Svona vildu Íslendingar hafa heimili sín 2021

Fólk hef­ur sjald­an haft eins mik­inn áhuga á heim­il­inu og 2021. Þetta byrjaði af full­um krafti 2020 þegar veir­an breytti neyslu­venj­um fólks. Þegar fólk er meira heima legg­ur það meira upp úr því að hafa fal­legt í kring­um sig. Þegar heim­ilið breyt­ist í vinnustað, skemmti­stað og griðastað kall­ar það á aðrar þarf­ir. 

Marg­ir létu nægja að kaupa nýj­an sófa, ný ljós eða nýj­ar mott­ur en þeir sem kusu að skipta um inn­rétt­ing­ar og gól­f­efni voru hrifn­ir af dökk­um viðar­inn­rétt­ing­um og var marm­ara­borðplat­an vin­sæl. Fólk skipti pla­köt­um út og keypti mál­verk eft­ir lista­menn og hengdi upp á vegg hjá sér. Blönd­un­ar­tæk­in voru svört eða úr brassi og mikið var lagt upp úr góðri lýs­ingu. Fólk vildi hlý­leika og mjúk­ir jarðlit­ir voru vin­sæl­ir og voru marg­ir í því að mála bæði veggi og loft í sama lit. Þeir sem þurftu að skipta um gól­f­efni völdu fiski­beinap­ar­ket, terrazzo-flís­ar eða marm­araflís­ar. Allt skapaði þetta heill­andi heild­ar­mynd sem var eft­ir­sókn­ar­verð 2021.

Lampi árs­ins!

Einn vin­sæl­asti lamp­inn 2021 var litla krúttið frá Verner Pant­on, Flowerpot Porta­ble VP9. Um er að ræða lampa sem sem hægt er að hafa hvar sem er því hann er hlaðinn eins og sími. Lamp­inn kem­ur í ótal lit­um og pass­ar nán­ast við hvaða heim­il­is­stíl sem er. Hann var þó ekki eini lamp­inn sem gerði góða hluti því stór­ar og mynd­ar­leg­ar ljósakrón­ur voru áber­andi. Pappakúl­an frá Hay gerði til dæm­is góða hluti á ár­inu, ekki bara fyr­ir út­lit heim­il­is­ins held­ur líka fyr­ir budd­una því stykkið kost­ar í kring­um 5.000 krón­ur.

Vegg­ljós árs­ins!

Vegg­ljós voru mjög vin­sæl á ár­inu, sér­stak­lega ljós úr gleri, sem gerði heim­ilið kon­ung­borið. Það kem­ur kannski ekki á óvart að Solk­lint-ljósið frá IKEA sé ein sölu­hæsta vara árs­ins hjá fyr­ir­tæk­inu.

Kerti árs­ins!

Það var eng­inn maður með mönn­um nema eiga snú­in kerti. Þessi kerti fást í versl­un­um víða um land en þeir sem höfðu ekki tæki­færi til að kaupa þau voru jafn­vel að snúa hefðbund­in kerti yfir vatnsbaði.

Plönt­ur!

Ef það var eitt­hvað sem var áber­andi á heim­il­um lands­manna þá voru það plönt­ur. Plönt­urn­ar voru í öll­um stærðum og gerðum. Mon­ster­an var sterk allt árið ásamt pálma­trjám og ban­ana­plönt­um en svo fór að bera á fleiri teg­und­um. Fólk með slök­ustu grænu fing­ur lands­ins náði að halda lífi í plönt­um heim­il­is­ins, sem þykir mikið af­rek.

Hér má sjá kristalsglösin frá Fredrik Bagger. Þau fást bæði …
Hér má sjá krist­als­glös­in frá Fredrik Bag­ger. Þau fást bæði í Epal og í Snúr­unni. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Glös árs­ins!

Það var eng­inn maður með mönn­um nema eiga alla­vega tvö krist­als­glös frá Fredrik Bag­ger. Glös­in koma í nokkr­um lit­um og í nokkr­um mis­mun­andi út­færsl­um. Það kling­ir fal­lega í þeim þegar skálað er. Þessi fal­legu glös fást á nokkr­um stöðum eins og til dæm­is í Epal og Snúr­unni.

Motta árs­ins!

Það ætlaði allt um koll að keyra þegar fyr­ir­tækið Cromwell Rugs aug­lýsti „krísu-út­rým­ing­ar­sölu“ á mott­um í Morg­un­blaðinu. Miðað við hvað vel gekk að selja mott­urn­ar ætti annað hvert heim­ili á land­inu að státa af pers­nesku teppi.

Stóru pappaljósin frá Hay voru vinsæl á árinu. Þau fást …
Stóru pappa­ljós­in frá Hay voru vin­sæl á ár­inu. Þau fást í Epal og Penn­an­um.
Terrazzo-flísar voru vinsælar á árinu ásamt blöndunartækjum úr brassi.
Terrazzo-flís­ar voru vin­sæl­ar á ár­inu ásamt blönd­un­ar­tækj­um úr brassi.
Hér má sjá baðherbergi með marmaraplötu sem hannað var af …
Hér má sjá baðher­bergi með marm­ara­plötu sem hannað var af Sæju. Ljós­mynd/​Guðfinna Magg
Hér má sjá hönnun Sæju í heimahúsi á Íslandi. Dökkar …
Hér má sjá hönn­un Sæju í heima­húsi á Íslandi. Dökk­ar inn­rétt­ing­ar, stór­ar flís­ar og mjúk­ir lit­ir eru í for­grunni en slíkt var áber­andi á heim­il­um lands­manna á nýliðnu ári. Ljós­mynd/​Guðfinna Magg
Fiskibeinaparket var áberandi á árinu og líka PH-lampinn sem er …
Fiski­beinap­ar­ket var áber­andi á ár­inu og líka PH-lamp­inn sem er fyr­ir ofan borðið. Ljós­mynd/​Gunn­ar Sverris­son
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda