Ekki gera þessi mistök í hjónaberberginu

Gunna Stella heldur úti vefnum einfaldaralif.is.
Gunna Stella heldur úti vefnum einfaldaralif.is.

„Þegar ég gisti á hót­eli þá upp­lifi ég oft­ar en ekki mikla ró inni í her­berg­inu sjálfu. Það skipt­ir ekki máli hvernig hönn­un­in eða lit­irn­ir eru held­ur felst róin í því að hafa ekki of mikið magn af hlut­um í rým­inu. Hver hlut­ur á sinn stað og það er ekki óþarf­lega mikið af skraut­mun­um,“ seg­ir Gunna Stella heil­su­markþjálfi og eig­andi vefjar­ins ein­fald­aralif.is í sín­um nýj­asta pistli á Smartlandi: 

Það vill oft vera þannig að hjóna­her­bergið er sá hluti heim­il­is­ins sem minnst áhersla er lögð á. Þetta her­bergi er oft innst á gang­in­um eða eins og í okk­ar til­felli á efri hæðinni. Það eru ekki mjög mikl­ar lík­ur á að gest­ir og gang­andi sjái það og því er kannski ekki lögð eins mik­il áhersla á að her­bergið sé í jafn góðu ásig­komu­lagi og t.d. stof­an eða sam­eig­in­leg rými. Svefn­her­bergið er stund­um her­bergi sem safn­ar alls kyns drasli. Þvotta­hrúg­unni er hent þangað inn og sum­ir nota þetta her­bergi til þess að gera svo­kallaða for­seta­hrein­gern­ingu þegar von er á gest­um.

Svefn­her­bergið er her­bergið sem þú ferð inn í til að hvíla þig. Þetta er her­bergið sem þú teng­ist maka þínum í (ef þú átt maka) og þetta er her­bergi sem á að vera þinn griðastaður.

Á ra­f­ræna nám­skeiðinu mínu Ein­fald­ara líf - Betra líf mæli ég með því að taka þetta her­bergi fyrst í gegn af öll­um her­bergj­um í hús­inu. Ástæðan er ein­föld. Ef þú upp­lif­ir her­bergið þitt sem griðastað þá eru mun meiri lík­ur á því að þú sof­ir vel og haf­ir orku í að ein­falda hin her­bergi húss­ins.

Það er eitt­hvað svo ynd­is­legt að koma inn í nota­legt her­bergi að kvöldi til. Her­bergi sem gef­ur þér hug­ar­ró og frið. Eft­ir að við fór­um að ein­falda okk­ar heim­ili þá áttaði ég mig á því að ég kann mjög vel við að koma inn í her­bergi sem hef­ur að geyma eins lítið af hús­gögn­um og her­bergið kemst upp með auk ein­stakra fal­legra skraut­muna. Í her­berg­inu okk­ar er hjóna­rúm með gafli, tvö nátt­borð og fata­skáp­ur með spegla­h­urðum. Það hafa verið tím­ar þar sem her­bergið okk­ar var yf­ir­fullt af alls kyns dóti sem ekki átti heima þar. En í dag er her­bergið okk­ar þessi ljúfi griðastaður flesta daga vik­unn­ar.

Ég hef heyrt hjá þátt­tak­end­um á nám­skeiðum mín­um og hjá markþegum mín­um að þeir þrá að ein­falda her­bergið sitt. Ég veit að þetta á ekki ein­ung­is við fólk sem ég hef kynnst og ég geri ráð fyr­ir að það séu mun fleiri ein­stak­ling­ar úti í hinum stóra heimi sem upp­lifa þessa til­finn­ingu gagn­vart her­berg­inu sínu.

Ert þú á ein/​n af þeim sem vilt ein­falda her­bergið þitt? 

Á heimasíðunni minni get­ur þú nálg­ast mynd­bands­kennslu sem út­skýr­ir bet­ur hvaða skref þú get­ur tekið til að ein­falda þitt her­bergi. Þessi kennsla er hluti af nám­skeiðinu mínu Ein­fald­ara líf - Betra líf og mun vera aðgengi­leg þér að kostnaðarlausu tíma­bundið. 

Ég hvet þig til þess að taka skref í átt að ein­fald­ara svefn­her­bergi. Það hef­ur marga góða kosti í för með sér. Meiri tíma, meiri nánd og fleiri gæðastund­ir. 

Gangi þér vel að EIN­FALDA!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda