10 hlutir sem skapa sumarstemningu á heimilinu

Færðu sumarstemninguna inn á heimilið um helgina!
Færðu sumarstemninguna inn á heimilið um helgina! Samsett mynd

Svo virðist sem mikl­ir rign­ing­ar­dag­ar séu framund­an um allt land og því til­valið að nýta tím­ann í að gera heim­ilið nota­legt. Á óskalista vik­unn­ar finn­ur þú tíu hluti sem færa sum­arstemn­ing­una inn til þín og gleðja þig, jafn­vel á dimm­um rign­ing­ar­dög­um! 

Færðu blóm­in inn á heim­ilið!

Ein­hverj­ir hafa ef­laust verið að bíða eft­ir því að kom­ast út í garð og njóta flór­unn­ar í góðu veðri, en sam­kvæmt veður­spánni eru litl­ar lík­ur á að það plan gangi eft­ir. Þú get­ur hins veg­ar alltaf dáðst af sum­ar­leg­um blóm­um í fal­leg­um blóma­vasa inni hjá þér, en þessi vasi er ís­lensk hönn­un eft­ir Önnu Þór­unni Hauks­dótt­ur og er afar form­fag­ur.

Vasi frá Anna Thorunn fæst hjá Epal og kostar 16.900 …
Vasi frá Anna Thor­unn fæst hjá Epal og kost­ar 16.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Epal.is

Strand­ar­stemn­ing í bolla!

Þó það sé lít­il sól í kort­un­um þá get­ur þú treyst á að ilm­andi kaffi­bolli hlýji þér. Þú get­ur svo bara lokað aug­un­um á meðan þú drekk­ur kaffið og ímyndað þér að þú sitj­ir á litlu kaffi­húsi við Am­al­fi-strönd­ina á Ítal­íu. Svo skemm­ir ekki fyr­ir að kaffið komi úr fal­legri sand­litaðri kaffi­vél, er það ekki eitt­hvað?

Espressóvél frá Sjöstrand fæst hjá Epal og kostar 64.990 krónur.
Espressóvél frá Sjöstrand fæst hjá Epal og kost­ar 64.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Epal.is

Fag­ur­blá kósí­heit!

Til að skapa enn meiri sum­arstemn­ingu get­ur þú svo vafið þig inn í fag­ur­blá rúm­föt sem minna á heiðskýr­an him­inn á góðum sum­ar­degi á meðan þú drekk­ur morg­un­boll­ann!

Sænguverasett frá byNord fæst hjá Fakó og kostar 16.995 krónur.
Sængu­vera­sett frá byN­ord fæst hjá Fakó og kost­ar 16.995 krón­ur. Ljós­mynd/​Fako.is

Sjúk í sól­ina!

Við Íslend­ing­ar erum al­gjör­lega sjúk í sól­ina, enda erfitt að fá leið á henni þar sem hún læt­ur ekki sjá sig alltof oft yfir árið. Um helg­ina er að minnsta kosti hægt að vera með sól í hjarta og verið sjúk­ur í það!

Veggspjald fæst hjá Havarí og kostar 16.900 krónur í ramma.
Vegg­spjald fæst hjá Havarí og kost­ar 16.900 krón­ur í ramma. Ljós­mynd/​Havari.is

Af strönd­inni á borðið!

Til að skapa meiri strand­ar­stemn­ingu á heim­il­inu er til­valið að sækja inn­blást­ur þangað, til dæm­is með því að bera fram kræs­ing­ar á þess­um fal­legu skelja­disk­um sem eru ís­lensk hönn­un eft­ir Heklu Nínu Hafliðadótt­ur. 

Skelja skálar fást hjá Heklu Nínu og kosta 5.500 krónur.
Skelja skál­ar fást hjá Heklu Nínu og kosta 5.500 krón­ur. Ljós­mynd/​Heklan­ina.is

Suðræn stemn­ing!

Það er auðvelt að skapa suðrænni stemn­ingu á heim­il­inu með fal­leg­um græn­um plönt­um. Svo skemm­ir ekki fyr­ir að setja þær í fal­leg­an pott, en þessi er afar sum­ar­leg­ur og tón­ar fal­lega við græna lit­inn.

Blómapottur fæst hjá Söstrene Grene og kostar 1.140 krónur.
Blóma­pott­ur fæst hjá Söstrene Grene og kost­ar 1.140 krón­ur. Ljós­mynd/​Sostrenegrene.is

... og enn meira suðræn stemn­ing!

Það er fátt jafn sum­ar­legt og góð kó­koslykt. Þetta ilm­kerti tek­ur þig í ferðalag á sól­rík­ar strend­ur þar sem kó­kos­hnet­ur hanga í pálma­trjám og lífið virðist ein­fald­ara!

Ilmkerti fæst hjá Húsgagnahöllinni og kostar 2.290 krónur.
Ilm­kerti fæst hjá Hús­gagna­höll­inni og kost­ar 2.290 krón­ur. Ljós­mynd/​Hus­gagna­holl­in.is

Fyr­ir su­mar­kokteil­inn!

Þú get­ur alltaf skapað góða stemn­ingu með sum­ar­leg­um kokteil­um sem eru born­ir fram í fal­leg­um glös­um, hvort sem þú býður vin­kon­un­um í „bröns“ eða held­ur mat­ar­boð fyr­ir fjöl­skyld­una um kvöldið. Svo má líka al­veg blanda sér einn góðan, hvort sem hann er áfeng­ur eða ekki, yfir dag­inn!

Kokteilsglös fást hjá Heimahúsinu og kosta 9.800 krónur.
Kokteils­glös fást hjá Heima­hús­inu og kosta 9.800 krón­ur. Ljós­mynd/​Heima­husid.is

Hlý­legt og nota­legt!

Mjúk­ar mott­ur bæta alltaf hlý­legri stemn­ingu inn á heim­ilið. Í stað þess að stíga niður á kalt gólfið tek­ur við nota­leg áferð og held­ur á þér hlýju!

Motta frá Cappelen Dimyr fæst hjá Dimm og kostar 139.990 …
Motta frá Capp­elen Di­myr fæst hjá Dimm og kost­ar 139.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Dimm.is

Feg­urðin í smá­atriðunum!

Það þarf oft ekki meira en sæt­ar og sum­ar­leg­ar skál­ar til að poppa upp á heim­ilið, en þess­ar eru með mar­okkósku mynstri og er litagleðin í for­grunni!

Skálar fást hjá Söstrene Grene og kosta 573 krónur.
Skál­ar fást hjá Söstrene Grene og kosta 573 krón­ur. Ljós­mynd/​Sostrenegrene.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda