Vel skipulögð en pínulítil

Hér sést hvernig eldhúsið og svefnherbergið mætast.
Hér sést hvernig eldhúsið og svefnherbergið mætast. Ljósmynd/Balázs Glódi

Tísku­straum­ar framtíðar­inn­ar í hús­næðismál­um verða pottþétt að búa smátt eða smærra en við ger­um í dag. Þess vegna er ekki úr vegi að skoða hvernig hægt er að gera litl­ar íbúðir vist­leg­ar og heill­andi án þess að fólk fái inni­lok­un­ar­kennd í öllu drasl­inu.

POSITI­ON Col­lecti­ve hönnuðu sniðuga íbúð í Búdapest í Ung­verjalandi. Ljós­ir lit­ir eru áber­andi í íbúðinni og hver fer­meter er nýtt­ur til fulls. Hinn míni­malíski lífs­stíll er í há­veg­um hafðu í þess­ari íbúð og er ekk­ert óþarfa prjál að þvæl­ast fyr­ir.

Þeir sem hafa til­einkað sér að eyða minni pen­ing­um, losa sig við dót og ein­falda líf sitt vita að við þurf­um ekki allt þetta dót til að vera raun­veru­lega ham­ingju­söm. Það er þó annað sem skipt­ir meira máli og það er að skipu­leggja hið smáa og míni­malíska heim­ili þannig að það fari vel um alla og það sé ekk­ert sem trufl­ar feg­urðarskynið.

Baðherbergið er flísalagt með hvítum flísum.
Baðher­bergið er flísa­lagt með hvít­um flís­um. Ljós­mynd/​Balázs Glódi
Sniðugar lausnir eru á færibandi í þessari íbúð. Takið eftir …
Sniðugar lausn­ir eru á færi­bandi í þess­ari íbúð. Takið eft­ir tré­veggn­um og hvernig hann er nýtt­ur. Ljós­mynd/​Balázs Glódi
Í eldhúsinu er lítið borð og fyrir ofan það eru …
Í eld­hús­inu er lítið borð og fyr­ir ofan það eru nokk­ur ljós sem búa til góða stem­ingu. Ljós­mynd/​Balázs Glódi
Eldhúsið er með hvítri sprautulakkaðri innréttingu að hluta til.
Eld­húsið er með hvítri sprautulakkaðri inn­rétt­ingu að hluta til. Ljós­mynd/​Balázs Glódi
Þessi tréveggur er sniðugur.
Þessi tré­vegg­ur er sniðugur. Ljós­mynd/​Balázs Glódi
Svona er skiptingin á þessu.
Svona er skipt­ing­in á þessu. Ljós­mynd/​Balázs Glódi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda