Á Norðurlandi, nánar tiltekið við Melgötu 3 á Grenivík, er að finna spennandi einbýlishús sem reist var 1979. Húsið sjálft er 220 fm að stærð og hefur verið endurnýjað mikið.
Húsið hefur að geyma bæsaðar eikarinnréttingar í súkkulaðibrúnum lit sem voru sérsmíðaðar inn í húsið. Borðplöturnar eru frá Granítsmiðjunni og fer steinninn upp á veggi. Undirlímdur vaskur er í eldhúsinu og er skápapláss ríkulegt. Í eldhúsinu er bekkur sem sérsmíðaður var hjá Zenus.
Í stofunni er flísalagður skenkur með marmaraflísum sem setur mikinn svip á rýmið. Baðherbergi í húsinu hafa líka verið endurnýjuð og má þar finna fallegar flísar og sérsmíðaðar innréttingar, hringlaga spegil og blöndunartæki frá Lusso stone.
Heimilið er nýmóðins og hlýlegt eins og sést á fasteignavef mbl.is.