Getur reynt á þolrifin að vera hönnuður

Hörður Lárusson og Jón Ari Helgason.
Hörður Lárusson og Jón Ari Helgason. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hörður Lárus­son og Jón Ari Helga­son standa fyr­ir sýn­ing­unni Hannað/​Hafnað í Hafn­ar­hús­inu, þar sem sjá má verk nokk­urra graf­ískra hönnuða, en verk­in eiga það sam­eig­in­legt að þeim var öll­um hafnað af viðskipta­vin­um. 

„Í stuttu máli eru þarna graf­ísk­ir hönnuðir að sýna verk sem þeir eru rosa­lega ánægðir með, en var af ein­hverj­um ástæðum hafnað af kúnn­um. Sýn­ing­in er á per­sónu­leg­um nót­um, og er þar að finna allt frá áður óséðum til­lög­um að nýj­um lógó­um fyr­ir þekkt fyr­ir­tæki, og yfir í pla­köt fyr­ir kvik­mynd­ir. Þetta eru verk sem hönnuðirn­ir voru rosa­lega ánægðir með, og þótt það sé full­ur skiln­ing­ur á milli hönnuðar­ins og kúnn­ans þá er kannski ákveðið ósætti við að þeim hafi verið hafnað. Það eiga all­ir graf­ísk­ir hönnuðir nokk­ur svona verk, eða jafn­vel fullt af þeim. Þetta eru verk sem hönnuðunum þykir vænt um,“ seg­ir Hörður, sem sjálf­ur á verk á sýn­ing­unni.

„Þetta er eitt­hvað sem sit­ur í manni. Að vera hönnuður er mun per­sónu­legri vinna en fólk al­mennt átt­ar sig á. Mann­skepn­an er svo breysk, og við eig­um erfitt með að sætta okk­ur við að fólki finnst það sem við erum að gera ekki fínt. Þá er ég ekki bara að tala um hönn­un. Maður hef­ur heyrt því fleygt að það sé stærsti ótti manns­ins að aðrir kom­ist að því að maður sé ekki full­kom­inn. Að vera hönnuður er að setja fram sína per­sónu­leg­ustu skoðun, kannski oft á dag, og megn­inu er hafnað,“ bæt­ir Hörður við, en hvers­kon­ar verk­efni tefl­ir hann sjálf­ur fram á sýn­ing­unni?

„Þetta var til­laga að lógói fyr­ir RVK Studi­os, sem þá átti reynd­ar að heita Blu­eeyes Visi­ons. Ég var bú­inn að gera nokkr­ar, og svo datt ég niður á þessa sem mér fannst gjör­sam­lega borðleggj­andi. Svo mætti ég til leiks full­ur ör­ygg­is, kynnti til­lög­una og fékk svarið: „nei, nei – ég held ekki“. Hörður seg­ir þó að höfn­un­in hafi verið ósköp kurt­eis­leg, sem er alls ekki alltaf raun­in.

„Maður er svo sem orðinn van­ur því að fá hlut­um sem þess­um slengt fram­an í sig. Þetta var ósköp kurt­eis­legt. Maður hef­ur lent í því að fólk segi hrein­lega „oj, hvað þetta er ógeðslegt“ um verk­efni sem maður hef­ur lagt allt sitt í,“ seg­ir Hörður og hlær.

„Þannig að þetta sit­ur ennþá svo­lítið í mér, þótt það sé full­ur skiln­ing­ur á því hvers vegna kúnn­inn hafnaði til­lög­unni. Til­gang­ur sýn­ing­ar­inn­ar er ekki að gera lítið úr því að verk­efn­un­um hafi verið hafnað. Það er yf­ir­leitt góð og gild ástæða fyr­ir því. En stund­um þykir okk­ur það samt pínu óskilj­an­legt.“

Hörður seg­ir að í dag þyki bæði eft­ir­sókn­ar­verðara og fínna að vera hönnuður en það þótti fyr­ir nokkr­um árum. Starfið geti þó vissu­lega reynt á þolrif­in, eins og gest­um sýn­ing­ar­inn­ar gefst kost­ur á að sjá.

„Í dag þykir eft­ir­sókn­ar­verðara að vera hönnuður en það þótti fyr­ir 10 árum. Vinn­an sjálf hef­ur þó ekk­ert breyst og sýn­ing­in gef­ur inn­sýn í það. Það er flókið ferli að hanna og bygg­ist á sér­fræðiþekk­ingu, þó að lausn­in sjálf geti verið afar ein­föld.“

En hvernig til­finn­ing er það að geta loks­ins deilt hinu áður óséða verk­efni með öðrum?

„Ég skal al­veg viður­kenna það að ég hlakka svo­lítið til að koma þessu frá mér. Ég vona að þetta loki ákveðnum kafla, það væri ekk­ert verra,“ seg­ir Hörður létt­ur í bragði.

Lógó sem Hörður Lárusson hannaði fyrir framleiðslufyrirtækið RVK Studios, sem …
Lógó sem Hörður Lárus­son hannaði fyr­ir fram­leiðslu­fyr­ir­tækið RVK Studi­os, sem upp­haf­lega átti að heita Blu­eeyes Vi­sons. Lógóið var aldrei notað. Hörður Lárus­son
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda