10 sparnaðarráð fyrir fermingarveisluna

Í fermingarveislum fortíðarinnar tíðkaðist það að halda veislur heima og …
Í fermingarveislum fortíðarinnar tíðkaðist það að halda veislur heima og voru húsgögn fjarlægð til þess að koma öllum fyrir. Getty Images/Unsplash

Ferm­ing­ar­veisl­ur geta í aug­um sumra verið heil­mikið mál enda þarf að huga að mörgu eins og veit­ing­um, skreyt­ing­um, föt­um og hús­næði svo fátt eitt sé nefnt. Það er ekki ódýrt í dag að ferma, sér í lagi þegar kaupa þarf all­ar veit­ing­ar út og leigja sal. En það er ým­is­legt sem hægt er að gera til að létta á budd­unni og gera ferm­ing­una hag­kvæm­ari.

  1. Hægt er að spara heil­mik­inn pen­ing með því að baka sjálf­ur. Sniðugt er að baka botna tölu­vert áður en ferm­ing­in á að vera og frysta. Þá á bara eft­ir að setja kök­urn­ar sam­an þegar kem­ur að ferm­ing­unni. Kök­ur sem gott er að frysta eru t.d. mar­ens, svamp­botn­ar, súkkulaðiköku­botn­ar og form­kök­ur.
    Ljós­mynd/​Cal­um Lew­is/​Unsplash
  2. Forðist að nota ber á kök­urn­ar, þau eru mjög dýr. Notið held­ur kókós­mjöl, súkkulaðik­url, möndlu­f­lög­ur eða köku­skraut sem fæst í miklu úr­vali t.d. í Hag­kaup.
    Dav­id Holifield/​Unsplash
  3. Hafið í huga að vera ekki með of marg­ar teg­und­ir af veit­ing­um. Ef fjöldi gesta er mik­ill er gott að fjölga ekki teg­und­um held­ur hafa frek­ar 2-3 stykki af hverju og bæta á þegar klár­ast. Þetta auðveld­ar vinn­una og hrá­efn­isnýt­ing­in verður betri og þar með ódýr­ari.
    Getty Ima­ges/​Unsplash
  4. Þeir sem eiga góða að geta beðið ein­hverja í fjöl­skyld­unni að hjálpa til við að upp­varta svo ekki þurfi að kaupa út þjón­ustu­fólk, einnig mætti biðja ein­hverja ná­komna að baka eitt­hvað smá, því margt smátt ger­ir eitt stór.
    Maryam Sicard/​Unsplash
  5. Heima­gerð salöt og kex, fylla vel upp í á veislu­borðinu og tún­fiskssal­at er alltaf vin­sælt og ódýrt. 
    Katie Ros­ario/​Unsplash
  6. Súpa er til­val­in í veisl­ur, hún get­ur verið saðsöm og ódýr. Mexí­kósk­ar eða taí­lensk­ar kjúk­lingasúp­ur er ekki flókið að gera en mik­il­vægt er að fá leigðan eða lánaðan súpupott til að halda heitu. Með súp­unni er sniðugt að vera með heima­gerðar brauðboll­ur sem hægt er að gera áður og frysta þar til á ferm­ing­ar­dag­inn.
    Brooke Lark/​Unsplash

     
  7. Sleppið því að kaupa einnota pappa­diska og hafið al­vöru leirtau, það er bæði um­hverf­i­s­vænna og ódýr­ara og það þarf hvort eð er að setja uppþvotta­vél­ina nokkr­um sinn­um í gang eft­ir veisl­ur.
    Karol­ina Gra­bowska/​Unsplash
  8. Áætlið magn vel, það er dýrt og óþarfi að sitja uppi með mikið magn af af­göng­um. Áætlað er að venju­leg kringl­ótt kaka sé u.þ.b. 12 sneiðar og þumalputta­regl­an er að reikna með rúm­lega tveim­ur sneiðum á mann. Af brauðmeti er reiknað með 2-3 snitt­um á mann og u.þ.b. 2 sneiðum af brauðtert­um á mann. 
    Kelly Sikk­ema/​Unsplash
  9. Þegar kem­ur að skreyt­ing­un­um er hægt að fara marg­ar leiðir sem þurfa ekki að kosta mikið. Afar fal­legt er að kaupa lif­andi blóm eins og brúðarslör og setja í lít­il glös út um allt borðið. Einnig má klippa brúðarslör niður og nota sem borðskraut á veislu­borðið. Vinnið með þema og lit sem góður grunn­ur er til af á heim­il­inu. Stór­ir kerta­stjak­ar eru til­vald­ir á borðið og til á flest­um heim­il­um, einnig má blanda sam­an mörg­um litl­um og dreifa á borðið. Fal­leg­ur ein­fald­ur blóm­vönd­ur ger­ir líka mikið auk þess sem hægt er að nota allskon­ar borða til að skreyta með. Á veggi sem eru auðir til dæm­is fyr­ir ofan veislu­borðið er til­valið að kaupa fána­borða og líma fyr­ir ofan, það fyll­ir upp í og ger­ir mik­inn svip án mik­ils til­kostnaðar. 
    Kelly Neile/​Unsplash
  10. Einn stærsti kostnaðarliður­inn í ferm­ing­unni er að leigja sal­inn en það er ekk­ert að því að halda veisl­una heima, það var gert hér áður fyrr nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust. Gott ráð er að fá lánaða stóla og lít­il borð til dæm­is hjá ná­grönn­um eða fjöl­skyldu og reyna að nýta öll her­bergi vel þannig að það sé góð aðstaða til að borða í fyr­ir nokkra gesti. Einnig er sniðugt að láta gest­ina koma á mis­mun­andi tím­um, til dæm­is frænk­ur og frænd­ur fyrst og svo vin­ina. Þröngt mega sátt­ir sitja!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda