Lærir að gera upp gömul hönnunar húsgögn

Berglind Rafnsdóttir er nemi í húsgagnabólstrun.Hér má sjá hana með …
Berglind Rafnsdóttir er nemi í húsgagnabólstrun.Hér má sjá hana með stól sem hún bólstrað

Und­an­farna mánuði hef­ur Berg­lind Rafns­dótt­ir dvalið í Dan­mörku þar sem hún hef­ur lært hús­gagna­bólstrun af Dön­um. Berg­lind lít­ur á bólstrun sem list og seg­ir það að fá að gefa göml­um hús­gögn­um nýtt líf gríðarlega gef­andi.

Berg­lind er nemi í Tækni­skól­an­um en er í skipti­námi við skól­ann Skive Col­l­e­ge. Hún seg­ir ekki hægt að klára hús­gagna­bólstrun nema að fara í Skive og klára þar stór­an hluta af verk­lega nám­inu.

„Hér í Skive er lögð áhersla á iðnaðar­bólstrun og við fáum að vinna með hefðbundna upp­bygg­ingu á bólstrun. Við vinn­um með leður sem áklæði, bind­um upp fjaðrir í setu í hæg­inda­stól með háu baki, lær­um að gera djúp­heft­ing­ar og margt fleira,“ seg­ir Berg­lind um námið í Dan­mörku.

Bólstrun er búin að vera und­ir­liggj­andi áhugi hjá Berg­lindi í lang­an tíma. „Ég leitaði út um allt á sín­um tíma að bólstr­un­ar­nám­skeiðum og var það ein­ung­is boðið í Tækni­skól­an­um. Ég skráði mig á nám­skeið í októ­ber 2018 og þá kviknaði áhug­inn og ég sá strax að þetta væri eitt­hvað fyr­ir mig. Ég sá strax fyr­ir mér feg­urðina í þess­ari at­vinnu­grein, að taka að mér göm­ul hús­gögn og fá að sjá hvernig þau voru bund­in og byggð upp að inn­an á gaml­an máta. Því­lík feg­urð og list í þessu öllu sam­an. Að fá að læra það sjálf, að binda og byggja stóla og sófa upp og gefa þeim nýtt líf er al­gjört lista­verk.“

Í heimi of­gnótt­ar og sóun­ar þar sem sí­fellt er talað um mik­il­vægi þess að huga að um­hverf­inu er fag hús­gagna­bólstr­ara að koma sterkt inn aft­ur. „Að end­ur­bólstra hús­gögn get­ur verið hag­kvæm­ara og um­hverf­i­s­vænni kost­ur fyr­ir þá sem vilja upp­færa og varðveita hús­gögn­in sín. Hins veg­ar er mik­il­vægt að hugsa um að fara með hús­gögn­in til þeirra sem eru með þekk­ingu og kunn­áttu til að bólstra hús­gögn á rétt­an hátt,“ seg­ir Berg­lind.

Berglind hefur meðal annars lært að reikna út hversu mikið …
Berg­lind hef­ur meðal ann­ars lært að reikna út hversu mikið áklæði á að vera á ein­um stól og búa til snið. Ljós­mynd/​Aðsend

Lærði að flétta set­ur í gamla gull­mola

Hef­ur þú alltaf verið flink í hönd­un­um?

„Flink og ekki flink, það hef­ur alltaf verið mik­ill áhugi á að læra allt sem teng­ist handa­vinnu, sauma og fleira. En á yngri árum fannst mér erfitt að sitja kyrr þannig að þá hentaði þetta mér ekki vel en ég lærði og reyndi ávallt. Í dag er þetta bara æf­ing sem skap­ar meist­ar­ann og að skapa eitt­hvað lif­ir sterkt í mér.“

Áður fyrr fékk Berg­lind út­rás fyr­ir sköp­un­ar­kraft­inn í hreyf­ingu en hún er menntaður dans­ari. Hún seg­ir þess­ar tvær grein­ar eiga ým­is­legt sam­eig­in­legt. „Dans­inn lif­ir sterkt í mér og mér fannst dans­inn læðast inn með bólstr­un­inni á þann hátt hvernig ég sé hlut­ina þró­ast og byggj­ast upp. Dans­inn er list og fyr­ir mér er bólstrun list. Feg­urðin að sjá gaml­an stól með fal­lega sögu og jafn­vel nýj­an stól þar sem hús­gagnið fær tæki­færi til að blómstra heima hjá fólki. Fyr­ir mér er þetta eins og góður spunadans inni í stúdiói sem þró­ast hægt og ró­lega að fal­legu dans­verki. Þol­in­mæði, gleði og áhugi er mik­il­vægt í báðum fög­un­um.“

Á vinnustofunni í Skive í Danmörku.
Á vinnu­stof­unni í Skive í Dan­mörku. Ljós­mynd/​Aðsend

Hef­ur eitt­hvað komið skemmti­lega á óvart við námið?

„Það hef­ur margt skemmti­legt gerst. Við erum að hanna okk­ar eigið barna­hús­gagn núna sem er í vinnslu og svo erum við að vinna mikið í teikni­for­rit­inu autocad, teikna stól frá grunni, teikna og reikna út hversu mikið áklæði á að vera á ein­um stól, búa til snið og verðleggja og fleira. Maður fær tæki­færi til að fara á verk­stæði sem var mjög lær­dóms­ríkt og skemmti­legt að fá inn­sýn í danskt bólstr­un­ar­verk­stæði og fá tæki­færi til að vera kring­um flott hönn­un­ar­hús­gögn.“

Í verk­nám­inu í Dan­mörku hef­ur Berg­lind meðal ann­ars ofið ný sæti í klass­íska danska hönn­un­ar­stóla. „Ég fór í verk­nám á verk­stæðið Balderus í Hadsten á Jótlandi. Þau eru sér­fræðing­ar í að vefa ný sæti í klass­íska hönn­un­ar­stóla. Ég fékk þann heiður að flétta nýja setu í Hans Wegner-stóla. Það er nú meira en að segja það að flétta svona stóla, þeir sögðu við mig mál­tækið: „Stóll núm­er 20“,“ seg­ir Berg­lind og út­skýr­ir setn­ing­una á þann hátt að á stól 20 er bólstr­ar­inn kom­inn með góð tök á flétt­unni.

Sessa í Y-stóllinn eftir Hans J. Wegner í vinnslu.
Sessa í Y-stóll­inn eft­ir Hans J. Wegner í vinnslu.

„Það er gam­an að segja frá því að þetta kall­ast um­slags­flétta og sést á tvenn­um vin­sæl­um stól­um frá fjórða ára­tug síðustu ald­ar. Stóll­inn J39 frá Bor­ge Mo­gensen er með þykkri papp­írs­snúru og svo er það Y-stóll­inn frá Hans Wegner og þar er fléttað með fínni óreimaðri papp­írs­snúru. Eft­ir um­slags­flétt­una fékk ég einnig að læra að flétta „flat wea­ve“ og það kem­ur frá hönnuðinum N.O Møller. Þar er gert eins og köfl­ótt mynstur og er kölluð ofin flétta og er mjög slit­sterk. Því­lík list sem ég fékk að læra og upp­lifa á þessu verk­stæði. Núna er ég að halda mig við að flétta og ná góðum tök­um og vinna mig upp í stól núm­er 20.“

Berglind lærði að flétta sæti í klassíska stóla. Klassísk húsgögn …
Berg­lind lærði að flétta sæti í klass­íska stóla. Klass­ísk hús­gögn end­ast lengi og þá sér­stak­lega ef þau fá góða meðhöndl­un hjá fag­fólki. Ljós­mynd/​Aðsend

Eig­inmaður­inn er heima með börn­in

Námið úti er 20 vik­ur og á meðan bíður fjöl­skyld­an heima á Íslandi. Berg­lind ját­ar að það hafi verið stórt stökk að fara út. „Ég vissi fyr­ir fram að ég yrði að fara út til að klára námið og fannst það spenn­andi en að sjálf­sögðu þegar það kom að því þá varð ég stressuð. Ég og maður­inn minn rædd­um þetta fram og til baka, hver væri besta leiðin fyr­ir okk­ur og börn­in því þetta er ein önn sem er lang­ur tími frá fjöl­skyld­unni og öll­um skyld­um sín­um heima. En þetta er búið að ganga ótrú­lega vel, maður­inn minn er al­gjör hetja að sjá um allt heim­ilið og börn­in og ég bjóst nú ekki við neinu öðru en auðvitað var erfitt fyr­ir mig að reyna ekki að skipta mér af aðstæðunum heima, þurfti oft að stoppa sjálfa mig, en fjar­lægðin ger­ir fjöll­in blá.“

Ertu með drauma fyr­ir framtíðina?

„Stofna fyr­ir­tæki og blómstra í bólstr­un­inni, síðan mögu­lega fara að vinna með hús­gagna­hönnuðum og skapa og búa til skemmti­lega hluti. Síðan auðvitað halda áfram að tengja bólstr­un­ina og dans­inn sam­an og hafa gam­an af því sem ég er að gera því það skipt­ir mig mestu máli.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda