Ebba Margrét opnar sig um erfið veikindi

Ebba Margrét Magnúsdóttir.
Ebba Margrét Magnúsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Ebba Mar­grét Magnús­dótt­ir, fæðinga- og kven­sjúk­dóma­lækn­ir, greind­ist með Park­in­son-sjúk­dóm­inn, tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dóm sem hef­ur áhrif á þær tauga­frum­ur í heil­an­um sem stjórna hreyf­ingu, fyr­ir fimm árum síðan.

Hún opnaði sig um grein­ing­una í aðsendri grein sem birt­ist á vef Vís­is í gær­kvöldi.

„Það er ekki ein­falt fyr­ir 52 ára konu í fullu fjöri að fá slíka grein­ingu og þurfa að hugsa seinni hálfleik­inn upp á nýtt. Ég hafði fundið skjálfta í hvíld í nokk­urn tíma vinstra meg­in í kroppn­um og fékk svo mik­inn skjálfta með hníf­inn í hend­inni við vinn­una mína, það er ekk­ert grín fyr­ir fæðinga- og kven­sjúk­dóma­lækni. Við hjón­in fór­um svo í ein­um Covid-glugg­an­um í ferð á Snæ­fellsnesið og í sund­laug­inni í Grund­arf­irði tek­ur Hjört­ur eft­ir því að ég lyfti ekki vinstri hend­inni jafnt og þeirri hægri. Þeir sem þekkja mig vita að ég syndi dag­lega og því var Covid vesen og þá fór­um við að ganga og aft­ur var það hús­bónd­inn sem tók eft­ir því að vinstri hend­in hreyfðist nán­ast ekk­ert og göngulagið var öðru­vísi,” skrif­ar Ebba Mar­grét sem hafði grunað í þó nokk­urn tíma að hún væri með tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dóm­inn en hafði haldið því leyndu frá vin­um og ætt­ingj­um.

„Því vissi ég innst inni að ég væri með Park­in­son sem er ólækn­andi hrörn­un­ar­sjúk­dóm­ur en hef­ur vissu­lega mis­mun­andi birt­ing­ar­mynd­ir og herj­ar mis­mun­andi hratt á fórn­ar­lömb sín. En hvernig tekst konu á besta aldri við slík ör­lög þegar hulstrið er skaddað en hug­ur­inn skarp­ur? Öflug kona á frama­braut ákveður að fara í fel­ur til að tryggja að skjól­stæðing­ar henn­ar hlaupi ekki á brott.“

Í grein­inni seg­ir Ebba Mar­grét að nú sé komið að kafla­skil­um.

„Ég er hætt í felu­leik. Fimm ár í þeim leik eru meira en nóg. Þetta hafa marg­ir bent mér á, fjöl­skylda mín og lækn­ir­inn minn. Það var aft­ur Hjört­ur, minn besti vin­ur og fé­lagi, sem með sinni hegðun benti mér á þetta. Hann fékk grein­ing­una krabba­mein fyr­ir ári síðan og bara seg­ir öll­um það. Hef­ur ekk­ert að fela og tekst á við sín ör­lög með reisn. En ég var ekki til­bú­in og gat ekki sagt orðið. Var kannski ekki til­bú­in að sætta mig við þessi döpru ör­lög. Það er erfiðara að fela hrey­fiskerðingu og skjálfta eft­ir því sem tím­inn líður. Ekk­ert gam­an að taka töfl­ur á 3 klst fresti og finn­ast allt stefna í eina átt, verða verri í dag en í gær. Dag­ur­inn í gær var töff en hann er betri í dag eft­ir að ég út­rýmdi tún­fífl­um úr lóðinni og sló garðinn. Sönn­un á því að hreyf­ing og endorfín­los­un hjálpi.”

Ebba Mar­grét ætl­ar að horfa björt­um aug­um á framtíðina. 

„Nú eru feg­urstu og lengstu dag­ar árs­ins og nátt­úra okk­ar fal­lega lands sýn­ir sín­ar bestu hliðar. Við fögn­um af­mæli lýðveld­is­ins Íslands og EM í fót­bolta kvenna er inn­an seil­ing­ar og kæt­ir þá sem það elska.

Þess vegna ætla ég að hætta í fimm ára felu­leik og vera bjart­sýn um veik­indi okk­ar hjóna. Njóta hvers dags og þakka fyr­ir allt það góða sem lífið hef­ur gefið okk­ur. Við vilj­um ekki vorkunn og við erum ekki hætt að skoða kon­ur, skrifa pistla og skíra, gifta og jarða þó að pakka­til­boðið skurður og skírn sé ekki leng­ur í boði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda