Þetta eru 6 verstu sparnaðarráðin

Stundum þarf að horfa í krónurnar.
Stundum þarf að horfa í krónurnar. mbl.is/Golli

Marg­ir eru að draga sam­an segl­in eft­ir jól­in og leita leiða til þess að fá sem mest fyr­ir pen­ing­inn. Þá er gott að hafa í huga að það skipt­ir máli hvernig maður spar­ar. Sum sparnaðarráð eru dýr­keypt.

1. Að kaupa alltaf það sem er ódýr­ast

Það get­ur verið kostnaðarsamt til langs tíma að láta verðið ráða för og kaupa alltaf það sem er ódýr­ast hverju sinni. Oft er verðið lægra því gæðin eru minni. Slík­ir hlut­ir geta því auðveld­lega bilað eða eyðilagst. Þetta get­ur átt við um stærri og minni hluti, flík­ur eða ís­skápa. Kostnaður­inn til langs tíma við að henda, kaupa nýtt eða gera við, get­ur orðið mun meiri en upp­haf­lega var gert ráð fyr­ir.

2. Að nýta alla af­slátt­ar­miða

Það að vilja nýta alla af­slátt­ar­miða gæti orðið til þess að maður kaup­ir hluti sem maður þarf ekki. Maður er því í raun að eyða óþarfa pen­ing­um og eng­inn sparnaður í því fólg­inn.

3. Að sleppa trygg­ing­um

Það get­ur verið freist­andi að sleppa trygg­ing­um eins og til dæm­is for­falla­trygg­ing­um á flug­miðum. Hins veg­ar er það dýrt spaug að vera ekki tryggður þegar á þarf að halda. Slys eða neyðar­til­vik geta átt sér stað og þá vill maður geta fengið það bætt.

4. Að gera magn­inn­kaup

Það er hag­kvæmt að kaupa í ákveðnu miklu magni en bara ef maður sér fram á að nota allt áður en vör­urn­ar eyðileggj­ast eða renna út á tíma. Ann­ars er maður bara að henda pen­ing­um í ruslið.

5. Að gera allt sjálf­ur

Það er stund­um betra að ráða fag­mann í verk inn­an­húss. Það er kannski ódýr­ara að ætla að gera allt sjálf­ur en ef eitt­hvað fer úr­skeiðis þá er það enn kostnaðarsam­ara að láta gera við. Þekktu þína styrk­leika!

6. Að fresta viðhaldi

Það að fresta viðhaldi heima­fyr­ir get­ur leitt til kostnaðarsam­ari út­gjalda seinna meir. Að halda við húsi jafnt og þétt kem­ur í veg fyr­ir dýr­ari fram­kvæmd­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda