Átt þú feik Knot-púða og langar í ekta?

Knot-púðinn eftir Ragnheiði Ösp Sigurðardóttur hitti í mark þegar hann …
Knot-púðinn eftir Ragnheiði Ösp Sigurðardóttur hitti í mark þegar hann kom á markað. Hann hefur verið stældur í stórum stíl og seldur á erlendum vefsíðum sem selja falsaða hönnunarvöru.

Sýn­ing­in Feik eða ekta? á veg­um Hug­verka­stof­unn­ar, Epal og React - alþjóðlegu sam­starfsneti fyr­ir­tækja gegn föls­un­um bjóða til sýn­ing­ar á Hönn­un­ar­mars dag­ana 24.-27. apríl, í versl­un­um Epal í Skeif­unni og á Lauga­vegi.

Mark­miðið er að vekja at­hygli á því af hverju fólk ætti að velja ekta vör­ur, virða hug­verka­rétt­indi og forðast að kaupa eft­ir­lík­ing­ar. Hægt verður að skoða sýn­is­horn af fölsuðum vör­um og bera sam­an við ekta fyr­ir­mynd­ir og taka þátt í get­raun um hvaða vör­ur eru ekta og hverj­ar ekki. Í verðlaun er ekta Flowerpot lampi í boði Epal.

Knot-púðinn eft­ir Ragn­heiði Ösp Sig­urðardótt­ur hef­ur notið mik­illa vin­sælda. Svo mik­illa að hann hef­ur verið feikaður í stór­um stíl. 

Nú stend­ur yfir leit af feik Knot púða til að taka þátt í sýn­ing­unni! Ef þú lum­ar á feik ein­taki af Knot púða get­ur þú komið með púðann þinn í Epal Skeif­una og færð í staðinn ekta púða í skipt­um. Hér gild­ir regl­an fyrst­ur kem­ur, fyrst­ur fær og er einn Knot-púði í boði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda