7 leiðir til að draga úr heimilissorpi

Auðvelt er að draga úr sorpi með nokkrum einföldum ráðum.
Auðvelt er að draga úr sorpi með nokkrum einföldum ráðum. Thinkstock / Getty Images

Gríðarlegt magn af sorpi fell­ur til á hefðbundn­um heim­il­um, sem síðan end­ar í land­fyll­ing­um. Til­tölu­lega auðvelt er að draga úr þessu magni, en á vef Mind­bo­dygreen er að finna vikupl­an sem auðvelt er að fara eft­ir þegar stíga á sín fyrstu skref í átt að vist­vænni lífstíl.

Dag­ur 1: Slepptu plast­pok­un­um
Vendu þig á að koma með taupoka í mat­vöru­versl­an­ir. Geymdu nokk­ur stykki í skott­inu á bíln­um, eða í við úti­dyrn­ar.  

Dag­ur 2: Slepptu gos­drykkj­um
Á hverju ári lenda 35 millj­arðar af plast­flösk­um í rusl­inu. Vendu þig á að not­ast við brúsa og drekka vatn í stað þess að kaupa gos­drykki og sóda­vatn í stór­um stíl.

Dag­ur 3: Hugaðu að moltu­gerð
Að jafnaði má um það bil setja tvo þriðju af heim­il­iss­orpi í safn­haug. Moltu­gerð er sér­lega ein­föld leið til að minnka heim­il­iss­orpið, auk þess sem molt­an er sér­lega gagn­leg þeim sem eru með garð.

Dag­ur 4: Notaðu ferðamál
Gríðarlegt magn af einnota kaffi­boll­um lenda í rusl­inu á hverj­um degi. Auðvelt er að draga úr rusli með því að not­ast við marg­nota ferðamál. Þess að auki bjóða mörg kaffi­hús upp á af­slátt fyr­ir þá sem koma með eig­in mál.

Dag­ur 5: Dragðu úr notk­un umbúða
Mörg­um blöskr­ar umbúðir utan um mat­væli, sem eru sí­fellt að verða fyr­ir­ferðameiri. Slepptu því að setja græn­meti og ávexti í litla plast­poka í stór­markaðnum, kauptu vör­ur á mörkuðum eða í versl­un­um sem gefa fólki kost á að koma með eig­in umbúðir.

Dag­ur 6: Gefðu hlut­um fram­halds­líf
Að kaupa fatnað, bæk­ur og hús­muni á nytja­mörkuðum og versl­un­um sem selja notaðar vör­ur spar­ar þér ekki ein­ung­is pen­inga, held­ur dreg­ur það úr sorpi auk þess sem vör­un­um fylgja ekki um­fangs­mikl­ar umbúðir.

Dag­ur 7: Forðastu einnota vör­ur
Það er sí­fellt verið að freista okk­ar með einnota vör­um, svo sem drykkjarrör­um, plast­hnífa­pör­um,  munnþurrk­um og svo fram­veg­is. Í stað þess að not­ast við slík­ar vör­ur, sem lenda í rusl­inu eft­ir nokkr­ar mín­út­ur, skaltu not­ast við vör­ur sem eiga sér fram­halds­líf, líkt og munnþurrk­ur úr taui, end­ur­not­an­leg stál­rör og fleira þess­hátt­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda