Sparaði með að hætta að nota kort

Cassie Cooper notar ekki lengur kort eða síma til að …
Cassie Cooper notar ekki lengur kort eða síma til að borga fyrir hluti. Skjáskot/Instagram

Cassie Cooper náði tök­um á fjár­mál­un­um með því að hætta al­farið að nota kortið sitt. Hún not­ar reiðufé þegar hún þarf að kaupa mat og aðrar nauðsynj­ar.

Sér­fræðing­ar segja að það að borga með reiðufé ger­ir mann meðvitaðri um inn­kaup­in og það verður auðveld­ara að fylgj­ast með eyðslunni.

„Þetta er ein besta leiðin til þess að spara,“ seg­ir Cooper í viðtali við The Sun. 

„Ég hef bara ákveðna upp­hæð til að eyða. Ef ég væri með kort þá væri ég mun sveigj­an­legri með upp­hæðina og myndi leyfa mér meira,“ seg­ir Cooper en þessi breyt­ing varð til þess að hún hætti að spreða í óþarfa nammi eða vín eins og hún var vön.

„Ég forðast núna tveir fyr­ir einn til­boð í mat­vöru­búðum og kaupi ekki óþarfa hluti eins og súkkulaði til að eiga í bíln­um á leiðinni heim. Ég hef held­ur ekki keypt neitt á net­inu þar sem þá þyrfti ég að nota kortið mitt.“

„Þó að fólk myndi bara gera þetta eina viku í mánuði þá myndi það samt skila sér í sparnaði þegar litið er á árið í heild sinni.“

„Maður var orðinn svo van­ur að smella kort­inu á pos­ann að þetta var ekki leng­ur eins og al­vöru pen­ing­ar. Maður fór í búðina og keypti alltaf aðeins meira en maður ætlaði sér.“

„Nú er freist­ing­in minni. Ég geng í vinn­una þannig að ég þarf ekki að eyða mikl­um pen­ing­um í bens­ín. Ég set bara smá á tank­inn frek­ar en að fylla hann.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda