Erfiðleikar í samskiptum, hvað er til ráða?

Tinna Rut Torfa­dótt­ir sál­fræðing­ur á sál­fræðistof­unni Sál­ar­líf svar­ar spurn­ing­um les­enda …
Tinna Rut Torfa­dótt­ir sál­fræðing­ur á sál­fræðistof­unni Sál­ar­líf svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hún spurningu frá manni sem er að upplifa erfiðleika í samskiptum. Samsett mynd

Tinna Rut Torfa­dótt­ir sál­fræðing­ur á sál­fræðistof­unni Sál­ar­líf svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hún spurn­ingu frá manni sem er að upp­lifa erfiðleika í sam­skipt­um. 

Sæl,

ég er að kljást við furðulegt ástand sem hell­ist yfir mig þegar ég er að tala við fólk, stund­um fæ ég ein­hvers kon­ar gráttil­finn­ingu þegar ég er í miðju sam­tali og ég finn að and­litið á mér fer allt í grettu og snún­ing sem mér finnst óþægi­legt og óviðráðan­legt, ég er kall um sex­tugt sem er van­ur að halda kúl­inu ágæt­lega. Þetta kem­ur hvort sem um er að ræða tveggja manna tal eða á stærri fund­um. Þetta er nýtt hjá mér, ég er ný­lega bú­inn að skipta um vinnu en þar er miklu minna álag held­ur en ég hef verið í síðustu 20 árin svo varla er það álagið.

Ég hef verið um all­an heim síðustu árin og fróað fólk og talað tungu­mál sem ég hef ekki full­komið vald á en ég er óhrædd­ur við að prófa og skemmti mér jafn­mikið og viðmæl­end­urn­ir þegar ég segi ein­hverja vit­leysu, það plag­ar mig ekki að vera miðpunkt­ur eða að mér sé hlegið þegar við á. Ég er meðal jafn­ingja á vinnustaðnum, þetta hend­ir mig nán­ast aldrei þegar ég er með fjöl­skyldu og vin­um, bara í vinn­unni í mýkri mál­um, aldrei þegar ég lendi í rimmu að karpi við fólk, þar er ég sterk­ur.

Er eitt­hvað til ráða?

Kveðja,

BN

Sæll.

Takk fyr­ir þessa spurn­ingu.

Þetta ástand sem þú lýs­ir virðist vera nýtt fyr­ir þér og það er skilj­an­legt að það veki spurn­ing­ar og óþæg­indi. Það eru ýms­ar ástæður sem gætu legið að baki því að þú upp­lif­ir þetta ein­mitt í vinn­unni og í mýkri sam­töl­um. Að skipta um vinnu, jafn­vel þótt álagið sé minna, get­ur haft áhrif á líðan þína og sam­skipti við aðra. Einnig er mögu­legt að lík­am­leg eða til­finn­inga­leg viðbrögð við nýj­um aðstæðum séu að koma fram á óvænt­an hátt. Þú nefn­ir að þú sért sterk­ur í rök­ræðum eða harðari sam­skipt­um og að þetta ger­ist frek­ar í mýkri sam­töl­um. Það gæti verið merki um að eitt­hvað djúpt innra með þér sé að koma upp á yf­ir­borðið við ákveðnar aðstæður, jafn­vel eitt­hvað sem teng­ist sjálfs­mynd, til­finn­ing­um eða sam­skipta­mynstri sem er að breyt­ast. Það gæti verið gagn­legt að ræða þetta við sér­fræðing, svo sem sál­fræðing, sem gæti hjálpað þér að kort­leggja hvaða þætt­ir eru að valda þessu og hvernig þú get­ur unnið með það. Þá myndi ég mæla með því að þú mynd­ir taka eft­ir mynstr­inu t.d.

- Skoða hjá hvaða fólki ger­ist þetta?

- Í hvernig sam­ræðum?

- Eft­ir hvernig daga?

Það get­ur verið hjálp­legt að skrifa niður í nokkr­ar vik­ur og sjá hvort eitt­hvert mynstur kem­ur fram. Einnig er mik­il­vægt að þú hlust­ir á þess­ar til­finn­ing­ar en lát­ir þær ekki stjórna þér. Þegar þetta ger­ist get­ur þú dregið djúpt and­ann, viður­kennt í hljóði að þetta sé bara kipp­ur, ekk­ert sem þú þarft að berj­ast við, og haldið áfram sam­tal­inu. Það að þú viður­kenn­ir þetta í stað þess að streit­ast á móti get­ur minnkað áhrif­in með tím­an­um. Það sem þú ert að lýsa er ekki merki um veik­leika, held­ur lík­legra merki um að þú sért að fara inn í nýtt skeið þar sem hlut­ar af þér sem áður höfðu ekki áður pláss eru að fá rými. Þetta ger­ist oft þegar sterk­ir ein­stak­ling­ar slaka á eft­ir lang­an tíma í há­spennu.

Ekki skamm­ast þín fyr­ir þetta, þetta get­ur í raun verið merki um per­sónu­lega dýpt og þroska.

Bestu kveðjur og gangi þér sem allra best,

Tinna Rut sál­fræðing­ur

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Tinnu Rut spurn­ingu HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda