„Ég fékk nóg af draslinu“

Gunna Stella fékk nóg af draslinu 2015.
Gunna Stella fékk nóg af draslinu 2015.

„Þegar ég var ófrísk af fjórða barn­inu (árið 2015) fékk ég nóg af magni hluta á heim­il­inu okk­ar. Ég hrein­lega hring­sner­ist í kring­um sjálfa mig. Við eig­um heima í stóru húsi á tveim­ur hæðum og ein­hverra hluta vegna var þetta hús yf­ir­fullt af dóti, leik­föng­um, hús­gögn­um, þvotti, þvotti og þvotti og öllu því sem „á“ að fylgja stórri fjöl­skyldu. Mér fannst ég ekki gera neitt annað við tím­ann minn en vinna og laga til,“ seg­ir Gunna Stella í sín­um fyrsta pistli á Smartlandi:  

Árum sam­an var ég búin að leita að hinni full­komnu leið til að skipu­leggja. Skipu­leggja fata­skáp­ana, skipu­leggja þvotta­húsið, skipu­leggja eld­hús­skáp­ana og svo má lengi telja. Ég var búin að eiga marg­ar gerðir af kommóðum og geymslu­hirsl­um en mér fannst þetta ekk­ert breyt­ast.

Árið 2015 fékk ég nóg. Það hlaut að vera ein­hver önn­ur leið. Ég gerði það sem nú­tíma­skyn­slóð ger­ir gjarn­an og fór á netið að leita leiða til að Ein­falda lífið. Mér til mik­ill­ar ánægju fann ég ýms­ar lausn­ir. Sú fyrsta sem ég rakst á var Marie Kondo sem er ein­mitt mjög þekkt hér á landi í dag fyr­ir Net­flix-þætti sína.

Ég hlustaði á bók­ina henn­ar og byrjaði að fara eft­ir ýmsu sem hún kenndi. Sumt af því reynd­ist mér vel en ég áttaði mig þó fljót­lega á því að henn­ar aðferðir við skipu­lagn­ingu voru ekki endi­lega lausn­in við vanda­máli mínu. Ég þurfti ekki nýja leið til að skipu­leggja eða koma hlut­um fyr­ir. Ég hélt því áfram að nýta mér tækn­ina og fann frá­bær­ar leiðir til þess að Ein­falda lífið. Ég las bæk­ur og hlustaði á hlaðvörp eft­ir ein­stak­linga sem höfðu verið á sömu veg­ferð og ég. Ein­stak­linga sem upp­lifðu að heim­ilið væri yfirþyrm­andi og ekki sá griðarstaður sem það ætti að vera. Þess­ir ein­stak­ling­ar eiga það all­ir sam­eig­in­legt að hafa fengið nóg af magni hluta og kaupæði og það var ein­mitt það sem ég var að leita að. Ég fór mark­visst í gegn­um heim­ilið okk­ar og minnkaði magn hluta, seldi, gaf á Nytja­markaði o.s.frv. Ég fór að gera mér grein fyr­ir því að það var mun ein­fald­ara að sinna því sem þurfti að sinna á stóru heim­ili ef það var minna af hús­gögn­um, minna af skraut­mun­um, minna af eld­hús­dóti, minna af fatnaði og svo má lengi telja. Þessi veg­ferð okk­ar er ekki búin en við erum kom­in langa leið.

Í dag starfa ég sem heil­su­markþjálfi, kenn­ari og fyr­ir­les­ari og ég finn að svo marg­ir upp­lifa heim­ilið sitt sem streitu­vald. Ég mæli því alltaf með því að markþegar mín­ir taki ein­föld skref í átt að Ein­fald­ara lífi. Nú ný­lega bjó ég til skjal TÍU TÍU (tíu skref í átt að ein­fald­ara lífi) sem er út­prent­an­legt á PDF formi. Þú get­ur nálg­ast þetta skjal ókeyp­is hér!

Ein­fald­ara líf er á all­an hátt mun betra líf. Svarið við hraðanum og óreiðunni er ekki að end­ur­skipu­leggja daga­talið eða end­urraða í skáp­ana. Svarið er að láta það sem mestu máli skipt­ir í líf­inu hafa for­gang en fjar­lægja úr lífi okk­ar það sem vinn­ur gegn því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda