Vinkonur í Þorlákshöfn sem eltu drauminn saman

Anna Lísa Rasmussen og Anna Berglind Júlísdóttir búa til fallegar …
Anna Lísa Rasmussen og Anna Berglind Júlísdóttir búa til fallegar skreytingar á síðunni Skreytum borð. Samsett mynd

Vin­kon­urn­ar Anna Berg­lind Júlí­s­dótt­ir og Anna Lísa Rasmus­sen í Þor­láks­höfn eiga það sam­eig­in­legt að vera ein­stak­lega hug­mynda­rík­ar og eru dug­leg­ar að fegra heim­ilið. Í dag halda þær úti síðunni Skreyt­um borð og segja þær alla geta skreytt páska­borðin á fal­leg­an hátt.

„Mér finnst marg­ir tala um að þeir telji sig ekki hafa getu til að skreyta borð en ég tel að all­ir séu vel fær­ir um það ef fólk er til­búið til að gefa sér tíma til að skoða það góða efni sem er í boði. Má segja að við Anna Lísa höf­um kom­ist að því hvar áhugi okk­ar ligg­ur fljót­lega eft­ir að við kynnt­umst og þegar við buðum hvor ann­arri í mat þá lá þetta áhuga­mál ljóst fyr­ir. Okk­ur fannst því til­valið að setja upp síðuna Skreyt­um borð og von­umst við til að fólk fái þar ein­hverj­ar hug­mynd­ir sem það get­ur nýtt sér,“ seg­ir Anna Berg­lind um síðuna Skreyt­um borð og vin­skap­inn.

Páskaborðið er hátíðlegt en þarf ekki að vera gult eins …
Páska­borðið er hátíðlegt en þarf ekki að vera gult eins og vin­kon­urn­ar Anna Lísa og Anna Berg­lind sýna hér. Nátt­úru­leg­ir lit­ir eru í aðal­hlut­verki í borðstof­unni. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
Það er einfalt og ódýrt að skreyta með gulum kertum …
Það er ein­falt og ódýrt að skreyta með gul­um kert­um en á sama tíma er fátt páska­legra. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Vin­kon­urn­ar skreyttu þrjú borð fyr­ir páska­blaðið. Í bland við gula páskalit­inn notuðu þær nátt­úru­leg­ar skreyt­ing­ar og efnivið. Þær leggja áherslu á að skreyt­ing­ar og hús­búnaður þurfi ekki alltaf að kosta mikið. Sér­staka at­hygli vek­ur fal­leg skreyt­ing með sítr­ón­um. „Okk­ur finnst fal­legt að skreyta með sítr­ón­um og eru þær til­vald­ar sem páska­skraut. Sem dæmi er hægt að setja þær í fal­leg­ar skál­ar eða búa til sítr­ónu­tré eins og við gerðum,“ seg­ir Anna Lísa en hægt er að sjá mynd­band með aðferðinni á In­sta­gram-síðu þeirra.

Suðræn og páskaleg skreyting. Þegar páskarnir eru búnir er hægt …
Suðræn og páska­leg skreyt­ing. Þegar pásk­arn­ir eru bún­ir er hægt að nota sítr­ón­urn­ar. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Anna Berg­lind seg­ir að á henn­ar heim­ili sé hefð að borða sam­an morg­un­mat. „Við lögðum á morg­un­verðar­borð en það hef­ur verið siður á mínu heim­ili eft­ir páska­eggja­leit og páska­eggja­át að borða morg­un­verð sam­an. Stellið er úr versl­un­inni H&M en rest­in af disk­un­um og skál­un­um hef ég eign­ast í gegn­um tíðina en ég reyni að kaupa mér alltaf eitt­hvað í safnið fyr­ir hverja páska,“ seg­ir Anna Berg­lind.

Gular slaufur lífga upp á servétturnar og gera borðið páskalegt …
Gul­ar slauf­ur lífga upp á serv­ét­t­urn­ar og gera borðið páska­legt en vin­kon­urn­ar segja slauf­ur hafa verið vin­sæl­ar að und­an­förnu. Það er sniðugt að skreyta borðið með græn­um ávöxt­um í stíl við glös­in. Takið eft­ir vín­berj­un­um og kíví­á­vext­in­um. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
Góður morgunverður er ómissandi hluti af páskunum.
Góður morg­un­verður er ómiss­andi hluti af pásk­un­um. Krist­inn Magnús­son
Spæld egg og linsoðin egg passa vel páskaborðið. Á borðinu …
Spæld egg og lin­soðin egg passa vel páska­borðið. Á borðinu er einnig bakaður ost­ur með hnet­um og hun­angi, eitt­hvað sem all­ir elska. Krist­inn Magnús­son

Eng­in ein rétt leið

Er eitt­hvert páska­skraut sem er í tísku núna?

„Það er einna helst nátt­úru­leg­ir lit­ir og svo er guli lit­ur­inn órjúf­an­leg­ur hluti af pásk­un­um, og svo er um að gera að nota ímynd­un­ar­aflið,“ seg­ir Anna Lísa. 

Hér hefur nútímalegt páskaskraut verið hengt á fallegar greinar.
Hér hef­ur nú­tíma­legt páska­skraut verið hengt á fal­leg­ar grein­ar. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Er það bara fyr­ir alla flink­ustu að skreyta borð eða geta all­ir græjað fal­legt borð?

„Það geta all­ir skreytt borð. Því er um að gera að prófa sig áfram og nýta það sem til er heima eða jafn­vel fá lánað frá ætt­ingj­um og vin­um eða föndra sjálf og leyfa ímynd­un­ar­afl­inu að njóta sín. Það er eng­in ein upp­skrift að fal­lega skeyttu borði. Á In­sta­gram-síðunni okk­ar erum við með hug­mynd­ir að borðskreyt­ing­um og erum stöðugt að bæta við nýju efni við hin ýmsu til­efni,“ seg­ir Anna Lísa.

Servéttur með kanínueyrum gera borðið fallegt.
Serv­ét­t­ur með kan­ínu­eyr­um gera borðið fal­legt. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Bragðast mat­ur­inn bet­ur þegar borðið er fal­lega skreytt?

„Gest­ir kunna vel að meta þegar þau sjá að búið er að nostra við veislu­borðið og njóta mat­ar­ins bet­ur við fal­lega skreytt borð,“ seg­ir Anna Lísa.

„Við telj­um að fal­lega skreytt borð bæti alltaf upp­lif­un­ina þegar sest er að borðum. Skreyt­ing­arn­ar þurfa ekki að vera flókn­ar og auðvitað skipt­ir máli að gefa sér tíma í hverja máltíð þó vissu­lega sé það ekki alltaf hægt,“ seg­ir Anna Berg­lind.

Kanínurnar á diskunum bjuggu nöfnurnar til sjálfar úr snæri með …
Kan­ín­urn­ar á disk­un­um bjuggu nöfn­urn­ar til sjálf­ar úr snæri með vír. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Þegar kem­ur að því að leggja fal­lega á borð er gott að skipu­leggja sig fram í tím­ann.

„Ég mæli með að byrja nokkr­um dög­um fyr­ir mat­ar­boðið að velta fyr­ir sér hvaða þema verður á borðinu og hafa þannig tíma til að móta hug­mynd­ina og sanka að sér því sem þarf. Við höf­um lagt það í vana okk­ar að hafa borðið til­búið nokkr­um klukku­stund­um fyr­ir boðið, jafn­vel deg­in­um áður. Þannig gefst tími til að hnika til á borðinu og breyta, ef þarf,“ seg­ir Anna Lísa.

Anna Berg­lind er á sama máli. „Mér finnst gott að setja í sím­ann minn punkta varðandi það sem ég ætla mér að kaupa ef ég sé eitt­hvað sem mér lík­ar og byrja oft­ast að spá í hvernig ég ætla að skreyta löngu fyr­ir páska því gott skipu­lag hjálp­ar alltaf, þá nýt­ur maður þess enn bet­ur að und­ir­búa held­ur en að vera að finna eitt­hvað til á hlaup­um.“

Hér er karfa sem fylgir hvítlauk endurnýtt á skemmtilegan máta.
Hér er karfa sem fylg­ir hvít­lauk end­ur­nýtt á skemmti­leg­an máta. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
Vinkonurnar mæla með að nota lauka til að skreyta páskaborðin …
Vin­kon­urn­ar mæla með að nota lauka til að skreyta páska­borðin eins og hér er ger mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Nota­leg­ir pásk­ar í Þor­láks­höfn

Það stefn­ir í nota­lega páska hjá Önnu Berg­lindi. „Venju­lega er margt um mann­inn hjá okk­ur hjón­um um páska en í ár verða börn­in okk­ar þrjú og tengda­börn á far­alds­fæti svo það verða lík­lega ró­leg­heit hjá okk­ur. Við fáum von­andi for­eldra mína og tengdapabba í mat og svo ömmustrák­inn sem ætl­ar að eyða pásk­un­um með okk­ur. En þó svo að við verðum held­ur færri við páska­borðið í ár verður klár­lega vandað til og nostrað við borðin. Við höld­um okk­ur vænt­an­lega við þann sið að borða svína­ham­borg­ar­hrygg á páska­dag og ein­hvern góðan eft­ir­rétt og svo er planið að slaka á heima við ásamt því að fara í stutta bíltúra og njóta þess að leika við litla prins­inn okk­ar,“ seg­ir Anna Berg­lind.

Vinkonurnar hugsa fyrir öllu. Stofuborðið hefur fengið fallegt og notalegt …
Vin­kon­urn­ar hugsa fyr­ir öllu. Stofu­borðið hef­ur fengið fal­legt og nota­legt yf­ir­bragð fyr­ir páska­hátíðina. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Anna Lísa ætl­ar einnig að elda steik en seg­ir í raun hægt að bera flest­an mat á borðið sem þær skreyttu. „Í raun er hægt að bera fram hvaða mat sem er á þetta borð en við ætl­um venju sam­kvæmt að hafa ham­borg­ar- og lambahrygg þessa páska. Ég tók upp á því um síðustu páska að vera með grín­egg. Þá setti ég litla miða í gatið á litlu súkkulaðieggj­un­um með þraut­um sem hver og einn á að fram­kvæma eins og til dæm­is að segja hratt fimm sinn­um „það fer nú að verða verra ferðaveðrið“ og „hummaðu ís­lenskt Eurvisi­on-lag“ og hinir gest­irn­ir eiga að giska á lagið. Þetta vakti mikla lukku og kátínu,“ seg­ir Anna Lísa sem ætl­ar að borða með stór­fjöl­skyld­unni á skír­dag og páska­dag. Skella sér í ferm­ing­ar­veislu, spila borðspil og jafn­vel taka einn golf­hring ef veður leyf­ir.

Auðvelt er að skreyta með eggjum um páskana.
Auðvelt er að skreyta með eggj­um um pásk­ana. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Fal­leg en ein­föld páskamar­engskaka

Mar­engskak­an er keypt í IKEA. Hægt er að kaupa botna í hinum ýmsu bakarí­um og þeyta rjóma og létta sér þar með lífið. Anna Berg­lind og Anna Lísa gerðu kök­una páska­lega með því að skreyta með litl­um páska­eggj­um og makkarón­um.

Páskakakan þarf ekki að vera flókin.
Páskakak­an þarf ekki að vera flók­in. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son



Stellið er úr BYKO en viðardiskarnir og kertabakkinn í miðjunni …
Stellið er úr BYKO en viðardisk­arn­ir og kerta­bakk­inn í miðjunni úr Baliku. Borðbúnaður­inn pass­ar ein­stak­lega vel við stól­ana sem eru úr ByLola. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
Renningur úr Blómavali passar vel við hördúkinn á borðinu.
Renn­ing­ur úr Blóma­vali pass­ar vel við hör­dúk­inn á borðinu. Krist­inn Magnús­son
Hér eru lítil súkkulaðiegg notuð til að skreyta með og …
Hér eru lít­il súkkulaðiegg notuð til að skreyta með og tauserv­ét­t­ur með páska­leg­um serv­ét­tu­hringj­um mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
Venjulegt egg með skreytingu.
Venju­legt egg með skreyt­ingu. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda