Upplifir frelsistilfinningu í garðvinnunni

Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur myndi mjög gjarnan vilja vera eins og …
Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur myndi mjög gjarnan vilja vera eins og Gurrý í garðinum.
Vala Garðars­dótt­ir forn­leifa­fræðing­ur á einn stærsta garð lands­ins sem er hekt­ari á stærð. Hún myndi mjög mikið vilja vera eins og Gurrý í garðinum en því miður tek­ur bar­átt­an við arf­ann oft of lang­an tíma. 

Hvernig garðtýpa ert þú?

„Ég elska fal­lega garða og mér líður vel að vera að vesen­ast í garðinum. Mig lang­ar svo inni­lega að minn garður sé eins og hjá henni Gurrý, en staðreynd­in er reynd­ar sú að ég ætla mér oft um of og byrja á ein­hverju sem ég get svo ekki klárað al­menni­lega. Vor­verk­in eru til dæm­is enn í gangi hjá mér og flest beðin ókláruð.“

Vala og Ásgeir Ragnarsson í garðinum heima hjá sér.
Vala og Ásgeir Ragn­ars­son í garðinum heima hjá sér.

Hvað finnst þér best við garðinn þinn?

„Þar sem ég bý í Mos­fells­dal og á um hekt­ara landa þá hef­ur farið mest­ur tím­inn í að gróður­setja tré og runna, en það besta og það sem mér þykir vænst um er þegar ég sé fugl­ana koma sér fyr­ir í trján­um, gera sér hreiður og syngja. Á vor­in þegar far­fugl­arn­ir koma þá sit ég oft úti og fylg­ist með þeim þegar þeir eru að koma og tel mig vita að sömu pör­in eru að koma til okk­ar aft­ur og aft­ur.“

Hvenær áttu þínar bestu stund­ir í garðinum?

„Þegar veðrið er ólýs­an­lega gott og fal­legt, öll fjöl­skyld­an heima að grilla og spjalla sam­an, borða úti, fara í leiki og vesen­ast, kveikja svo varðeld þegar fer að kvölda og bara horfa á allt lífið í kring­um mann í blóma.“

Áttu þér upp­á­halds­plöntu eða -tré?

„Ætli mér þyki ekki vænst um birkið, það er eitt­hvað svo grjót­hart og fal­legt og virðist standa af sér öll veður, frost og funa. Svo er það líka holta­sól­ey sem var upp­á­halds­blóm ömmu minn­ar og er jú okk­ar þjóðarblóm.“

Hvers vegna finnst þér skipta máli að eiga góðan garð?

„Ætli það sé ekki þetta frelsi eða frels­istil­finn­ing sem maður fær þegar maður er að vinna í garðinum, rækta eitt­hvað og sjá það blómstra. Ég held líka að það sé mjög ríkt í okk­ar DNA-i að lifa í um­hverfi þar sem hægt er að rækta garðinn sinn, rækta ma­t­jurtir, græn­meti, jafn­vel korn og ávexti. Ætli ég sé ekki þessi blanda að vera bóndi og safn­ari því ég er eng­inn veiðimaður. Það að hlúa að ein­hverju sem gef­ur af sér og manni þykir vænt um. Ég gleymi aldrei fyrstu jarðarberj­un­um sem ég ræktaði. Mér leið eins og ég hefði slegið eitt­hvert met eða klifið Ev­erest,“ seg­ir Vala.

Ertu svona grilltýpa?

„Maður­inn minn hef­ur oft sagt það að hann sé besti grill­ari lands­ins. Hann á enn eft­ir að sanna það fyr­ir mér, en hann er sá sem grill­ar og er reynd­ar al­veg ágæt­is grill­ari, hann má eiga það. Ég horfi bara á og fæ mér rauðvín á meðan.“

Sumarblómin komin í potta.
Sum­ar­blóm­in kom­in í potta.

Finnst þér gam­an að vinna í garðvinnu eða færðu nóg af því í vinn­unni sem forn­leifa­fræðing­ur?

„Þegar ég var yngri fannst mér þetta ekki eins skemmti­legt. Ég var ekki búin að fatta hversu nær­andi þetta er. Svo var ég líka mikið að vinna úti og moka mold all­an dag­inn, þannig að maður var kannski líka bara þreytt­ur þegar maður kom heim.“

Er eitt­hvað sem þér finnst leiðin­legt að gera í garðinum?

„Sko, þessi blessaði arfi er oft leiðin­leg­ur. Mér finnst allt í lagi að hreinsa arf­ann þegar maður hef­ur tím­ann en svo get­ur þetta verið óþolandi mikið og mig lang­ar bara að stinga allt upp.“

Hvað er betra en grilluð pítsa á sumardegi?
Hvað er betra en grilluð pítsa á sum­ar­degi?

Hvernig er hinn full­komni garður?

„Villt­ur, en samt eins og sagt er svona skipu­lagt kaos. Minn garður er ekki enn kom­inn þangað en ég er að vinna í því og mun lík­leg­ast taka lang­an tíma.“

Hvað er það síðasta sem þú gerðir fyr­ir garðinn þinn?

„Ég er enn í vor­verk­un­um! Arf­inn er enn að mestu í öll­um beðum. Ég er því bara í því þessi dægrin, en henti samt í pott­ana í gær nokkr­um sum­ar­blóm­um.“

Vala fyrir framan grillið í garðinum.
Vala fyr­ir fram­an grillið í garðinum.

Get­ur þú lýst góðum degi í garðinum?

„Þegar allt virðist vera að fara til fjand­ans í þess­um heimi þá er gott að klæða sig í föt­in og fara út í garð, þá gleym­ir maður sér fljótt og fer að hugsa um hvað maður er hepp­inn að vera til.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda