Lögmaðurinn Guðmundur Haukur Guðmundsson Maður #ársins á X, áður Twitter, og Snædís Helgadóttir framkvæmdastjóri fjármála hjá Wise settu glæsilegt endaraðhús sitt í Fossvoginum á sölu í byrjun ársins. Nú er húsið selt á sama verði og það var keypt á fyrir um ári síðan.
Endaraðhúsið er 212 fm að stærð og var reist 1971. Húsið er á pöllum eins og flest raðhúsin í hverfinu. Um er að ræða endaraðhús sem er hraunað að utan með brúnu þaki. Eldhúsið snýr út að götu í norður en stofur og herbergi snúa í suður. Í kringum húsið er gróinn garður með heitum potti og verönd.
Gísli Logi Logason lögmaður og Guðný Ólafsson keyptu húsið af Guðmundi Hauki og Snædísi og greiddu 160.000.000 kr. fyrir það.
Smartland óskar þeim til hamingju með húsið!