Leið til að búa til helmingi meira pláss

Marie Kondo með allt sem til þarf í sokka- og …
Marie Kondo með allt sem til þarf í sokka- og undirfataskúffuna. Skjáskot Youtube

Svo­kallaður míni­malísk­ur lífs­stíll hef­ur mikið verið á milli tann­anna á fólki und­an­farið. Marg­ir kepp­ast við að ein­falda líf sitt og losa sig við óþarfa, á meðan aðrir láta sér fátt um finn­ast og fussa og sveia yfir vit­leys­unni.

Bók­in The Life Chang­ing Magic of Tidy­ing Up er hef­ur notið mik­ill­ar hylli fyrr­nefnds hóps, en höf­und­ur henn­ar Marie Kondo kenn­ir fólki að fara í gegn­um eig­ur sín­ar og losa sig við allt sem ekki vek­ur gleði. Bók­in hef­ur verið það vin­sæl að hug­takið Kon­Mari, sem sett er sam­an úr nöfn­um höf­und­ar­ins, er skyndi­lega á allra vör­um.

Á vefsíðunni Goop eru kenn­ing­ar Kondo dregn­ar sam­an, en í ein­földuðu máli eru þær eitt­hvað á þessa leið.

  • Mundu að þetta snýst ekki um að losa sig við sem mest af dóti, held­ur ganga úr skugga um að hlut­irn­ir sem þú held­ur eft­ir veiti þér gleði.
  • Hreinsaðu til eft­ir flokk­um, ekki eft­ir her­bergj­um. Það kann að vera freist­andi að byrja á eld­hús­inu, og færa sig svo yfir í stof­una. Það er þó betra að velja sér flokk, líkt og fatnað eða bæk­ur, vegna þess að hlut­irn­ir eru að öll­um lík­ind­um dreifðir út um allt hús.
  • Þegar þú hef­ur farið í gegn­um eig­ur þínar og losað þig við það sem má missa sig skaltu finna sér­hverj­um hlut heim­ili. Kondo bend­ir á að geymsluílát sem megi stafla bjóði upp á það að fólk fari að sanka að sér óþarfa að nýju. Hún seg­ir jafn­framt að ein­fald­leik­inn sé best­ur og það eigi að vera jafn ein­falt að ganga frá ein­hverju, eins og að finna það síðar.

Það er þó ekki allt því einnig kenn­ir hún fólki nýja tækni við að brjóta sam­an föt og raða þeim í skápa, svo þau taki mun minna pláss.

Hér má sjá mynd­band þar sem Kondo kenn­ir fólki að brjóta sam­an nær­föt og sokka á afar snyrti­leg­an máta.

Fleiri skýr­ing­ar­mynd­bönd má síðan sjá hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda