Pínulítil íbúð fær nýtt líf

Hér er plássið ákaflega vel nýtt.
Hér er plássið ákaflega vel nýtt. Ljósmynd/Sam Siew Shien

Ef það er eitt­hvað sem kveik­ir í þeirri sem hér skrif­ar þá eru það góðar hug­mynd­ir, lit­ir, form og hvernig pláss er nýtt á sem best­an hátt. Í þess­ari pínu­litlu íbúð sem er staðsett í Taipei í Taiw­an hef­ur kær­ustupar hreiðrað um sig. 

Þar sem íbúðin er langt frá því að vera 500 fm að stærð þurfti að hugsa út í hvert smá­atriði. Í íbúðinni er svefn­loft og er það staðsett yfir baðher­bergi og gangi. Eld­húsið er ekki stórt og er plássið und­ir stig­an­um nýtt sem eld­hús­skáp­ar. 

Parið fékk hönn­un­ar­stof­una KC Design Studio til að hanna íbúðina og koma með hug­mynd­ir hvernig mætti nýta plássið sem best. Í stof­unni er heill skápa­vegg­ur sem nýt­ist vel fyr­ir allskon­ar dótarí sem safn­ast upp á heim­il­um. Skáp­h­urðirn­ar eru smart og setja svip sinn á íbúðina.

Í íbúðinni þarf líka pláss fyr­ir öll leik­föng­in en parið sem býr í íbúðinni eru bæði hönnuðir og safna leik­föng­um í frí­stund­um. Þeim tekst ein­hvern veg­inn að koma dót­inu fyr­ir án þess að fólk hafi á til­finn­ing­unni að það sé að ganga inn í risa­stórt barna­her­bergi. 

Stofan er einföld en samt svo smart. Sjö speglar á …
Stof­an er ein­föld en samt svo smart. Sjö spegl­ar á veggn­um búa til góða stemn­ingu. Ljós­mynd/​Sam Siew Shien
Klæðningin á veggnum í stofunni er forvitnileg.
Klæðning­in á veggn­um í stof­unni er for­vitni­leg. Ljós­mynd/​Sam Siew Shien
Skápaklæðningin á veggnum er ótrúlega vel heppnuð.
Skápa­klæðning­in á veggn­um er ótrú­lega vel heppnuð. Ljós­mynd/​Sam Siew Shien
Hér sést glitta í flísarnar á baðherberginu og horft er …
Hér sést glitta í flís­arn­ar á baðher­berg­inu og horft er fram á gang. Hér er hver fer­meter nýtt­ur. Ljós­mynd/​Sam Siew Shien
Hér sést vel hversu vel plássið er nýtt. Hér sést …
Hér sést vel hversu vel plássið er nýtt. Hér sést eld­hús­krókur­inn. Ljós­mynd/​Sam Siew Shien
Horft niður í stofuna.
Horft niður í stof­una. Ljós­mynd/​Sam Siew Shien
Í íbúðinni er svefnloft.
Í íbúðinni er svefn­loft. Ljós­mynd/​Sam Siew Shien
Horft upp á svefnloftið.
Horft upp á svefn­loftið. Ljós­mynd/​Sam Siew Shien
Baðherbergið er ekki stórt en smekklegt.
Baðher­bergið er ekki stórt en smekk­legt. Ljós­mynd/​Sam Siew Shien
Horft inn ganginn.
Horft inn gang­inn. Ljós­mynd/​Sam Siew Shien
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda