í sér:

1. Hug­ræn at­ferl­is­meðferð (HAM) - ein áhrifa­rík­asta meðferðin við ofsa­kvíða. Hjálp­ar ein­stak­ling­um að end­ur­skoða nei­kvæðar hugs­an­ir og draga úr ótta við lík­am­leg ein­kenni. Rann­sókn­ir sýna að HAM dreg­ur veru­lega úr ein­kenn­um hjá flest­um sem fara í gegn­um meðferðina.

2. Lyfjameðferð - SSRI-lyf.

3. Önnur úrræði eins og nú­vit­und, slök­un­ar­tækni, hreyf­ing og reglu­leg­ur svefn stuðla einnig að bata.

Kveðja,

Tinna Rut Torfa­dótt­ir sál­fræðing­ur.

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Tinnu Rut spurn­ingu HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda