Grínistinn og handritshöfundurinn, Jakob Birgisson, og eiginkona hans, Sólveig Einarsdóttir hlaðvarpsstjarna í Bragðheimum, hafa fest kaup á nýrri íbúð. Um er að ræða 158,6 fm hæð í fjögurra íbúða húsi við Tómasarhaga. Húsið var reist 1953 og greiddu hjónin 115.500.000 kr. fyrir íbúðina.
Hjónin bjuggu áður við Öldugötu í Reykjavík í 64 fm íbúð ásamt börnum sínum tveimur. Þar höfðu þau búið sér fallegt heimili þar sem rósettur og upprunalegir loftlistar settur svip á rýmið.
Það mun án efa fara vel um þau á þessari rúmgóðu hæð sem kúrir á góðum stað í Vesturbænum. Það er himinn og haf á milli Öldugötu og Tómasarhaga og svo má ekki gleyma því að vinafólk Jakobs og Sólveigar, hjónin Snorri Másson og Nadine Guðrún Yaghi, keyptu nýlega hæð við Tómasarhaga og geta nú fengið sér göngu á milli húsa.
Smartland óskar hjónunum til hamingju með íbúðina!