Ásdís fastar í 12-14 tíma á dag

Ásdís Ragna Einarsdóttir.
Ásdís Ragna Einarsdóttir.

Ásdís Ragna Ein­ars­dótt­ir út­skrifaðist með BSc í grasa­lækn­ing­um frá Uni­versity of East London árið 2005 og hef­ur rekið eig­in viðtals­stofu um ára­bil þangað sem fjöldi ein­stak­linga hef­ur leitað til henn­ar í ráðgjöf í gegn­um árin.

Ásdís hef­ur haldið fjölda fyr­ir­lestra og nám­skeiða um land allt, bæði fyr­ir ein­stak­linga og fyr­ir­tæki, m.a. um áhrif og notk­un lækn­inga­jurta, heilsu­sam­legt mataræði og fleiri heilsu­tengd mál­efni. Ásdís er meðlim­ur í bresku fag­fé­lagi grasa­lækna, The Nati­onal Institu­te of Medical Her­bal­ists, en starf grasa­lækn­is felst í því að meðhöndla ein­kenni og kvilla á heild­ræn­an og nátt­úru­leg­an hátt.

Mark­mið Ásdís­ar er að hvetja skjól­stæðinga sína til þess að efla heilsu sína og leiðbeina þeim um heilsu­sam­legt mataræði, heil­brigðar lífs­venj­ur og notk­un lækn­inga­jurta og vinna mark­visst að bættri heilsu, jafn­vægi og vellíðan. Í Heilsu­blaði Nettó deil­ir hún sín­um heilsuráðum. 

„Flest vit­um við nokk­urn veg­inn hvað við eig­um að gera til þess að vera heil­brigð og hraust en það get­ur verið áskor­un að til­einka okk­ur góðar heilsu­venj­ur og viðhalda þeim svo við náum þeim ár­angri og jafn­vægi sem við vilj­um öðlast. Sjálf hef ég reynt að til­einka mér nokkr­ar ein­fald­ar venj­ur sem ég get haldið mig við, eins og að passa upp á svefn­inn, velja líf­ræna og heilsu­sam­lega fæðu, fasta reglu­lega og hreyfa mig. Dag­lega rútín­an mín er yf­ir­leitt þannig að ég fasta í a.m.k. 12-14 klst. og byrja svo dag­inn á nær­andi morg­un­mat sem er oft­ast grænn þeyt­ing­ur eða chia­graut­ur. Svo tek­ur vinn­an við fram að há­degi og þá tek ég góðan göngu­túr með hund­inn. Há­deg­is­mat­ur­inn er svo eitt­hvað af eft­ir­far­andi: Grænt sal­at með avóka­dó og kjúk­lingi, lax og græn­meti eða súr­deigs­brauð með eggi, geita­osti eða humm­us. Ef ég hef þörf fyr­ir milli­mál þá fæ ég mér hnet­ur og dökkt 85% súkkulaði eða epli með möndl­u­smjöri. Stund­um útbý ég latte með kakói, kolla­geni og möndl­umjólk í milli­mál. Eft­ir vinnu­dag­inn reyni ég koma inn æf­ingu, ann­arri hreyf­ingu eða úti­vist. Kvöld­mat­ur­inn er ým­ist fisk­ur, lamba­kjöt, kjúk­ling­ur eða baun­ir með fjöl­breyttu græn­meti og góðri ólífu­olíu,“ seg­ir Ásdís. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda