Settu fataskápinn í megrun

Björk Eiðsdóttir ritstjóri MAN og Bergrún Íris Sævarsdóttir rithöfundur og …
Björk Eiðsdóttir ritstjóri MAN og Bergrún Íris Sævarsdóttir rithöfundur og teiknari. mbl.is/Ómar Óskarsson

Míni­malísk­ur lífs­stíll er í tísku þessa dag­ana. Áhuga­fólk um hann held­ur úti vin­sælli face­booksíðu þar sem nýtn­in og hag­sýn­in er í for­grunni. Á dög­un­um skrifaði rit­höf­und­ur­inn og teikn­ar­inn Bergrún Íris Sæv­ars­dótt­ir áhuga­verða grein í tíma­ritið MAN sem við birt­um hér fyr­ir neðan. Í henni kem­ur Bergrún Íris með hag­nýt­ar lausn­ir í bar­átt­unni við all­an þenn­an bráðnauðsyn­lega óþarfa sem flæk­ir líf okk­ar:

Barna­bóka­höf­und­ur­inn Jackie French Koller hitti nagl­ann á höfuðið þegar hún sagði: „Það eru tvær leiðir til þess að verða rík­ur: Önnur er að eign­ast mikið og hin er að þurfa lítið.“

Margt hef­ur breyst á Íslandi síðan lang­ömm­ur okk­ar og langafar voru upp á sitt besta. Íslend­ing­ar hafa fært sig úr torf­kof­um, þar sem fjöldi manns deildi baðstofu, yfir í íbúðir og hús með svefn­her­bergi fyr­ir eina eða tvær mann­eskj­ur. Íbúð sem áður hýsti hjón, 4-8 börn og ömmu og afa þykir í dag mátu­leg fyr­ir par með tvö börn og kött, ef það er pláss. Til að fylla upp í allt rýmið þarf að kaupa hluti. Dauða hluti sem safna ryki, þjóna nær eng­um til­gangi og gera á end­an­um lítið annað en að trufla augað, hug­ann og öll okk­ar sam­skipti. Með því að létta á heim­il­inu, tæma skúff­ur og skápa, henda og gefa, má ein­falda heim­ilið og um leið líf heim­il­is­fólks­ins. En hvernig má ein­falda og hvar er best að byrja?

Líttu í kring­um þig

Ímyndaðu þér að þú stand­ir í ónefndri raf­tækja­versl­un. Allt í kring­um þig eru út­vörp, stillt í botn á klass­íska tónlist, dauðarokk, sker­andi syk­urpopp og leiðindatuð um hag­vöxt og vaxta­hækk­an­ir. Úr öll­um átt­um dynja aug­lýs­inga­stef á þér eins og hávaðafoss. Eyr­un eru fljót að láta okk­ur vita ef hávaðinn og áreitið er of mikið. Við för­um úr aðstæðunum eða lækk­um í hávaðanum ef það er hægt. Aug­un upp­lifa sömu­leiðis óþæg­indi þegar sjón­rænt áreiti verður of mikið en við tök­um síður eft­ir því og erum alls ekki nógu dug­leg að minnka áreitið. Líttu í kring­um þig á heim­il­inu. Hvað er uppi við sem mætti fara í kassa, inn í skáp eða jafn­vel beina leið í nytjagám­inn í Sorpu? Minna áreiti leiðir af sér kyrr­an huga, meiri ein­beit­ingu, betri slök­un og jafn­ara geð.

Settu fata­skáp­inn í megr­un

Við erum að verða of sein í mat­ar­boð eða leik­hús en við eig­um bara ekk­ert til að fara í! Fata­skáp­ur­inn er þó svo full­ur að það er meiri­hátt­ar mál að fara í gegn­um hann til að leita að ein­hverju klæðilegu. Þegar við loks kom­umst út skilj­um við eft­ir fata­hrúgu á rúm­inu sem tek­ur á móti okk­ur þegar við kom­um þreytt heim í lok kvölds. Náðu þér í stór­an svart­an plast­poka og fylltu af flík­um sem þú hef­ur ekki notað síðasta hálfa árið og gæt­ir ekki hugsað þér að fara í næstu daga eða vik­ur. Ef þú átt erfitt með að losa þig við föt­in skaltu geyma þau í pok­an­um í tvær vik­ur. Í fjór­tán daga mun reyna á það hvort þú sakn­ar ein­hvers úr pok­an­um. Á sama tíma upp­lif­ir þú létt­ari morgna þar sem skipu­lagður skáp­ur heils­ar og föt­in eru mun snyrti­legri og aðgengi­legri en ella. Að reynslu­tím­an­um lokn­um ferðu með pok­ann í fata­söfn­un Rauða kross­ins án þess að kíkja ofan í hann. Færri föt í skápn­um = fleiri flík­ur sem þig lang­ar að klæðast.

Skiptu leik­föng­un­um reglu­lega út

Leik­föng eru mjög dýr og ef dótið er ekki dottið í sund­ur eft­ir nokkra daga hef­ur barnið ör­ugg­lega misst all­an áhuga á því að leika með það. Góð leið til að minnka dót og drasl í barna­her­bergi er að fylla fal­lega dóta­kassa en hafa aðeins nokkra þeirra í um­ferð hverju sinni. (Fjöldi kassa fer eft­ir aldri barns og áhuga­sviði. Ung­barn þarf aðeins einn dóta­kassa en fimm ára barn vill kannski einn kassa und­ir eld­hús­dót, ann­an und­ir legó og svo fram­veg­is.) Geymdu hina kass­ana í geymslu og skiptu þeim reglu­lega út. Barn­inu líður eins og það hafi fengið fullt af nýju dóti! Hreinna og skipu­legra barna­her­bergi þýðir líka minna áreiti og meiri ein­beit­ing í leik.

Fleiri hrein­dýr en mann­eskj­ur?

Oft fyll­um við hill­ur heim­il­is­ins af hlut­um sem hafa enga sér­staka merk­ingu eða stað í hjarta okk­ar. Ef fjöldi hrein­dýra í stof­unni er meiri en fjöldi heim­il­is­fólks ertu greini­lega safn­ari, en alls ekki safna ein­hverju nema það sé áhuga­mál sem gleður þig. Ef það snýst um að skapa ímynd fyr­ir aðra ertu á villi­göt­um. Heim­ilið þitt er heim­ilið ÞITT og ekki ná­grann­ans eða Siggu úr saumó.

Iðnaðar­eld­hús með 100 manns í mat

Fjór­ar aus­ur, fimm sleikj­ur, þrír osta­sker­ar … skúffu­inni­haldið er eins og í besta iðnaðar­eld­húsi. Skáp­ar og skúff­ur flæða yfir af áhöld­um sem við not­um ör­sjald­an og það tek­ur allt of lang­an tíma að finna dósa­upp­tak­ar­ann. Eld­húsið þitt þjón­ar lík­lega aðeins nokkr­um mann­eskj­um og al­gjör óþarfi að eiga ausu fyr­ir hvern mat­ar­gest. Ein ausa er nóg og ef hún er skít­ug tek­ur aðeins nokkr­ar mín­út­ur að þvo hana upp. Hvað áttu ann­ars marg­ar sal­at­skál­ar eða bakka? Hugsaðu þér hvað lífið er ein­falt þegar það er eitt af öllu og allt við hönd­ina.

Lampi sem eng­um lýs­ir

Finnst þér óþolandi að færa alltaf sama lamp­ann eða hæg­inda­stól­inn þegar þú ryk­sug­ar og skúr­ar? Hvenær sett­istu síðast í stól­inn eða kveikt­ir á lamp­an­um? Hús­gögn eru ekki heil­ög þegar kem­ur að því að ein­falda á heim­il­inu og það mun koma þér á óvart hversu lítið þú munt sakna mubl­anna. Það er líka alltaf gott fyr­ir sál­ina að gefa og vita af hús­gögn­um á nýj­um stað þar sem þörf­in er meiri.

Bergrún Íris held­ur úti bloggsíðunni bergrun­ir­is.com

Margrét Hrafnsdóttir prýðir forsíðu MAN. Grein Bergrúnar Írisar birtist í …
Mar­grét Hrafns­dótt­ir prýðir forsíðu MAN. Grein Bergrún­ar Íris­ar birt­ist í tíma­rit­inu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda