Lífið gjörbreytt en deilir æfingum á Facebook

Ágústa Guðný Árnadóttir hóptímakennari æfir heima og fær fólk með …
Ágústa Guðný Árnadóttir hóptímakennari æfir heima og fær fólk með sér á Facebook. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ágústu Guðnýju Árna­dótt­ur er um­hugað um hreyf­ingu og heilsu. Hún rek­ur fæðubót­ar­versl­un­ina og boost­bar­inn Lík­ami og boost í Sport­hús­inu í Reykja­nes­bæ og kenn­ir hóp­tíma þar. Líf Ágústu hef­ur breyst mikið með til­heyr­andi lok­un­um í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um en hún er dug­leg að deila heimaæf­ing­um á Face­book. Æfing­arn­ar eru aðgengi­leg­ar öll­um.

Ágústa spilaði fót­bolta lengi vel en seinna tók rækt­in við. Ákveðin um­skipti urðu í lífi henn­ar þegar hún ákvað að taka þátt í fit­n­ess. 

„Árið 2013 ákvað ég svo að taka þátt í mód­elfit­n­ess og svo í fit­n­ess árin 2014 til 2016. Eft­ir þann tíma hef ég haldið mig við lík­ams­rækt. Mér líður vel þar, það er alltaf gott að hreyfa sig, bæði fyr­ir lík­ama og sál,“ seg­ir Ágústa. 

„Líf mitt hef­ur breyst mikið þar sem ástandið í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um hef­ur haft mik­il áhrif á starf mitt en von­andi er þessi breyt­ing bara tíma­bund­in,“ seg­ir Ágústa sem er vön að vera í mik­illi rútínu og hef­ur viðhaldið henni í far­aldr­in­um þrátt fyr­ir breytt­ar aðstæður. 

Já­kvætt hug­ar­far er mik­il­vægt þegar góð rútína er ann­ars veg­ar og lyk­il­atriði að brjóta sig ekki niður. 

„Þú kemst langt á já­kvæðni og á að taka einn dag í einu. Ef dag­ur­inn í dag mistekst þá kem­ur nýr dag­ur eft­ir þenn­an dag, við get­um alltaf reynt að gera bet­ur. Aldrei gef­ast upp. Við eig­um að borða all­an mat en við þurf­um að læra á okk­ur sjálf, læra á lík­amann, ekki hugsa um hvað aðrir eru að gera, ekki keppa við neinn ann­an, við erum okk­ar stærsti keppi­naut­ur þegar kem­ur að mat og hreyf­ingu. Ef við vilj­um sjá ár­ang­ur þurf­um við að byrja á okk­ur sjálf­um og þá tala ég um haus­inn, and­leg líðan þarf að vera góð svo þú get­ir byrjað að setja þig í fyrsta sætið.“

Ágústa heldur í jákvæðnina en líf hennar hefur breyst mikið …
Ágústa held­ur í já­kvæðnina en líf henn­ar hef­ur breyst mikið í ár. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Eitt af því sem Ágústa ger­ir til þess að halda rútínu er að fara á æf­ingu. Hún út­bjó aðstöðu í bíl­skúrn­um sín­um þar sem hún tek­ur æf­ing­ar. Í fyrstu bylgj­unni byrjaði hún að deila á sam­fé­lags­miðlum æf­ing­um sem fólk get­ur gert heima og hef­ur haldið því áfram í haust.

„Ég byrjaði með heimaæf­ing­ar á „in­sta story“ hjá mér í fyrstu bylgju kór­ónu­veirunn­ar. Ég fékk svo góð viðbrögð að ég ákvað að búa til síðu á Face­book sem heit­ir Heimaæf­ing­ar með Ágústu Árna sem öll­um er vel­komið að nýta sér ef þá vant­ar fjöl­breyti­leika og nýj­ar æf­ing­ar,“ seg­ir Ágústa sem not­ar lóð og teygj­ur yfir í potta, stóla og jafn­vel kló­sett­papp­ír til þess að fram­kvæma æf­ing­arn­ar. „Við vinn­um í lausn­um. Ef við vilj­um hreyfa okk­ur þá er hægt að not­ast við margt sem maður á til heima. Þetta er líka viss hvatn­ing fyr­ir mig að vita það að ég er að koma ein­hverju góðu frá mér út í sam­fé­lagið. Lát­um hug­mynda­flugið ráða og ger­um þetta skemmti­legt sam­an.“

Hvernig er að æfa heima?

„Það get­ur verið erfitt að viðhalda áhug­an­um en ég er mjög lán­söm með að til­heyra skemmti­leg­um og góðum æf­inga­hópi þar sem við fylgj­umst hvert með öðru. Við erum dug­leg að hvetja hvert annað áfram á þess­um erfiðu tím­um,“ seg­ir Ágústa. 

Þegar Ágústa er beðin að mæla með einni æf­ingu seg­ir hún það erfitt og seg­ir alla hreyf­ingu já­kvæða. Fyrsta skrefið sé að fara á fæt­ur. 

„Byrjaðu alla daga á því að teygja úr þér, stattu upp, labbaðu inn í eld­hús, fáðu þér vatns­glas og brostu, þetta verður góður dag­ur,“ seg­ir Ágústa sem hvet­ur fólk til þess að hreyfa sig og borða hollt en líka lifa og njóta. Sjálf er hún lítið fyr­ir boð og bönn. Að huga að heils­unni er lang­hlaup en ekki sprett­hlaup og hún mæl­ir með því að fólk setji sér raun­hæf mark­mið. 

Áhuga­sam­ir geta skoðað face­booksíðu Ágústu og reynt sig við æf­ing­ar henn­ar. 

mbl.is

Stönd­um sam­an

Við hjá Árvakri vilj­um vekja at­hygli á því sem vel er gert á þess­um erfiðu tím­um. Ef þú ert með góða sögu af fyr­ir­tækj­um og ein­stak­ling­um sem eru að gera gott, sendu okk­ur ábend­ingu á net­fangið stond­um­sam­an@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda