Voru án geymslu í tæpt ár

Diljá Valsdóttir er að vinna með minimalískan lífsstíl.
Diljá Valsdóttir er að vinna með minimalískan lífsstíl.

„Það eru nokk­ur ár síðan ég fór að taka fyrstu skref í átt að mini­malísk­ara lífi. Upp­haf­lega tók ég fata­skáp­inn fyr­ir, losaði mig við ógrynni af föt­um og ákvað að nú skyldi ég aðeins eiga fáar en góðar flík­ur. Þetta var ágæt­lega metnaðarfullt, ég út­listaði flík­ur og fylgi­hluti sem mig langaði til þess að eiga og bjó til mood­bo­ard á Pin­t­erest. Einnig las ég ótal grein­ar um „mini­mal“ og „classic war­drobe“ og fann út að ég sjálf þyrfti ég sam­tals 60 flík­ur, yf­ir­hafn­ir og fylgi­hluti (fyr­ir utan nær­föt og sokka) og 8 skópör til þess að vera full­kom­lega ánægð. Smám sam­an hef ég síðan saxað á óskalist­ann, skipt út „lé­leg­um“ flík­um fyr­ir „góðar" eft­ir því sem fjár­hag­ur leyf­ir og úr­val versl­ana býður upp á. Ég er enn nokkuð fjarri mark­miðinu, á ekki all­ar flík­urn­ar á óskalist­an­um og á ennþá tölu­vert af flík­um sem ég tími ekki að sleppa - en þetta er allt í átt­ina,“seg­ir Diljá Vals­dótt­ir blogg­ari á husa­sund.is. Hún er mjög upp­tek­in af mini­malísk­um lífs­stíl og deil­ir hér hug­leiðing­um sín­um með les­end­um Smart­lands Mörtu Maríu:

Eft­ir að við keypt­um íbúðina hef­ur þessi mini­malíski lífstíll smitað inn á heim­ilið. Eins og ég hef áður sagt þá er íbúðin ekki stór í fer­metr­um og því tak­markað pláss fyr­ir hús­gögn og hluti, hvað þá óþarfa dót. Við nýtt­um því tæki­færið þegar við flutt­um og losuðum okk­ur við heil­an hell­ing. Þó við séum að stækka við okk­ur þá er tækni­lega minna geymslupláss hér (við meira að segja minnkuðum geymsluplássið með því að taka niður helm­ing­inn af efri eld­hús­skáp­un­um). Gamla íbúðin var með geymslu inni í íbúðinni og stærri fata­skáp. Þar sem við ákváðum að leigja út geymsl­urn­ar (íbúðarrými) sem fylgja nýju íbúðinni þá erum við án geymslu í augna­blik­inu. Í dag er því eina geymsl­an okk­ar tvö­fald­ur IKEA PAX skáp­ur (150x236cm) sem er staðsett­ur inni á skrif­stofu. Þar geym­um við úti­föt, skrif­föng og papp­íra, tjald og svefn­poka, skó og allt mögu­legt og ómögu­legt.

Þó að þetta hafi vissu­lega verið áskor­un þá tókst okk­ur að vera án geymslu í tæpt ár. Eft­ir að son­ur okk­ar fædd­ist þá hef­ur verið tölu­vert þrengra um okk­ur eins og þið sem eigið börn ef­laust þekkið, barna­föt, dót, vagnstykki og kerra, ömmu­stóll... allt þetta hef­ur gert það að verk­um að PAX er því miður ekki nóg. Við feng­um kommóðu und­ir barna­föt­in og kerr­an er geymd í skott­inu á bíln­um en annað er eig­in­lega bara fyr­ir í gang­veg­in­um. Auðvitað er óhjá­kvæmi­legt að það sé barna­dót á víð og dreif og ég vil að heim­ilið beri merki þess að hér búi fjöl­skylda en það sem er helst að trufla mig eru föt sem ekki eru í notk­un (vax­inn upp úr eða enn of stór) og að stærri hlut­ir eins og kerra og vagnstykki séu geymd á gang­in­um eða úti í bíl. Sömu­leiðis mætti þvott­ur­inn al­veg þorna ann­ars staðar en á miðju stofugólf­inu.

Þar af leiðandi höf­um við ákveðið að taka geymsl­urn­ar/​íbúðina úr leigu í byrj­un næsta árs og nýta annað rýmið sem geymslu og hitt skrif­stofu en Hörður vinn­ur mikið heima, bæði freel­ance og að eig­in list. Á sama tíma fengi sá stutti eigið her­bergi þar sem áður var skrif­stofa. Eins mikið og ég hlakka til að hafa rúmt um okk­ur þá kvíði ég því dá­lítið að hafa sér­staka geymslu - ég vil nefni­lega ekki að hún fyll­ist af óþarfa dóti. Ég vona því að ég nái að halda þessu mini­malíska viðhorfi áfram. 

Við erum að sjálf­sögðu byrjuð að skipu­leggja hvert rými en ég segi ykk­ur bet­ur frá því seinna!

Stofan er hugguleg.
Stof­an er huggu­leg.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda