Við Ljósaland í Reykjavík stendur glæsilegt 218 fm raðhús sem búið er að endurnýja mikið. Hvítar sprautulakkaðar innréttingar eru áberandi og í eldhúsinu er svört granít-borðplata. Húsið var byggt 1971 og hefur verið vel viðhaldið.
Skipulagið á húsinu er einstaklega skemmtilegt, hátt til lofts og vítt til veggja í stofu og eldhúsi.
HÉR er hægt að skoða húsið nánar.