„Ég er með hreingerningaræði“

Kolbrún Kolbeinsdóttir.
Kolbrún Kolbeinsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kol­brún Kol­beins­dótt­ir verðbréfamiðlari býr í fal­legu raðhúsi uppi við Elliðavatn ásamt dótt­ur sinni Elísa­betu Mettu, kær­asta henn­ar Ágústi Frey og syni þeirra Vikt­ori Svan. Hún elsk­ar að taka til og þrífa.

Kol­brún er marg­slung­inn per­sónu­leiki. Hún vinn­ur krefj­andi vinnu í eign­a­stýr­ingu Íslands­banka, stund­ar golf eins mikið og hún get­ur, sinn­ir barna­barn­inu af kost­gæfni, elsk­ar að þrífa, að ferðast og njóta lífs­ins. Hún er ein með öllu, alin upp í Bretlandi og er andi heim­il­is­ins svo­lítið breskt. Heim­ilið ber svo sann­ar­lega merki þess að eig­and­inn elsk­ar að þrífa og gera huggu­legt í kring­um sig. „Frá því ég var lít­il stelpa hef ég haft áhuga á því að hafa fal­legt í kring­um mig. Ég var alin upp á fal­legu heim­ili sjálf svo vænt­an­lega hef ég fengið þetta frá for­eldr­um mín­um.“

Gulu gúmmí­hansk­arn­ir mikið notaðir

Er heim­ilið alltaf svona hreint?

„Já, ég er með hrein­gern­ingaræði. Tengda­son­ur minn seg­ir oft: Jæja, þá er hún búin að setja upp gulu gúmmí­hansk­ana. Þetta er nán­ast geggj­un hjá mér, í það minnsta smá­bil­un. Málið er bara að ég elska að þrífa og að hafa fal­legt og hreint í kring­um mig. Ég er skipu­lögð í eðli mínu og geri hlut­ina ein­falda. Allt á sinn stað og ég er ró­leg með allt hreint og fal­legt þar sem ég bý.“

Hvernig get­urðu komið þessu þrifæði áfram?

,,Þú verður bara að koma og búa hjá mér, ég skal kenna þér,“ seg­ir Kol­brún og bros­ir. Síðan lýs­ir hún ein­földu kerfi þar sem hún kem­ur heim, fer úr vinnu­föt­un­um inni í skúr. Fer þar í úti­föt­in og legg­ur af stað í göngu með hund­inn sinn.

Hef­urðu alltaf búið utan við miðborg­ina?

„Nei, ég hef átt mitt miðborg­ar­tíma­bil. Ég bjó á sín­um tíma á Bergstaðastræti og síðan á Öldu­götu. En þessi staður við Elliðavatnið er draum­ur fyr­ir mig og fjöl­skyld­una. Svo ekki sé talað um hund­inn minn sem elsk­ar að fara í langa göngu­túra um fal­lega nátt­úr­una hér í kring.“

Heim­ili Kol­brún­ar er mjög tíma­laust. Spá­ir hún í nýj­ustu tísku og strauma?

„Nei, þegar ég geri heim­ili mitt þá vil ég hafa það tíma­laust, í mín­um anda. Ég er ekki með neina sér­staka tísku í huga. Ég vel það sem mér finnst fal­legt og það sem er hlý­legt og svo held ég upp á hvít hús­gögn og inn­rétt­ing­ar. Mér finnst það skapa hreint og fal­legt um­hverfi.“

Ver­önd­in er fram­leng­ing af hús­inu

Hvað um ver­önd­ina. Hún er para­dís, ekki satt?

„Ver­önd­in er draum­ur og þú ætt­ir að prófa að sitja úti yfir sum­ar­tím­ann með mér. Því­líkt skjól og sæla sem þessi skjól­vegg­ur skap­ar í kring­um mann. Ég bý í raðhúsa­lengju þar sem van­inn er að hafa brún­an við á ver­önd­inni. Mig langaði að hafa ver­önd­ina gráa, líkt og vegg­ina í hús­inu svo hún myndi sýn­ast eins og fram­leng­ing af hús­inu. Ég blanda svört­um blóma­pott­um við og er mjög ánægð með út­kom­una. Það var síðan í fyrra sem ég lét setja skjól­vegg­inn þar sem mér fannst víðátt­an of mik­il í garðinum og ekki nægi­lega skjól­sælt. Birg­ir vin­ur minn sem er þaul­van­ur að gera upp hús teiknaði vegg­inn fyr­ir mig. Hann er eig­inmaður Ingu Bryn­dís­ar sem á Magnol­íu og þau eru kær­ir vin­ir mín­ir sem ég hef átt lengi. Hann sendi mér þrjá ægi­lega sæta menn frá Lett­landi sem settu upp vegg­inn. Nota­gildi palls­ins hef­ur auk­ist til muna við þess­ar ein­földu fram­kvæmd­ir. Ég mæli með fyr­ir alla að skoða mögu­leik­ana á að búa til skjól svo hægt sé að nota garðinn bet­ur.“

Hvernig er að vera með gler í veggn­um. Þarf að pússa hann reglu­lega?

„Nei, veistu ég held að ég hafi aldrei pússað þetta gler.“

Kol­brún seg­ir að fjöl­skyldu­lífið sé mjög ánægju­legt og ein­falt. Unga fólkið henn­ar sé að safna fyr­ir íbúð og hún njóti góðs af því að hafa barna­barnið, hann Vikt­or Svan, svona ná­lægt sér. „Hann er al­gjör draum­ur, alltaf bros­andi og dá­sam­leg­ur. Það er allt önn­ur til­finn­ing að vera amma. Það er dá­sam­legt að verða móðir en að vera amma er það æðis­leg­asta sem ég hef upp­lifað.“

Hvernig komið þið ykk­ur fyr­ir stór­fjöl­skyld­an inni á heim­il­inu? „Ég er í mínu svefn­her­bergi með góðu rými, fata­her­bergi og nýt þess að eiga stund­ir þar. Litla fjöl­skyld­an er í gamla her­bergi dótt­ur minn­ar, þar sem þau hafa breytt aðeins skipu­lag­inu eft­ir að barna­barnið kom til sög­unn­ar. Við færðum fata­slá og aðra auka­hluti inn í bíl­skúr­inn. Dótt­ir mín málaði og gerði her­bergið fal­legt eft­ir sínu höfði. Hún ákvað að fjár­festa í góðu rúmi úr Epal fyr­ir barnið og mér finnst það æðis­legt. Þetta rúm vex með barn­inu til sjö ára ald­urs. Síðan finnst mér himna­sæng­in sem hún fékk í Pe­tit gera svo sæta ver­öld í kring­um dreng­inn.“

Hannaðir þú allt sjálf í hús­inu?

„Já, ég gerði það. Ég hef í gegn­um tíðina verið dug­leg að skoða bresk hönn­un­ar­blöð. Ég lét smíða sem dæmi eld­hús­inn­rétt­ing­una eft­ir mínu höfði. Hann Gísli heit­inn gerði það, en Gísli er son­ur Guðmund­ar blinda sem átti smíðaverk­stæðið Víði, sem var einskon­ar sveita­set­ur al­vegið niðri við Elliðavatnið.“

Hvað hef­ur þú búið hér lengi?

„Ég flutti hingað á Vatns­enda árið 2000. Það hef­ur mikið breyst síðan þá. Veg­irn­ir voru ekki mal­bikaðir og húsa­fjöld­inn tals­vert ann­ar.“

Af­kast­ar miklu og nýt­ur lífs­ins

Hver er lyk­ill­inn að góðu lífi að þínu mati?

„Í fyrsta lagi að eiga fjöl­skyldu sem maður nýt­ur að hafa ná­lægt sér. Að vera í skemmti­legri og krefj­andi vinnu. Að eiga áhuga­mál. Ég er sjúk í golf og reyni að vera eins mikið í golfi og ég get. Ég fer í tvær til þrjár golf­ferðir á ári og svo stunda ég göng­ur og geng mikið í kring­um Elliðavatnið með hund­inn minn. Síðan borða ég holl­an mat og rækta lík­amann eins vel og ég get.“

Þetta er lang­ur listi af góðum hlut­um, þú hlýt­ur að vera góð að setja mörk?

„Ég reyni. Ég er ekki all­an sól­ar­hring­inn í vinn­unni en ég er í krefj­andi vinnu sem end­ar ekki endi­lega klukk­an fimm. Ég hef góða þekk­ingu á mínu sviði, hef starfað í banka í mörg ár.“

Hvaða ráð get­ur þú gefið tengt fjár­mál­um?

„Ég hef lagt í vana minn að eiga fyr­ir því sem ég geri. Það hef­ur reynst mér vel. Ég fer ekki út í búð að kaupa hluti nema að ég eigi fyr­ir þeim. Eins fer ég vel með pen­inga, ég held að það sé lyk­ill­inn að heil­brigðum fjár­hag.“

mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
„Ég er með hrein­gern­ingaræði“
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda