Einfaldar páskaskreytingar sem standast tímans tönn

Hugmyndir að fallegu páskaskrauti sem fegrar heimilið!
Hugmyndir að fallegu páskaskrauti sem fegrar heimilið! Samsett mynd

Það þarf alls ekki að vera flókið að töfra fram skemmti­lega páska­stemn­ingu á heim­il­inu, en lyk­ill­inn að því er að not­ast við muni og skraut þar sem fag­ur­fræði og nota­gildi mæt­ast. Með því að not­ast við skreyt­ing­ar úr nátt­úr­unni og para sam­an réttu litatón­ana get­ur þú fundið þinn páska­stíl og verið viss um að hann muni stand­ast tím­ans tönn.

Fyrsta skrefið er að finna liti sem passa inn á heim­ilið og fjöl­skyld­an teng­ir við pásk­ana. Það er klass­ískt að nota gula, app­el­sínu­gula, fjólu­bláa og bleika tóna í tengsl­um við pásk­ana. Þetta er til dæm­is hægt að gera með því að setja fal­leg blóm, strá eða grein­ar í vasa, en einnig með því að bæta inn á heim­ilið kerta­stjök­um, skál­um, vös­um eða kert­um í fal­leg­um lit­um.

Skraut­leg egg eru að margra mati hið full­komna páska­skraut. Þau er hægt að fá í hinum ýmsu lit­um og mynstr­um með allskyns áferð, en það er auðvelt að nota þau til að skreyta heim­ilið og meira að segja lítið mál að föndra egg­in sjálf. Skelltu nokkr­um skrauteggj­um á páska­grein­arn­ar til að setja punktið yfir i-ið eða raðaðu þeim ofan í fal­lega skál eða á fat og notaðu sem borðskraut. Hang­andi egg er svo vel hægt að nota sem skraut á jóla­tréð næsta vet­ur!

Páskagreinar sem gleðja augað! Hér má sjá fallegar greinar með …
Páska­grein­ar sem gleðja augað! Hér má sjá fal­leg­ar grein­ar með bleik­um blóm­um sem fást hjá 4 árstíðum. Skjá­skot/​In­sta­gram
Undurfögur hangandi egg úr postulíni sem fanga augað! Fást hjá …
Und­ur­fög­ur hang­andi egg úr postu­líni sem fanga augað! Fást hjá Söstrene Grene og kosta 288 kr. Ljós­mynd/​Sostrenegrene.is
Einföld leið til að bæta smá litagleði inn á heimilið! …
Ein­föld leið til að bæta smá litagleði inn á heim­ilið! Þess­ir kerta­stjak­ar fást í Fakó, en þeir koma í nokkr­um stærðum og lit­um og kosta frá 1.195 til 1.685 kr. Ljós­mynd/​Fako.is
Páskalegar skálar sem hægt er að nota sem kertastjaka, undir …
Páska­leg­ar skál­ar sem hægt er að nota sem kerta­stjaka, und­ir lít­il súkkulaðiegg eða til að bera fram meðlæti á páska­borðið. Skál­arn­ar fást hjá Bast og koma í þrem­ur stærðum og kosta frá 2.295 til 5.295 kr. Ljós­mynd/​Bast.is
Fögur egg úr pappa í notalegum jarðlitum. Eggin fást hjá …
Fög­ur egg úr pappa í nota­leg­um jarðlit­um. Egg­in fást hjá Purk­húsi, en þau koma þrjú sam­an í pakka sem kost­ar 1.490 kr Ljós­mynd/​Purk­hus.is
Fallegur bakki sem hægt er að raða skrautlegum eggjum í …
Fal­leg­ur bakki sem hægt er að raða skraut­leg­um eggj­um í eða bera páskamat­inn fram á. Bakk­inn er frá Marra­kech og er hand­gerður, en hann fæst hjá Ramba Store og kost­ar 5.990 kr. Ljós­mynd/​Ramba­store.is
Skemmtileg áferð og litafegurð einkennir þennan glervasa frá House Doctor, …
Skemmti­leg áferð og lita­feg­urð ein­kenn­ir þenn­an glervasa frá Hou­se Doctor, en hann er til­val­inn und­ir páska­blóm­in eða grein­arn­ar. Vasinn fæst hjá Fakó og kost­ar 6.600 kr. Ljós­mynd/​Fako.is
Kerti frá náttúrunni! Þessi kerti eru úr bývaxkertalínu OVO og …
Kerti frá nátt­úr­unni! Þessi kerti eru úr bý­vaxkertalínu OVO og skapa afar nota­lega stemn­ingu, en þau fást hjá Mika­do og kosta 7.990 kr. Ljós­mynd/​Mika­do.store
Það þarf oft ekki meira en að setja fallegan páskablómvönd …
Það þarf oft ekki meira en að setja fal­leg­an páska­blóm­vönd í flott­an vasa til að skapa réttu stemn­ing­una, en hér má sjá dæmi um fal­lega lita­sam­setn­ingu í blóm­vendi frá 4 árstíðum. Skjá­skot/​In­sta­gram
Fat með skemmtilegu mynstri og appelsínugulum tónum sem smellpassa á …
Fat með skemmti­legu mynstri og app­el­sínu­gul­um tón­um sem smellpassa á páska­borðið. Fæst hjá Fakó og kost­ar 15.900 kr. Ljós­mynd/​Fako.is
Mínimalískt og fallegt! Þessi egg eru fullkomin fyrir þau sem …
Míni­malískt og fal­legt! Þessi egg eru full­kom­in fyr­ir þau sem vilja lát­laus­ar páska­skreyt­ing­ar, en þau eru gerð úr pappa­massa og hafa því fal­lega áferð. Egg­in fást hjá Dimm og kosta 1.290 kr. Ljós­mynd/​Dimm.is
Fallegar servíettur geta auðveldlega sett punktinn yfir i-ið. Þessar fást …
Fal­leg­ar serví­ett­ur geta auðveld­lega sett punkt­inn yfir i-ið. Þess­ar fást í Fakó kosta 965 kr. Ljós­mynd/​Fako.is
Þurrkaður blómvöndur í páskalegum litum fæst hjá Módern og kostar …
Þurrkaður blóm­vönd­ur í páska­leg­um lit­um fæst hjá Mód­ern og kost­ar 2.490 kr. Ljós­mynd/​Modern.is
Látlaus og falleg egg úr gleri sem eru bæði flott …
Lát­laus og fal­leg egg úr gleri sem eru bæði flott hang­andi eða sem borðskraut. Þau koma í nokkr­um lit­um og fást hjá Söstrene Grene og kosta 198 kr. Ljós­mynd/​Sostrenegrene.is
Gleðilegar kvarnir í gulum lit fást hjá Fakó og kosta …
Gleðileg­ar kvarn­ir í gul­um lit fást hjá Fakó og kosta 6.400 kr. Ljós­mynd/​Fako.is
Stílhreint handgert kanínuskraut sem passar inn í hvaða rými sem …
Stíl­hreint hand­gert kan­ínu­skraut sem pass­ar inn í hvaða rými sem er! Fæst hjá Fanga­verki og kost­ar 3.500 kr. Ljós­mynd/​Fanga­verk.is
Blómaservíettur klikka ekki um páskana! Þessar eru frá Marimekko, en …
Blómaserví­ett­ur klikka ekki um pásk­ana! Þess­ar eru frá Mari­mek­ko, en þær fást hjá Epal og kosta 850 kr. Ljós­mynd/​Epal.is
Skreyttu borðið eða kökuna með fallegum súkkulaðieggjum! Þessi eru frá …
Skreyttu borðið eða kök­una með fal­leg­um súkkulaðieggj­um! Þessi eru frá Nicolas Vahé, en þau fást hjá Fakó og kosta 1.835 kr. Ljós­mynd/​Fako.is
Það er hægt að búa til allskyns skemmtilegt skraut á …
Það er hægt að búa til allskyns skemmti­legt skraut á borðið með tauserví­ett­um. Þess­ar eru fag­ur­gul­ar úr hör­efni, en þær fást í Iittala-búðinni og kosta 2.695 kr. Ljós­mynd/​Ibudin.is
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda