Svona getur þú sparað í matarinnkaupum

Svona getur þú sparað í matarinnkaupum!
Svona getur þú sparað í matarinnkaupum! Ljósmynd/Unsplash/Getty

Það eru marg­ir sem setja sér mark­mið á nýju ári sem tengj­ast sparnaði og pen­inga­mál­um á ein­hvern hátt. Sum­ir vilja elda meira heima og reyna þannig að spara pen­ing á meðan aðrir vilja vera skipu­lagðari í mat­ar­inn­kaup­um. 

Það eru ef­laust flest­ir sam­mála því að mat­arkarf­an á Íslandi sé ekki ódýr. Það eru þó hægt að spara þegar kem­ur að mat­ar­inn­kaup­um, en ný­lega birt­ist mynd­band á TikT­ok-reikn­ing­in­um Leit­in að pen­ing­un­um með hag­nýt­um sparnaðarráðum fyr­ir næstu búðarferð. 

1. Skrifaðu niður inn­kaupal­ista.

Það get­ur verið gott að skipu­leggja mat­ar­inn­kaup­in áður en haldið er af stað í búðina. Þá er einnig mælt með því að kaupa allt sem þarf fyr­ir vik­una, nema þá kannski ferskvöru eins og kjöt, fisk eða græn­meti sem neyta á síðar í vik­unni.

2. Ekki fara svöng að versla.

Það seg­ir sig sjálft – það er ým­is­legt sem get­ur endað óvænt í körf­unni ef maður fer svang­ur að versla.

3. Breyttu til og ekki versla alltaf í sömu búðinni.

„„Mat­vöru­versl­an­ir eru hannaðar með það í huga að við eyðum sem mest af pen­ing­um þegar við för­um inn í þær. Því þurf­um við að ganga í gegn­um alla búðina til að kaupa mjólk, kjöt og fisk. Ákveðnum vör­um er stillt upp í augn­hæð svo við kom­umst ekki hjá því að sjá þær og þar af leiðandi erum við lík­legri til að kaupa þær. Ver­um meðvituð um þetta.

Við höld­um mikið í vana og því er gott að breyta til og versla ekki alltaf í sömu búðinni. Þannig versl­um við minni óþarfa. Í nýrri búð þarf maður að leita að hlut­un­um sem maður fór til að kaupa og verður því meðvitaðri um hvað maður er að versla,“ er út­skýrt í mynd­band­inu.

4. Kauptu mikið magn af vöru – en aðeins ef þrjú skil­yrði eru upp­fyllt:

  • Kílóa­verð vör­unn­ar er lægra í magni
  • Þú hef­ur pláss til að geyma þessa vöru
  • Þú munt ná að neyta vör­unn­ar áður en hún skemm­ist eða er kom­in yfir síðasta sölu­dag

5. Kauptu græn­meti í stykkja­tali.

Þó það geti verið þægi­legt að kaupa innn­pakkað græn­meti er það oft­ast dýr­ara en græn­meti í stykkja­tali. 

6. Ekki kaupa snakk og sæl­gæti til að eiga.

Sum­ar mat­vör­ur, eins og snakk og sæl­gæti, eru þannig að þær eru bara borðaðar ef að þær eru til. Því er best að kaupa slík­ar vör­ur ein­ung­is þegar á að neyta þeirra, en ekki til þess að eiga þær til uppi í skáp.

7. Leggðu sam­an það sem fer ofan í körf­una jafn óðum.

Það er góð regla að leggja stutt­lega sam­an verðið jafn óðum og hlut­um er hent ofan í inn­kauðakörf­una, en þá fáum við betri yf­ir­sýn yfir eyðsluna og verðið kem­ur okk­ur síður á óvart þegar við kom­um að kass­an­um. 

8. Nýttu þér net­versl­an­ir.

Net­versl­an­ir mat­vöru­búða geta verið sniðugar, en þar er auðvelt að fá yf­ir­sýn yfir það sem komið er í körf­una og á sama tíma slepp­ur þú við búðarferðina. 

9. Hafðu aug­un opin fyr­ir góðum til­boðum.

Það get­ur verið sniðugt að nýta sér til­boð. Ef við sjá­um að vara sem við kaup­um gjarn­an er á út­sölu er sniðugt að koma henni fyr­ir á vikumat­seðlin­um. 

10. Það er ekk­ert að því að frysta!

Stund­um fer mat­vara á til­boð þegar hún er að fara á síðasta sölu­dag. Ef gæði henn­ar hafa ekki skerst er ekk­ert að því að kaupa nokk­ur ein­tök til að frysta og neyta síðar. 

11. Létt­ari máltíðir geta verið góður kost­ur

Í mynd­band­inu er út­skýrt að ef all­ir í fjöl­skyld­unni fá heit­an og holl­an mat í há­deg­inu þá sé í raun ekk­ert sem mæl­ir gegn því að hafa ein­fald­ari mat um kvöldið, eins og súp­ur, sal­at, sam­lok­ur eða grauta.

12. Nýttu af­gang­ana dag­inn eft­ir

Mælt er með því að mat­ar­inn­kaup­in og elda­mennsk­an sé skipu­löggð þannig að hægt sé að nota af­ganga í há­deg­is­mat dag­inn eft­ir.

13. Tvö­föld eða þreföld upp­skrift

Það get­ur bæði sparað tíma og pen­ing að gera tvö­falda eða þre­falda upp­skrift og frysta svo af­gang­inn.

14. Há­deg­is­seðlar eru oft ódýr­ari

Það er gam­an að gera vel við sig og fara út að borða. Ef þig lang­ar út að borða á fínni staði en vilt samt spara pen­ing, þá er mælt með því að skoða há­deg­is­mat­seðla þar sem þeir eru oft ódýr­ari en kvöld­seðlarn­ir.

15. Nýttu þér til­boð á mat­sölu­stöðum

Það má svo sann­ar­lega leyfa sér að fara út á mat­sölustaði eða skyndi­bitastaði af og til, en þá er mælt með því að skoða til­boð frá síma­fyr­ir­tækj­um eða bönk­um sem bjóða oft upp á tveir fyr­ir einn til­boð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda